Musica - 01.10.1948, Síða 9
á ári, en 'þar reisti Mjómsveitin sér hurðarás um öxl,
og var þá farið í að fá hingað sæn^kan gítarsnilling,
Nils Larson, sem annast skyldi, næstu hljómleika.
Kom hann um ‘haustið og hélt nokkra hljómleika á
vegum hljómsveitarinnar. Ennfremur lék 'hann í út-
varp og á nokkrum stöðum hér sunnanlands. Var þetta
nýstárleg skemmtun, því að hér hafði aldrei heyrzt
slík spilamennska á gítar, nema af plötum útvarpsins,
en mjög lék forvitni á að sjá hvernig hægt væri að
gera slíkar kúnstir á þetta hljóðfæri, sem allflestir hér
þekkja og margir handleika, en af lítilli getu miðað
við snillinga hljóðfærisins.
I byrjun ársins 1947 fékk svo h'ljómsveitin nýja for-
ustu, þar sem fráfarandi stjórn baðst undan endur-
kosningu. Enda hafði formaður þá setið í 2 ár og
annar meðstj. allt frá byrjun (Sverrir Kjartansson).
Halldór Magnússon var kosinn formaður og meðstj.
Jón K. Jónsson og Karl Sigurðsson, en Karl hafði sagt
af sér ritarastörfum 1945. Var nú unnið að því að
haldalhljómleika næsta vor, Ihvað tókst í Trípólí húsinu
á melunum 25. apríl.
Var nú efnisskránni skipt í 4 kafla. Fyrst lék
kvartett, síðan var gítarsóló, þá tríó og síðan hljóm-
sveitin. Leikin voru lög eftir ýmsa innlenda og er-
lenda höfunda, en gagnrýni birtst engin, enda engir
blaðamenn, þeim h;vfði ekki verið boðið nógu ræki-
lega.
Á þessu ári (1947) eignaðist M.H.R. allmikið nótna-
safn, sem keypt var frá Ítalíu af Páli Pálssyni, og er
þar í a'llmikið af tónverkum gömlum og nýjum. Síð-
ast liðinn vetur kaus 'hljómsveitin sér enn nýja stjórn.
Formaður varð Karl Sigurðsson og meðstjórnendur
Tage Ammendrup og Nói Bergmann.
Hófst nú undirbúningur undir næstu hljómleika
og urðu þeir í Austurbæjarbíó 19. marz og 1. apríl.
Ennfremur voru haldnir hljómleikar í Keflavík og
Hveragerði, en síðan var leikið í útvarpið. Annaðist
hljómsveitin tvo þriðju en M.A.J.-tríóið einn þriðja
efnisskrárinnar.
Nú voru hljóðfæráleikararnir 20 og 'hljómsveitin
þannig skipuð hljóðfærum: 4 I. mandólín, 5 II. mandó-
lín, 2 mandólur, 7 gítarar, 1 mandó-celló og 1 kontra-
bassi. Var þessi skipan eins og á næstu hljómleikum
á undan, en þá voru hljóðfæraleikarar færri. Nú í
haust eru æ'fingar að hefjast að nýju eftir sumarfríið,
og er ætlunin að halda afmælishljómleika í nóvember.
ber.
Þetta er nú saga M.H.R. í höfuðatriðum frá stofn-
un, og má af henni sjá að starfið hefur verið mikið
og glæsilegt. Það er meira átak en í fljótu bragði virð-
Núverandi stjórn M.H.R. og hljómsveitarstjórinn, en þeir fjór-
menningar skipa jafnframt ,,tremolo"-kvartett M.H.R. 1. röð:
Haraldur Guðmundsson hljómsveitarstjóri og Tage Ammen-
drup, rit. 2. röð: Nói Bergmann gjaldk. og Karl Sigurðsson form.
ist, að halda árlega hljómleika með eintómum „ama-
törum“, þar sem öll störf eru unnin í aukavinnu.
Haraldur Guðmundsson stjórnandi M.H.R. er ekki
getið að ráði í þessu söguágripi, en það er nú samt
svo, að hann á heiðurinn af 'hverju atriði sem áorkað
hefur verið á æfingum og hljóm'leikum, og hann er
alltaf hinn góðlyndi félagi, sem öllum er vel við, og
tónlistarhæfileikum hans er það mest að þakka, hvað
áunnizt hefur.
Hlutverk M.H.R. er það, að veita áheyrendum og
íðkendum mandólín-tónanna ánægjustundir, er það
tvímælalaust þroskandi til aukinnar tónmenningar.
Megi hin íslenzka þjóð lx:ra gæfu til þess að njóta
þeirra unaðssemda um alla framtíð.
Spilaðit ávallt eins og hlýddi á þig meistari.
Schuman.
MUSICA 9