Musica - 01.10.1948, Page 19
Richard Tauber
dóinn
Eins og áSur var skýrt frá í síðasta tölublaði Musica
dó hinn vinsæli tenórsöngvari, Riöhard Tauber, hinn
8. janúar að heimili sinu í London.
Tauber hafði verið veikur í lengri tíma og skömmu
áður en hann dó hafði verið getður á honum míkill
uppskurður.
Tauber varð 55 ára.
Tau'ber fæddist í Linz í Austurríki 1893, og var
faðir hans leikhússtjóri. Snemma varð vart tónlistar-
gáfna hjá hinum unga Tauber og var hann settur í
tónlistarskólann í Frankfurt þar sem hann lagði stund
á tónfræði og hljómsveitarstjórn. En hann sneri sér
brátt að söngnum og fyrsta hlutverk hans var hlutverk
Tamino í „Töfraflautunni", er hann söng í leikbúsi
föður síns. Hlutverk Taminos færði honum þegar sig-
ur, og var hann þegar ráðinn til söngleikahússins í
Dresden og þar var hann í fimm ár.
Frá Dresden fór Tauber til Berlínar og svo um alla
Evrópu. í Wien hitti hann Franz Lehar, en óperettu
hans „Brosmilda land“ uppfærði Tauber ekki sjaldnar
en 2500 sinnum um æfina.
Tauber varð að flýja Þýzkaland, er Hitler komst til
valda, eins og fleiri listamenn, fluttist til Bretlands og
gerðist brezkur borgari. Hann gerðist afar athafna-
samur í Bretlandi, stjórnaði m. a. The London Pnil-
harmonic og hafði eigið söngleikj afélag, er nefndist
„Old Chelesea".
Tauber giftist tvisvar, fyrri kona hans hét Charlotta
Vancoti, en þau skildu árið 1931, og fimm árum seinna
giftist hann aftur Diönu Napier.
Kirkju- og söngmót
Snæfellsnesprófastsdæmis
Kirkju- og söngkóramót Snæfellsnesspró'fastsdæmis
var haldið í Stykkishólmi laugardag og sunnudag 11.
og 12. sept. Hófst það á laugardaginn kl. 8,30 með
guðsþjónustu í kirkjunni.
Upphaflega var gert ráð fyrir að séra Magnús Guð-
mundsson, prestur í Ólafsvík prédikaði, en sökum
veikinda gat hann ekki sótt mótið, en ræðu hans flutti
sr. Þorsteinn Sigurðsson Staðarstað, en sóknarprestur P
inn í Stykkishólmi þjónaði fyrir altari.
FIÐLAN
a) bakið, b) dekkið, c) stóllinn, d) sálin, f) gripbrettið, g) söð-
ullinn, x-y) hljóðgötin, d) strengjahaldarinn, u) skrúfumar.
Á sunnudagsmorgun var fjölsótt barnaguðáþjónusta,
sem sr. Þorgnímur annaðist, en sr. Sigurbjörn Á. Gísla-
son, sem heimsótti mótið, talaði einnig við börnin.
Hámessa var eftir hádegi og steig sr. Sigurbjörn í stól-
inn í stað prófastsins sr. Jósefs Jónssonar, Setbergi, sem
ekki gat mætt vegna veikinda. Þeir sr. Þorsteinn L.
Jónsson, Söðulsholti og sr. Sigurður Lárusson þjónuðu
fyrir altari, en auk þess tók sá síðarnefndi gesti til
altaris, og var altarisgangan fjölmenn.
Sfðar um daginn flutti sr. Þorsteinn L. Jónsson er-
indi í samkomuhúsinu um bænina, en hún var aðal-
viðfangsefni mótsins. Var þar húsfyllir.
Kl. 6 um kvöldið hófst svo söngmót kirkjukóranna.
Setti formaður Kórasambandsins, sr. Þorgrímur Sig-
MUSICA 19