Bankablaðið - 01.09.1981, Qupperneq 31
Gerðardómsmálið
31
Hins vegar þykir mega líta til þess, að
kjarasamningur aðilanna frá 15. deseni-
ber 1980 var byggður á sjónarmiðum svo-
nefndrar ,,launajöfnunarstefnu“. Má sjá
það af framlögðum gögnum í málinu, að
hlutfallshækkun hærri launaflokkanna er
töluvert minni en þeirra lægri. A þetta
einkum við um 9,—12. launaflokk. Eftir-
farandi kjarasamningar og kjaraákvarð-
anir hafa ekki byggt á þessari forsendu,
heldur hafa launahækkanir gengið yfir
allan launastigann. 9.—12. launafiokk
skipa rúmlega 1/3 hluti bankamanna.
Breyting á launum þessara starfsmanna
hefir orðið með öðrum hætti en hjá við-
miðunaraðilum og starfsmönnum í lægri
launaílokkum sóknaraðila. Ennfremur
virðast síðari ákvarðanir á kjörum banka-
stjóra og fieiri yfirmanna í bönkunum
hafa tekið mið af hinum breyttu forsend-
um. Að þessu athuguðu þykir hælilegt að
hækka grunnlaun frá og með 1. janúar
1981 um 2% í 9. launafiokki og 2,5% í
10,—12. launafiokki.
Úrskurðarorð.
Urskurðarorð: Grunnlaun samkvæmt 9.
launafiokki í gr. 1.1.2 í kjarasamningi
Sambands íslenskra bankamanna og
samninganefndar bankanna f.h. bank-
anna frá 15. desember 1980 skulu hækka
um 2,0% frá og með 1. janúar 1981.
Grunnlaun samkvæmt 10., 11. og 12.
launafiokki greinds kjarasamnings skulu
hækka um 2,5% frá og með 1. janúar
1981.
Atli Hauksson sign.
GuSmundur Jónsson sign.
GuSmundur Skaftason sign.
Sératkvæði Sveinbjarnar
Hafliðasonar
Fallast má í meginatriðum á niðurstöðu
meirihluta gerðardómsins að öðru leyti en
því, að rétt og eðlilegt þykir að taka til
greina aðalkröfu sóknaraðila unt pró-
sentuhækkanir á laun félagsmanna sókn-
araðila, þ.e. 5,42% hækkun á hæstu launa-
fiokka og síðan stighækkandi, allt sam-
ræmi við útreikning sóknaraðila á málsskj.
nr. 5
Sveinbjöm HafliSason sign.
Sératkvæði Guðmundar Karls
Jónssonar
I samkomulagi um kjarasamninga félags-
manna SIB er endurskoðun á launalið
kjarasamnings bankamanna á sanmings-
tímanum, heimiluð að gefnu sérstöku til-
efni. Sé þetta sérstaka tilefni fyrir hendi
skal úrskurðurinn taka tillit til starfskjara
og þróunar þeirra við sambærileg störf á
vinnumarkaði almennt, hvort sem er hjá
atvinnufyrirtækjum eða ríki, ríkisstofnun-
um, sveitafélögum og stofnunum þeirra.
Þróun starfskjara bankamanna hefur
undanfarin ár fylgt þróun starfskjara
opinberra starfsmanna innan B.S.R.B. og
B.H.M. það er því erfitt að bera starfskjör
bankamanna og þróun þeirra saman við
atvinnufyrirtæki á almennum vinnumark-
aði nenta til lengri tíma sé litið. Það kemur
fram í fréttabréfum Kjararannsóknar-
nefndar að kaupmáttur opinberra starfs-
manna þ.m.t. bankamanna hafi á árinu
1977, hækkað 10% umfram meðalhækk-
un kaupmáttar kauptaxta í landinu á því
ári. Sambærileg og hliðstæð störf við störf
bankamanna er fyrst og fremst að finna
meðal opinberra starfsmanna innan raða
B.S.R.B. og B.H.B. enda er þróun kjara-
samninga sambærilegust við þessa aðila.
15. desember 1980 er gerður kjara-
samningur í verkfalli milli aðila þessa máls
um verulega meiri kauphækkaniren kjara-
samningur B.S.R.B. og fjármálaráðherra,
sem gerður var fyrra á árinu, gerði ráð
fyrir. A sama tíma og aðilar semja.er dóm-
tekið í Kjaradómi kjaradómsmálið nr 22/
1980 Bandalag háskólamanna gegn fjár-
málaráðherra f.h. ríkissjóðs. I forsendum
dóms sem upp er kveðinn 31. desember
1980 er vitnað til samninga bankamanna
„sem fól í sér um 7% hækkun".
I dómsorði Kjaradóms fær Bandalag
háskólamanna 6% flata hækkun á launa-
stiga eins og hann var í október 1980. í
framhaldi af þessum dómi er samið við
B.S.R.B. um hliðstæðar launahækkanir á
ef ri flokka launastigans, jafnframt því sem
samningstímabil er lengt.
Ef litið er á launahækkanir þessara sam-
ninga, hefur launasdgi SÍB í heild hækkað
heldur meira en bæði launastigi B.H.M.
og B.S.R.B., auk þess sem SÍB nær for-
skoti á launahækkun fram til 1. ágúst 1980
en dómur Kjaradóms í máli BIH.M. gildir
frá 1. des. 1980 og viðbótasamningur
B.S.R.B. frá l.janúar 1981.
Samkvæmt þessu verður ekki talið að
sérstakt tilefni sé fyrir hendi að breyta
launastiga bankamanna þó vera kunni að
einhverju muni milli hæstu launa á launa-
stiga SIB annars vegar og launastiga
B.H.M. og B.S.R.B. hins vegar.
Úrskurðarorð: Launastigi kjarasamnings
bankamanna frá 15. desember 1980 verði
óbreyttur.
GuSmundur Karl Jónsson sign.
Undirskriftir
Skömmu áður en Bankablaðið fór í prent-
un var skilað til skrifstofu SÍB undirskrift-
arlistum, sem gengið hafa á vinnustöðum
félagsmanna SIB undanfarnar vikur.
Texti undirskriftarlistanna er sem hér
segir:
„Við undirritaðir félagsmenn í Sam-
bandi íslenskra bankamanna óskum eftir
því að samningaumleitanir SIB og bank-
anna verði ekki látnar dragast á langinn.
Einnig er ítrekað að nýr samningur verði
látinn gilda frá þeim degi er síðasti samn-
ingur rann út“.
LTp]thaflega bárust listar undirritaðir af
rúinlega 800 félagsmönnum SÍB, en for-
vígismenn undirskriftarsöfnunarinnar
segja að fleiri listar séu á leiðinni.
Stjórn og samninganefnd SÍB vill þakka
félagsmönnum fyrir þann stuðning, sem
veittur er með þessum hætti og telja þessa
undirskriftasöfnun mikilvægan vott um
samstöðu félagsmanna í kjaradeilunni við
bankana.
Kjarasamningar SÉB
gangur mala
Timi
•----------- Uppsögn kjarasamninga
SlB med 3ja mánaða
fyrirvara
2 mán.
Sáttasemjari ríkisins
tekur sjálfkrafa við
deilunni
óákv.
Uppsögn kjarasaunninga
tekur gildi
10 d.
SlB boðar verkfall
Sáttatillaga lögð fram
Boðað verkfall á að hefjast.
Sáttanefnd getur frestað verk-
falli í 15 daga
» Verkfall hefst eftir frestun
ðákv.
Seunningar takast um aðalkjarasamning
Gildistimi kjarasamnings samkomulags-
atriði hverju sinni.