Bankablaðið - 01.12.1981, Blaðsíða 3

Bankablaðið - 01.12.1981, Blaðsíða 3
Eflum Bankablaðið! Þetta tölublað Bankablaðsins er unnið af nemendum framhaldsnáms Bankamannaskólans með stuðningi SÍB og má líta á það sem einskonar sérútgáfu, og beinir blaðið einkum sjónpípu sinni að starfsemi Banka- mannaskólans. Þetta blað er mikilsvert framtak þeirra sem að unnu og vekur athygli á því mikilvæga starfi, sem unnið hefur verið í Banka- mannaskólanum undanfarin ár; starfi sem Samband íslenskra banka- manna hlýtur ávallt að láta sig miklu varða. Umsjónarmenn blaðsins af hálfu nemendanna eru tveir starfsmenn Landsbanka íslands, Kjartan Ingvason og Þórarinn M. Þorbjömsson og eiga þeir þakkir skyldar. En þetta tölublað Bankablaðsins gefur einnig tilefni til þess að íhuga blaðið sjálft og aðstöðu þess. Þetta er annað tölublaðið sem út kemur eftir gagngerar breytingar á útliti þess. Ákvörðun um þetta var tekin á 32. þingi SÍB í vor, en jafnframt var ákveðið að blaðið kæmi út oftar en verið hefur, eða fjómm sinnum á ári. Þessi aukna útgáfa, að því við- bættu, að kröfur til blaðsins, efnismeðferðar og efnisvals, hafa verið auknar og það með réttu, hafa í för með sér, að gera verður þær kröfur til félagsmanna SÍB, að þeir sýni málgagni sínu meiri áhuga og ræktarsemi en hingað til. Félagsmenn verða að taka sig á og senda blaðinu efni, hvort sem er í formi greina eða fyrirspuma hvers konar. Markmið útgáfunnar hlýtur að vera að gera Bankablaðið að lifandi vettvangi skoðanaskipta og hugmynda. í því skyni að efla áhuga félagsmanna á blaðinu hefur stjórn SÍB ákveðið að efna á næsta ári til námskeiðs í ýmsu er tengist blaðaútgáfu í þeim tilgangi að ná til þeirra félagsmanna sem áhuga hafa á slíku starfi. Þeir gætu síðan myndað eins konar ritnefnd um blaðið og Iagt því lið á ýmsan hátt. Er vonandi að þeir sem áhuga hafa hagnýti sér þetta. VGK. I._______________________________________________________________J Banka blaðið 47. árg. 2. tbl. desember 1981 Utgefandi: Samband ísl. bankam. Ábyrgðarmaður: Sveinn Sveinsson Ritstjóri: VilhelmG. Kristinsson Ritstjórn og afgreiðsla: Skrifstofa SÍB, Laugavegi 103 - 105, Reykjavík Pósthólf: 5506 Sími: 26252 Blað þetta er unnið af nemendum framhaldsnáms Bankamannaskólans í umsjón Þórarins M. Þorbjörnssonar og Kjartans Ingvasonar. Bankablaðið er prentað í 2800 eintök- um og sent öllum félagsmönnum SÍB. Ullil, setningogumhrot: l.eturval sf. Prentun: Prentsmiöi hf. Bókhand: Arnarherg hf. Samband íslenskra bankamanna stofnað 30. janúar 1935. Aðildarfélög eru 16 Félagsmenn í ársbyrjun 1981: 2.337 Skrifstofa Laugavegi 103 - 105, Rvík Opið kl. 8:30 - 17:00 Nafnnúmer: 7472-7409 Formaður Sveinn Sveinsson 1. varaformaður Hinrik Greipsson 2. varaformaður Jens Sörensen Ritari: Margrét Brynjólfsdóttir Gjaldkeri: Helgi Hólm Meðstjórnendur: Anna María Braga- dóttir og Kjartan Nielsen. Starfsmenn: Framkv.stj. VilhelmG. Kristinsson Fulltrúar Björg Árnadóttir og Guðrún Ástdís Ólafsdóttir Efnisyfirlit 5 Skólahald ’81 7 Starfsþjálfun og menntun bankamanna 11 Hugleiðingar um áætlana- gerð 14 Lítil saga um kreditkort 16 Maðurinn bak við allt 19 Átthagafræði Seðlabank- ans á nýja staðnum 27 Þroskasaga bankamanns — þroskast hann aldtrei? 31 Afbankvangi 33 Stærðfræði þrautir 34 Frá mannmálsverndinni 3

x

Bankablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bankablaðið
https://timarit.is/publication/720

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.