Jazzblaðið - 01.12.1949, Side 13
Jimmy situr við píanóið og fer yfir útsetningu af
nýju lagi, sem hann hefur samið.
og Bannið kom, byrjaði að
rofa til fyrir Jimmy.
Þetta voru æfintýraríkir
tímar, flestir næturklúbb-
arnir voru undir umsjá f jár-
glæframanna, sem borguðu
lygilega háar upphæðir fyr-
ir skemmtikrafta. Jimmy
varð ekki útundan á þessum
uppgripatímum músíkanta.
Hann kynntist Duke Ell-
ington um þetta leyti. „Ég
samdi þá revíuna fyrir Cot-
ton klúbbinn“, sagði Jimmy,
„og við höfðum ágætis
negrahljómsveit, sem átti
að leika, en enginn meðlim-
anna gat lesið nótur, svo að
við urðum að láta þá fara
og ég leitaði að annarri
hljómsveit“. — Jimmy fann
Duke í leikhúsi nokkru og
fékk hann forstjóra Cotton
klúbbsins til að ráða þá
þangað. Jimmy minntist þess, að Sonny
Greer og Bubber heitinn Miley voru í
hljómsveit Duke.
„Þegar hljómsveitin kom í klúbbinn
lék hún svo mikinn jazz, að forstjórinn
ætlaði af göflunum að ganga. Hann kom
til mín og sagði, að ég yrði tafarlaust
að koma þeim út. Ég taldi um fyrir
honum og hljómsveitin varð áfram, og
átti hún brátt eftir að vekja alheims
eftirtekt og frægð“.
Árið 1928 samdi McHugh fyrsta lag-
ið, sem frægð hlaut, „I can’t give you
anything but love“, Það var samið við
revíuna „Blackbirds of 1928“, en litlu
munaði, að lagið næði ekki frumsýn-
ingunni. Will Vodery, sem útsetti fyrir
revíuna, dró fram á síðustu stundu að
útsetja lagið, en í jámbrautarlestinni
á leiðinni á frumsýninguna, lét hann
loks verða af því. En Jimmy var farinn
að kynnast hinum óútreiknanlegu hátt-
um músíkanta, svo að hann kippti sér
ekki upp við þetta.
Þegar Jimmy samdi revíuna „Hello
Daddy“, notaði hann hljómsveit Ben
Pollack og var hann einn hinna fyrstu
til að nota jazzhljómsveit í revíunum.
Hann samdi einnig rSvíuna „Ziegfeld
midnight follies", en hljómsveit Paul
Whiteman lék þar og átti Paul engin
orð til yfir hinar meistaralegu útsetn-
ingar á lögum McHugh, en þær gerði
ungur maður, sem sagðist heita Bill
Still. Hann varð síðar þekktur undir
nafninu William Grant Still, eitt fræg-
asta tónskáld Bandaríkjanna. Tommy
Dorsey lék í hljómsveitinni, sem var í
$a~LUii 13