Bankablaðið - 01.12.1981, Side 8
frá mismunandi námsbrautum. Það
verður því tæplega hægt að binda
nýráðningar við ákveðna áfanga í
námi, þó stefnt sé að lágmarks kröf-
um. Þessi sjónarmið koma hvað best
í ljós við val starfsfólks í ábyrgðar-
stöður, því þá er hvað þýðingarmest
að starfsmaður geti byggt á hald-
góðri menntun og reynslu í starfi.
Til þess að þessir tveir þættir teng-
ist - menntun og reynsla -, þurfa
bankar að gefa starfsfólki sínu sem
flest tækifæri til að kynnast grund-
velli bankaþjónustunnar og tileinka
sér nýjungar, sem áhrif hafa á
breytta starfshætti.
En á hvem hátt koma bankar og
starfsmenn þeirra til móts við þessi
grundvallar sjónarmið í þjálfunar og
fræðslustarfi bankamanna?
Það er erfitt að svara þessari
spurningu í stuttu máli. Almennt má
segja að stjórnendur og starfsmenn
séu innilega sammála um að styrkja
þessa tvo þætti - menntun og
reynslu —, með það fyrir augum að
gera starfsmennina að hæfari banka-
mönnum og bankana að betri þjón-
ustustofnunum. Eitt dæmi um þessa
sameiginlegu stefnu allra banka-
manna er Bankamannaskólinn, sem
nú hefur starfað í rúm tuttugu ár
með auknum umsvifum á hverju ári.
Viðhorf meðlima S.Í.B. og
stefnumótun á starfsþjálfunar- og
fræðslumálum komu skýrt fram á
þingi S.Í.B. dagana 5. og 6. apríl
1979. í ályktun þingsins um fræðslu-
mál sagði m.a.:
,, Pafl er stefna S.l.B. að stuðla að
menntun bankamanna með það fyrír
augum að allir starfsmenn bankanna
eigi kost á frœðslu á sem flestum svið-
um bankastarfseminnar.
Hver starfsmaður, sem byrjar starf
í banka, skal eiga þess kost að stunda
almennt undirbúnings- og kynning-
arnám er varðar flestar greinar starfs-
ins - byrjendafrœðslu - og hafi rétt
til að taka þátt í sérnámi síðar, sem
nauðsynlegt telst til að stunda vanda-
söm bankastörf.
Með vandaðri byrjendafrœðslu
skal stefnt að auknu áliti og virðingu
fyrir bankastarfinu, sem leiðir til
þess, að bestu og hœfustu starfs-
mennirnir velja sér bankastarfið sem
œvistarf.
Fjölbreytt framhaldsfrœðsla, sem
tekur við að byrjendafræðslu lok-
inni, skal standa öllum bankamönn-
um opin.
S.I.B. telur það mikilvœgt, að
stjórnendur bankanna og fulltrúar
bankastarfsmanna vinni sameigin-
lega að mótun stefnu í frœðslumál-
um. Stefnan skal fyrst og fremst
byggja á reynslu af Bankamanna-
skólanum ogmiðast við íslenskar að-
stœður. Eðlileg framþróun er œski-
legri en stökkbreyting í átt að erlendri
fyrirmynd, en engu aðsíðurmá margt
lœra af reynslu frœndþjóða okkar í
þessum efnum.
Stefnt skal að því að öll bókleg
fræðsla bankamanna farifram á veg-
um Bankamannaskólans, sem
stjórnað er sameiginlega af fulltrúum
starfsmanna og vinnuveitenda. Verk-
leg fræðsla verði skipulögð afBanka-
mannaskólanum, en framkvæmd á
hverjum vinnustað fyrir sig eða í æf-
ingastöð Bankamannaskólans.“
í samræmi við framangreinda
þjálfunar- og fræðslustefnu hafa
stjómendur bankanna og félags-
menn S. í. B. áréttað nokkur atriði úr
þessari ályktun með því að taka inn í
kjarasamning starfsmanna bank-
anna ákvæði sem ætluð eru til að
tryggja eflingu þessa starfs. Mun ég
nú rekja þau ákvæði síðasta kjara-
samningsins, sem varða þjálfunar-
og fræðslustarf bankamanna.
í kafla 10.1.1. er svohljóðandi á-
kvæði um fullorðinsfræðslu og end-
urmenntun starfsmanna:
,,Aukin verði fullorðinsfræðsla og
endurmenntun fyrir starfshópa og
starfsmenn. skal skólanefnd Banka-
mannaskólans hafa forgöngu um
námskeið á sem flestum sviðum.
Einnig skal leggja áherslu á sérþjálf-
un.“
Ákvæði þessarar greinar ná til
allra fræðilegra og verklegra sér-
námskeiða sem bankamenn hafa
þörf fyrir á starfsferli sínum. Nám-
skeið þessi eru almenns eðlis, þann-
ig að allar lánastofnanir eiga að geta
sent starfsmenn á námskeiðin. Það
er svo í verkahring skólanefndar
Bankamannaskólans að velja og
undirbúa námskeiðin. Fjöldi þeirra
og fjölbreytni fer síðan eftir ýmsu,
s.s. nýjungum í bankarekstri ofl.
í kafla 10.1.2. er e.t.v. þýðingar-
mesta ákvæði kjarasammngsins, sem
fjallar um fræðslumál, en þar segir:
,,Aðilar eru sammála ttm, að starf-
semi Bankamannaskólans verði auk-
in og efld í samræmi við samning um
skólann. Fulltrúar S.I.B. í stjórn
skólans verði tveir. “
Vilji aðilanna er hér ótvíræður.
Þeir vilja báðir efla og auka það starf
sem fram fer á vegum Bankamanna-
skólans. Tel ég þetta viðurkenningu
a þeirri starfsemi sem fram hetur far-
ið á vegum skólans og skýr ósk um
eflingu hennar. Mun ég síðar nefna
dæmi um umfang starfsins, sem fram
fer í Bankamannaskólanum.
Þá er næst að nefna ákvæði í kafla
11.2.5., en þarsegir:
,,Nýir starfsmenn skttlit Ijúka námi
við Btinkamannaskólann nema ttnn-
að sé ákveðið. “
Er hér átt við hin góðkunnu ný-
EINFÖLD - ÞÆGILEG - HENTUG
CEE* BORGARTÚNI20 - SÍMI26788
8