Bankablaðið - 01.12.1981, Síða 5
Á síðustu árum hefur starf skólans
bæði aukist verulega og breyst á
ýmsa lund.
NÝLIÐANÁMIÐ, sem lengi var
meginstarf skólans, er enn við lýði,
en í nokkuð annari mynd. Á fyrsta
starfsári sínu fara nýliðar bankanna í
gegn um nýliðanámið, sem stendur
yfir í rúma tvo mánuði, annað hvort
að hausti eða vori. Námið er í fimm
þáttum: almenn bankafræði, innlán,
útlán, gjaldeyrir og verklegt nám.
Tekin eru próf í hverjum þætti fyrir
sig. Milli 70 til 90 manns ganga í
gegnum þetta nám á hverju ári. Frá
upphafi hafa um 1000 manns stund-
að slíkt nám við skólann.
SÉRNÁMSKEIÐ, fyrir þá sem
lokið hafa nýliðanáminu og nokkra
reynslu hafa, eru haldin af ýmsum
gerðum árlega. Sem dæmi um slík
sémámskeið má nefna: tékkanám-
skeið, sparisjóðsnámskeið, víxla-
námskeið, gjaldkeranámskeið, rit-
aranámskeið og öryggisnámskeið.
Hið síðastnefnda er nýr og vaxandi
þáttur í skólastarfinu. Arið 1981
voru haldin 7 sémámskeið. Milli 150
og 200 manns sækja slík námskeið
árlega.
FRAMHALDSNÁM, fýrir eldri
og reyndari bankamenn, hefur verið
í gangi undanfarin tvö ár. Fyrsti hóp-
urinn, 10 manns, mun útskrifast
núna um áramótin sem „bankafræð-
ingar“, eftir tveggja vetra nám með
bekkjaskipulagi. Þar vom kenndar
ýmsar fræðilegar kennslugreinar,
sem ekki miða beint að þjálfun
manna í ákveðin störf, eins og hin-
um námskeiðunum er ætlað, held-
ur er reynt að víkka sjóndeildar-
hring bankamannsins, gefa honum
sjálfstraust og þroska með honum
dómgreind til að glíma við flóknari
ábyrgðarstörf í banka sínum. Náms-
greinamar em átta talsins: banka-
hagfræði, bankarekstur, bankalög-
fræði og bankabókhald (fjórir
punktar hver) og tölvufræði, skipu-
Iagsfræði, stærðfræði og enska (þrír
punktar hver). Ákveðið var á síð-
asta ári að breyta þessu fyrirkomu-
lagi í það horf, að hafa ekki bekkjar-
skipulag, eins og var með fyrsta hóp-
inn, heldur koma á eins konar
punktakerfi. Þá getur hver og einn
tekið ákveðnar kennslugreinar, þeg-
ar honum hentar og í þeirri röð sem
hann óskar. Sumir munu aðeins taka
ákveðnar greinar og láta sér það
SKÓLA f
HALD O JL
fyrsti hópurinn fær. Á árinu 1981
vom um 50 manns starfandi á slíkum
námskeiðum. Þeir sem lengst em
komnir hafa lokið 4 punktum. Á
þessu skólaári mun skólinn bjóða
upp á framhaldsnámskeið sem veita
alls 13 punkta.
STJÓRNENDANÁMSKEIÐ, fyrir
yfirmenn í hinum ýmsu deildum og
útibúum bankanna, em haldin ann-
að slagið. Þar em tekin til umræðu
ýmis helstu hugtök stjómunarfræða,
til að auðvelda þessum bankamönn-
um að glíma við sín daglegu stjóm-
unarvandamál. Þetta er röð þriggja
námskeiða, Stjórnun I, II og III.
Einn liður í þessum þætti í skóla-
starfinu em námsstefnur fyrir yfir-
menn útibúa landsbyggðarinnar. Þau
eru yfirleitt haldin úti á landi að
haustinu. Þá em einnig haldnar
stöku sinnum umræðu- og fræðslu-
fundir á kvöldin, þar sem tekin em
fyrir málefni, sem em ofarlega á
Þorsteinn Magnússon skólastjóri Banka-
mannaskólans.
nægja, en aðrir munu taka margar
greinar, og ef þeir Ijúka sem svarar
alls 25 punktum, hljóta þeir skírteini
upp á bankafræðingsnám, eins og
Nemendur I. árg. Framhaldsnáms Bankamannaskólans ásamt skólastjóra.
5