Jazzblaðið - 01.12.1949, Blaðsíða 9
Fyrati K. K.-aextetinn:
Frá vinstri: Guðmund-
ur Vilbergsson trompet,
Kri8tján Kristjánsson
klarinet og altó. Svavar
Ge8ts tromma. Trausti
Thorberg guitar. Stein-
þór Steingrímsson píanó
og Hallur Símonarson
bassi.
i i
Ottó Cesana. Á Julliard var stór skóla-
hljómsveit og lék Kristján þar á klari-
net. Á þessu tímabili gafst honum kost-
ur á að sjá og hlusta á alla fremstu
jazzleikara Bandaríkjanna, m.a. hlustaði
hann mörgum sinnum á Duke Ellington.
Af stórum hljómsveitum finnst Kristjáni
mest koma til hljómsveitar Stan Kenton
og af smáhljómsveitum til sextets
Charlie Ventura. Einnig finnst honum
hljómsveitir Boyd Raeburn, Woody Her-
man og Ray McKinley mjög skemmti-
legar og af því má marka, að hvaða
tegund jazztónlistar hugur hans hneyg-
ist helzt til. Af einleikurum finnst hon-
um Charlie Parker beztur. — Kristján
kom heim frá Bandaríkjunum í ágúst
1947 og stofnaði hann þá K. K.-sextet-
inn og lék hann í samkomusal Mjólkur-
stöðvarinnar um veturinn. í hljómsveit-
inni voru: Guðm. Vilbergsson trompet
og harmonika, Hallur Símonarson bassi,
Steinþór Steingrímsson píanó, Svavar
Gests trommur, Trausti Thorberg guitar
og Kristján lék á klarinett og altó-saxa-
fón, auk þess sem hann söng með hljóm-
sveitinni. Þær breytingar urðu á hljóm-
sveitinni um veturinn, að Gunnar
Ormslev (tenór-saxafónn) kom í stað
Trausta og Kristján Magnússon í stað
Steinþórs á píanó. K.K.-sextettinn varð
strax mjög vinsæll og þar var alltaf
reynt að bjóða fólki upp á eitthvað
nýtt. Þegar Mjólkurstöðin hætti um,
vorið leystist hljómsveitin upp. Um
sumarið sigldi Kristján aftur til Banda-
ríkjanna og dvaldist þar um tveggja
mánaða skeið. Þegar hann kom til ís-
lands aftur, réðist hann í hljómsveit
Carl Billich að Hótel Borg og lék þar í
tæpt ár, en þá stofnaði hann nýjan
K, K.-sextett, sem leikur nú að Röðli.
1 hljómsveitinni eru Kristján Kristjáns-
son klar. og altó-saxafón. Einar Jónsson
trommur, Baldur Kristjánsson píanó,
Jón Sigurðsson trompet, Ólafur Péturs-
son tenórsax. og harmonika og Vil-
hjálmur Guðjónsson klarinett og altó-
ýaxxtUiS 9