Bankablaðið - 01.12.1981, Blaðsíða 6

Bankablaðið - 01.12.1981, Blaðsíða 6
F R A M H A L D S N A M Nú um áramótin munu fyrstu nemendurnir útskrif- ast úr framhaldsnámi Bankamannaskólans. Þessi hóp- ur hefur í tvö ár lagt stund á hagnýtt nám í bankafræð- um. Hér neðan til er ætiunin að þjappa saman upplýs- ir.gum um tilgang námsins. Megintilgangur námsins er: að kynna nemendum uppbyggingu bankakerfisins frá laga- legu sjónarmiði. að skýra starfsheimildir og starfsaðferðir innlánsstofnana og bankaeftirlits. að búa nemendur undir lögfrœðilega útlistun á hinum ýmsu starfsgreinum bankanna. að nemendur kynnist undirstöðuhugtökum þjóðhagfræðinn- ar, með sérstakri áherslu á, peninga- og gjaldeyrismál, til að þeir skilji betur stöðu og hlutverk bankanna í efnahagslífinu. að nemendur geti lýst séreinkennum íslenska hagkerfisins og helstu efnahagsáföllum og uppgangstímabilum síðustu ára- tuga, og sýnt með því að þeir skilja þau meginlögmál sem eru að verki í efnahagslífinu í heild. að nemendur kynnist hagskýrslum og áœtlunum og geti gert sér nokkra grein fyrir þýðingu efnisins fyrir bankakerfið. að kynna nemendum helstu hugtök og greiningaraðferðir í rekstrarhagfrœði og stjórn viðskiptabanka. að auka skilning á almennum lögmálum atvinnu- og banka- rekstrar og þeim stjórnunarvanda, sem þar er við að glíma að kynna nemendum grundvallar -hugtök og -aðferðir í bók- haldi til að þeir eigi aðveldara með að skilja rekstur og starf banku sínst að auðvelda nemendum að taka við bókhaldsstörfum í bank- anum. að auðvelda nemendum að skilja bókhaldsskýrslur frá við- skiptamönnum bankanna eða öðrum stofnunum. að auðvelda nemendum skilning á öðrum kennslugreinum í náminu, og auðvelda þeim frekara nám á skyldum sviðum síðar. að kynna nemendum tölvutæknina og gera þeim auðveldara að skilja og tileinka sér hana. að auka aðlögunarhœfni nemenda að nýjungum í tölvu- vinnslu. að auka möguleika nemenda að hafa áhrif á tölvuþróun og beina þátttöku I hönnun nýrra tölvukerfa. að kynna nemendum helstu hugtök og starfsaðferðir skipu- lagsfrœðinnar, til að þeir eigi auðveldara með að skilja upp- byggingu og skipulag banka síns. að auðvelda nemendum að skilja skipulagsheildir og skipu- lagsvinnu, til að þeir geti sjálfir tekið virkan þátt í slíkum \ hlutum. \ I að búa nemendur undir frekara stjórnunarnám seinna í starfi sínu. þjálfun í grundvallaratriðum útreikninga er viðkemur banka- viðskiptum og kynning á undirstöðuatriðum reikningsað- ferða. að auðvelda nemendum úrlausnir flóknari stœrðfrœðiverk- efna og hagnýtingu tölfræðilegra athugana. baugi í bankamálum hverju sinni, eftir því sem tilefni er til. ÖNNUR NÁMSKEIÐ, sem skól- inn heldur eru annars vegar ýmis til- fallandi kynningamámskeið, t.d. um gjaldmiðilsbreytinguna og um hið nýja tölvubókhald bankanna. Hins vegar eru haldin námskeið úti á landi og er það einnig vaxandi þáttur í skólastarfinu. Þannig hefur skólinn haldið námskeið á Akureyri (þris- var), á Selfossi og í Keflavík. Reynt er að ná til sem flestra á viðkomandi landssvæði, annað hvort með efni úr nýliðanáminu eða sémámskeiðun- um. Er stefnt að því að auka þennan þátt verulega, eftir því sem aðstaða er til. í athugun er að koma á sam- starfi skólans annars vegar og bankamanna og skólastofnunar á staðnum hins vegar, þannig að unnt verði að ná yfir meira efni og ná til fleiri bankamanna á hverjum stað. Með slíku fyrirkomulagi mætti kenna eitthvað af framhaldsnáminu á nokkmm stöðum á landinu. ANNAÐ STARF skólans er ann- ars vegar að aðstoða SÍB við ýmis konar námskeiðahald á þeirra veg- um og hins vegar að veita banka- mönnum upplýsingar um hugsan- lega skóla í bankafræðum erlendis. NIÐURSTÖÐUR. Starf skólans er orðið mjög viðamikið og marg- brotið. Skólinn hefur færst mikið í fang, en slíkt hefði ekki verið unnt, nema með góðri samvinnu við ýmsa aðila innan bankakerfisins, sem bæði tilnefna þátttakendur á nám- skeiði (starfsmannastjórarnir) og sem kenna á námskeiðum okkar. Meginhluti kennslunnar er í hönd- um bankamanna. Nú er svo komið að húsnæði skólans er að verða of lítið fyrir þetta mikla starf. Kennslu- stofurnar tvær eru fullsetnar langt fram á dag yfir vetrarmánuðina og þrengsli skapast iðulega á göngum þegar tveir hópar eru að fara og tveir hópar að koma á sama tíma. Þegar mest er umleikis eru sex námshópar starfandi í skólanum, alls um 120 manns. Annað hvort verðum við að láta hér staðar numið í útvíkkun skólastarfsins, eða að fá rúmbetra húsnæði á næstu árum. Á síðasta ári sóttu um 500 banka- menn einhverja fræðslu í skólann, kenndar voru alls um 1100 kennslu- stundir, sem 45 kennararönnuðust. Þorsteinn Magnússon, skólastjóri Bankamannaskólans.

x

Bankablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bankablaðið
https://timarit.is/publication/720

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.