Bankablaðið - 01.12.1981, Blaðsíða 7

Bankablaðið - 01.12.1981, Blaðsíða 7
43.40 Benedikt E. Guðbjartsson, Landsbanka Islands STARFSÞJÁLFUN OG MENNTUN BANKAMANNA Hin síðari ár hafa bankamenn lát- ið sig fræðslumál sín miklu skipta. Hafa þeir sótt eftir aukinni aðild að stjómun fræðslumála bankamanna m.a. með fjölgun fulltrúa í stjóm Bankamannaskólans. Þá hafa full- trúar S.Í.B. tekið þátt í störfum fræðslunefndar norræna banka- mannasambandsins með það fyrir augum að fylgjast sem best með þró- un þessara mála á norðurlöndunum. Lítil umræða hefur farið fram um fræðslumál okkar og er það miður. Er okkur hollt að skoða stöðu þess- ara mála með stuttu millibili í þeim tilgangi að bæta starfsþjálfun og menntun bankamanna. Grein þess- ari er ætlað að skýra frá nokkrum þáttum fræðslumála bankamanna. Eitt af því sem hefur almennt verulega þýðingu við ráðningu nýrra starfsmanna er menntun umsækj- anda. Svo kann að fara að ákveöið stig menntunar verði sett sem lág- mark við ráðningu. Starfsmanna- stjórar nokkurra banka munu hafa sett sér ákveðin mörk í þessu sam- bandi, en vikið frá þeim í mjög mörgum tilvikum. Störf í bönkum eru margbrotin og mun það þjóna best hagsmunum bankanna að nýtt starfsfólk komi til starfa með margvíslega reynslu og Reglubundin vióskipti -bókað lán! Nú getur þú sem launþegi slegið tvær flugur í einu höggi með þvi að láta greiða laun þin reglulega inn á reikning í Verzlunarbankanum eða gert það sjálfur. Með því móti áttu sjálfkrafa kost á hinu nýja láni Verzlunarbankans - Launaláninu. Hagræðið er ótvírætt. Að uppfylltum einföldum og sjálfsögðum skilmálum getur þú gengið að öruggu skammtimaláni þegar þér hentar - engin bið eftir banka- stjóra og engin óvissa um afgreiðslu. Hafðu samband, hringdu eða komdu og fáðu nánari upplýsingar. VŒZlUNflRBANKINN AÐALBANKI OG UTIBU 7

x

Bankablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bankablaðið
https://timarit.is/publication/720

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.