Bankablaðið - 01.12.1981, Blaðsíða 22

Bankablaðið - 01.12.1981, Blaðsíða 22
Skipsstrand við Battaríið í vetrarveðri um aldamótin. Húsið Höfn, sem þarstóð um nokkurtskeið, sést handan við Battaríið (til hœgri). Upphófst þá mikið þref og málaflækjur. Margir voru andvígir þessum ráðahag, annað hvort vegna óvildar eða öfundar, sem athafnamenn á íslandi hafa iðulega fengið að kenna á, eða vegna þess að menn grunaði að fiskur lægi undir steini. að Jón hefði í hyggju að reisa þama höfn eða verstöð fyrir þilskipaútgerð sína. Málið endaði með því að konsúllinn fékk synjun sinnar frómu bónar og Reykja- víkurbær fékk spilduna til ráðstöfunar. Og úr því fór að fækka árunum, sem öldurnar áttu eftir að skvampa við Arnarhvál. Álagahóll Eftir að byggðin í kvosinni jókst, fjölgaði húsum fyrir austan lækinn og jafnframt jókst ásókn í byggingarlóðir á Arnarhólnum sjálfum. Þau álög hafa verið á hól þessum, að miklar og heitar umræður hafa jafnan staðið um hugsan- legar byggingarframkvæmdir þar. Sum- um helstu stórbyggingum borgarinnar hafði verið ætlaður staður þar, s.s. Menntaskólanum, Landsbókasafninu, Alþingishúsinu, Landsspítalanum, Am- arhvoli og Þjóðleikhúsinu. Nokkrar þeirra fengu þó lóðir mjög nærri hóln- um, en ekki á honum sjálfum. Jón Vídalin. en um hyggingarframkvæmdir hans við Battaríiðstóð mikillstyrá Alþingiog í bæjarstjórn um 1899. Það þarf engin stóryröi um SAAB Hann seiur sig sjálf ur TÓQGURHF. SAAB UMBOÐIÐ BÍLDSHÖFÐA 16, SÍMI 81530 22

x

Bankablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bankablaðið
https://timarit.is/publication/720

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.