Bankablaðið - 01.12.1981, Page 16
Sem dœmi um kennslutilhögun í stjornunarfrœðum má nefna, að nem-
endur voru látnirtaka fyrirhinarsjö jiekktustjórnunaraðferðirogkynna
jner fyrir hinum. Hér á eftir er sýnishorn af jressari vinnu. Hér erfjallað
um stjórnunarstíl VII, það er hinn fullkomni stjórnandi að mati bókar-
höfundar. Notuð var bókin: Helstu sljórnunaraðferðir (Grundbog i
lederudvikling).
aðurinn á bak við allt
Stjórnunarstíll VII er síðasta til-
raun sérfræðinga á sviði skipulags og
stjórnunarmála til að skapa algóðan
stjórnanda úr því nýjasta og árang-
ursríkasta, sem komið hefur fram í
þessum greinum.
Þar sem þessi stjómandi er
ímyndaður, ætla ég að leyfa mér að
skapa hann blint eftir leikreglum
fagsins og hnoða úr honum hreint
ægilega góðan jólasvein. Þeir mann-
legu kostir sem prýða hann eru með-
al annars: skapíesta, tillitsemi, ósér-
hlífni, sjálfstæði gagnvart umhverf-
inu, leiðtogahæfileikar, hreinskilni
o.s.frv. Stjórnandann skulum við
nefna Sveinbjöm, og kalla hann
Svenna. Svenni er fljótur að ,,fatta“
móralinn í deildinni eða fyrirtækinu
sínu. Hann kemst fljótt að því hverj-
um hæfileikum hver einstaklingur er
gæddur og virkjar hann í samræmi
við það.
Svenni notar ákveðnar aðferðir til
þess að koma markmiðum sínum í
framkvæmd. Áður en ég byrja að
telja þær upp, finnst mér rétt að
koma sjónarmiðum Svenna fram
gagnvart undirmönnum sínum.
Hann lítur gjarnan á starfsmenn sína
sem ákveðin mannleg verðmæti, þar
sem framlag hvers og eins, hvort
sem það er í formi dugnaðar eða
hugmyndaflugs, er ákveðinn vara-
sjóður sem nýtist, ef starfsfólk hans
er ánægt. Út frá þessu ályktar
Svenni að góð hópvinna sé sú um-
gjörð, sem heppilegust sé, þar sem
hreinskilni og tillitsemi innan skyn-
samlegra marka sé höfð að leiðar-
ljósi. Svenni reynir ætíð að leysa
vandamálin jafnóðum og þau koma
upp og leggur áherslu á greiðan
fréttaflutning, jafnt innávið sem út-
ávið í deildinni.
Setjum svo að Svenni sé nýráðinn
deildarstjóri í banka og hefur verið
tekinn framfyrir Bjössa, sem hefur
þjónað stofnuninni dyggilega í þrjá-
tíu ár. Bjössi, sem óhjákvæmilega
verður samstarfsmaður Svenna, er
auðvitað afskaplega sár, og þar sem
allir í deildinni þekktu gæðamann-
inn Bjössa af öllu góðu, er viðmótið í
garð Svenna svolítið kuldalegt í
byrjun.
En við skulum ekki örvænta því
að Svenni veit undireins hver ástæð-
an er. Hann ræðst því strax á vanda-
málið. Svenni ákveður að bjóða
Bjössa og frú til kvöldverðar. Þegar
búið er að borða þríréttaðan kalor-
íukvöldverð og frúrnar farnar að
tala um handavinnu og barnaupp-
eldi kemst Svenni að því, að þeir
Bjössi eiga sér sameiginlegt áhuga-
mál. Þeir hafa báðir mjög gaman að
spila golf. Síðan hafa Bjössi og
Svenni spilað saman golf á sunnu-
dögum og frúrnar þeirra eru komnar
saman í saumaklúbb.
Varðandi umbætur í deildinni
flanar Svenni ekki að neinu. Hann
OSTER
RAFMAGNSPANNA
Nýja rafmagnspannan frá Oster
gerir þér mögulegt aö sjóöa, steikja og baka
án þess aö þurfa aö standa yfir pönnunni allan
tímann. Meö forhitun og hitajafnara geturöu
eldaö alltfrá kjötréttum til pönnusteiktra
eftirrétta - aö ólgeymdum pönnukökum -
á næstum því sjálfvirkan hátt.
Komu og skoðaðu gripinn í verslun okkar!
16