Musica - 01.10.1948, Blaðsíða 18
Hljóðfœri og hljóðfceraflo\J{ar II.
Fiðlan og afbrigði hennar
Fá hljóðfæri hafa haft jafn marga fræga kennara
og fiðlan, menn sem hafa gert nútímamönnum það
mögulegt, að læra jafn miikið á einu ári og áður var
hægt að læra á tveim, með því að binda kennsluna í
kerfi, sem voru og eru byggð á reynzlu þeirra.
Við skulum til gamans líta yfir þennan hóp og
taka úr no'kkra hinna þekktustu.
Italarnir: Giardini, Pugnani, Viotti, Geminiani,
Nardini, Locatelli, Frakkarnir: Anet, Leclair, Krautzer,
Baillot, Rode, Þjóðverjarnir: Graun, Benda, Stamitz,
Wilhelm Cramer og af yngri meisturum má nefna:
Paganini, Spóhr, Sivori, de Beriot, Ernest, Vieuxtemps,
Ferdinand David, Massart, Sarasate, Wieniawsky,
Auer, Fleifetz, Elman, Kubelik, Kreisler o. m. fl.
Joíepb Guametius fecu 4, 1
Crcmonl anno, 17 IHS J
Svona eru ósviknar Guarnerius- fiðlur merktar.
Enda þótt seinni tíma menn hafi getað notfært sér
reynzlu eldri kynslóðanna, er þó eikki þar með sagt,
að nútímamenn hafi uppá að bjóða betri fiðluleikara
en til voru áður.
Það er talið að Paganini hafi náð því hámarki, sem
hægt er að ná í fiðluleik, en við erum svo óheppin
að engin plata er til með honum svo hægt sé að segja
um þetta með vissu, eins og við getum t. d. dæmt um
söng Caruso.
Og á öðru sviði stöndum við mönnum miðaldanna
að baki, en það er í fiðlusmíði.
Það eru sérstaklega þrír menn, sem í augum fiðlu-
smiða eru guðum lí'kir, en það eru Italarnir Amati,
Guarneri og Stradivari, sem allir bjuggu í Cremona
á Italíu. Einnig >má nefna Steiner, fiðlan hans er enn
búin til og álitin komast nst þessum þremur.
Boginn.
Boginn, sem upþhaflega var notaður var líkur vopn-
inu með sama nafni. Seinna var núverandi lag fund-
ið upp og hárin hert með Ktilli skrúfu, sem var kom-
ið fyrir á oddinum.
Eins og sagt var í siðasta hefti eru fimm hljóðfæri
í fiðlufjölskyldunni og eru þau öll notuð í nútíma-
sinfoniuhljómsveitum. Auk þess sem nota má þau öll
í hljómsveitum, eru þau auk þess notuð í tríói, kvart-
ett og kvintett.
Strokkvartett er óumdeilanlega einn fínlegasti þátt-
ur hljómlistarinnar og fyrir kvartett hafa verið sam-
in mörg af þekktustu verkum tónlistarinnar.
Fyrir utan gildi þessarar tónlistartegundar gefur
hún einnig leikendum hina sönnu leiknautn og flestir
þekktir hljóðfæraleikarar leika í kvartett í frístundum
sínum til að hvíla taugarnar og njóta tónlistarinnar.
Við munum í næstu grein lýsa nánar hinum hljóð-
færunum í fjölskyldunni.
18 MUSICA