Bankablaðið - 01.12.1981, Side 13

Bankablaðið - 01.12.1981, Side 13
vinnu. Vinnan verður markvissari, auk þess ætti að vera auðveldara að velja milli vinnuaðferða við áætlana- gerðina, þegar umræður um alla möguleika hafa farið fram. Undir- búningnum má skipta í þrjá aðal þætti. Fjórði liðurinn ((d) eftirlitið) tengist hinum án þess að vera beinn undirbúningur. En árangur af áætl- anagerðinni hámarkast tæplega, nema að virkt eftirlitskerfi sé til staðar innan bankans. Þess ber þó að geta, að endurskoðun á því er nauðsynleg, ekki síður ef efasemdir vakna um gagn þess við áætlana- gerðina. Lítum þá nánar á þessa þætti: a) Stigbundin kynning á samsetn- ingu og uppbyggingu áætlana- gerðarinnar og hvers vegna hennar er þörf. Tilgreina þarf ábyrgðina á hverju stigi fyrir sig og starfssvið hvers og eins. Setja verður reglur um tíma- mörk. Ný vinnubrögð skulu kunngerð hverju sinni. b) Athugun sem gefur til kynna stöðu bankans, umhverfi hans í nútíð sem framtíð og aðra þætti, sem snúa að rekstri hans, t.d. tækifæri og hættu- merki. c) Markmiðssetning um fram- kvæmdir á fjármagnsúthlutun, tæknivæðingu, stjórnun o.þ.h. í þessu sambandi er vert að íhuga viðhorf almennings til bankarekstrarins. d) Eftirlit á skipulagsheildinni gagnvart rekstrinum, mark- miðssetningu hverju sinni og ieiðum til að uppfylla mark- miðin. Verklýsing er nauðsynleg hvað varðar fyrsta þáttinn. Vinnurásinni skal lýsa í smá atriðum. Stöðuga endurskoðun verður að framkvæma á vinnurásinni vegna tilfallandi breytinga. Hún auðveldar þannig lausn vandamála og er hjálpartæki fyrir nýja starfsmenn. Hún styrkir þar með áætlanagerðina sem stjóm- tæki. Varðandi annan liðinn, sem er umhverfisgreining og stöðumat, þá verður að liggja fyrir vitneskja um aðstæður utan við sjálfan bankann og hvernig ber að haga rekstrinum með tilliti til þeirra. Út frá þessu eru sett- ar fram ákveðnar forsendur og leið- beiningar. framvindan í áætlana- gerðinni ákvarðast síðan af þessum forsendum. Þær byggjast meðal annars á rannsóknum á samkeppnis- aðstöðu, efnahagsástandi, fyrirséð- um félagslegum og stjórnmálalegum breytingum, tækniþróun, löggjöf og reglugerðum. Inn í þessa mynd mættu einnig koma hugleiðingar um óvissu þætti. Út frá því ákvörðun um mat á þeim, til að nálgast ennfrekar hugsanlega útkomu. Stöðumatið byrjar með athugun á innri byggingu bankans, til að skil- greina styrk og veikleika hans. Með þessu er reynt að meta hæfni hans í að uppfylla ákveðin markmið. At- hugunin nær m.a. yfir stjómunar- svið, skipulag, þjónustu, landfræði- lega stöðu, vexti og gjaldskrá, starfs- mannamál o.þ.h. Markmiðssetningin er vafalaust erfiðust í áætlanagerðinni. Vanda- málið er að móta kerfi fyrir framtíð- ina. í upphafi verður að gera upp- skurð á bankanum og starfsemi hans. Raða saman skyldum mark- miðum. Markmiðssetningin ræðst síðan af tilganginum hverju sinni. Markmiðin endurskoðast reglulega, þar sem íhugað er, hvort breytingar á umhverfi og innri byggingu bank- ans kalli á nýjar starfsaðferðir. Hvað varðar eftirlitið, þá er það ekki síður mikilvægt en áður taldir þættir. Virkt eftirlit eykur á líkur góðrar afkomu, auk þess má vænta raunhæfari útkomu í áætlanagerð- inni. Áætlanagerðin sjálf stuðlar síðan að því, að hagur fyrirtækisins styrkist ennfrekar. Það efhr fjárhags- stöðuna, svo að viðhald og uppbygg- ing rekstrarins er auðveldari. Það stjórnkerfi, sem notað er innan stofnunar, er tæki til að skapa þenn- an rekstrargrundvöll. Innra eftirlit ásamt endurskoðun, sem er vissulega hluti innra eftirlits, er einnig beitt í þessu augnamiði, þá er markmiðið auk þess að vernda eignir bankans. Til að eftirlitskerfið virki sem réttast, þá er endurskoð- unin byggð á sjálfstæðu mati. án þess ao vera háð boðum og bönnum stjórnenda. Þær aðferðir sem stuðs er við verða að gefa rétta mynd af rekstri stofnunarinnar. T.d. er nauðsynlegt að hafa hugmynd um tilfærslur sjóða. í hve ríkum mæli þeirra er aflað á einum stað og síðan ráðstafað á öðrum. Upplýsingar um viðskiptavini bankans ættu einnig að liggja fyrir. Hvemig samsetning inn- og útlána þeirra er. Hvort einhver af við- skiptamönnum hefur óeðlilega mikil útlán, og þá jafnvel mjög ódýr í sam- anburði við innlán. Tilgangurinn með eftirlitinu er því að verulegu leyti bundinn við athug- un á hugsanlegum veikleika í stofn- uninni. Þá ætti það að leiða í ljós, hvort sérstakra aðgerða er þörf, t.d. gæti aukning innlána verið æskileg. í því sambandi mætti spyrja: a) Ef tækifæri gefst til að laða til bankans ný innlán, hve mikið ætti að greiða fyrir þau? b) Hvernig á haga lánveitingum? Hvað varðar fyrri liðinn, er rétt að taka til greina allan tilfallandi kostn- að vegna öflunar innlána, auglýsing- ar o.þ.h. Seinni liðurinn nær til ákvörðunar á útlánaformi. Það ákvarðast í ljósi kostnaðarins við að laða ný innlán, sem fjármagna útlán- in. Yfirgripsmiklar athuganir á þess- um þáttum em tæpast gerðar hér á landi, þar sem bankar eru háðir ákvörðunum Seðlabankans um verðlagningu, ásamt samnings- bundnum framlögum til atvinnu- rekstrar og ríkis. Þrátt fyrir það, er vert að gefa gaum að þessu ,,jaðar“ (marginal) mati sjóða. Vitneskjan beinir athyglinni að uppsprettu ódyrara ijármagns, en veltiinnlán eru ódýrasti möguleikinn fyrir íslenska banka í dag. Augljóst er að tæpast verður þessi tegund innlána aukin, vegna ríkjandi ástands í efna- hagsmálum, sem fellst í mikilli verð- bólgu. Á móti koma lágir vextir veltiinnlána, sem gera þau enn óhagkvæmari og síður fýsileg. Mæling á árangri Bankinn ætti að íhuga einhvers konar mælitæki, sem leiða í ljós ár- angur rekstrarins. Eftirtaldir mæli- kvarðar koma til greina: A. Aukning í: 1) Tekjum 2) Tekjum á einingu t.d. út- lána, einstakra viðskiptaað- ila og þjónustuliða. B. Afraksturaf: 1) Áhættu eignum (útlánum) 2) Heildareignum C. Eiginfjárhlutfall: 1) Eigið fé/áhættueignir (útlán) 13

x

Bankablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bankablaðið
https://timarit.is/publication/720

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.