Musica - 01.10.1948, Qupperneq 19

Musica - 01.10.1948, Qupperneq 19
Richard Tauber dóinn Eins og áSur var skýrt frá í síðasta tölublaði Musica dó hinn vinsæli tenórsöngvari, Riöhard Tauber, hinn 8. janúar að heimili sinu í London. Tauber hafði verið veikur í lengri tíma og skömmu áður en hann dó hafði verið getður á honum míkill uppskurður. Tauber varð 55 ára. Tau'ber fæddist í Linz í Austurríki 1893, og var faðir hans leikhússtjóri. Snemma varð vart tónlistar- gáfna hjá hinum unga Tauber og var hann settur í tónlistarskólann í Frankfurt þar sem hann lagði stund á tónfræði og hljómsveitarstjórn. En hann sneri sér brátt að söngnum og fyrsta hlutverk hans var hlutverk Tamino í „Töfraflautunni", er hann söng í leikbúsi föður síns. Hlutverk Taminos færði honum þegar sig- ur, og var hann þegar ráðinn til söngleikahússins í Dresden og þar var hann í fimm ár. Frá Dresden fór Tauber til Berlínar og svo um alla Evrópu. í Wien hitti hann Franz Lehar, en óperettu hans „Brosmilda land“ uppfærði Tauber ekki sjaldnar en 2500 sinnum um æfina. Tauber varð að flýja Þýzkaland, er Hitler komst til valda, eins og fleiri listamenn, fluttist til Bretlands og gerðist brezkur borgari. Hann gerðist afar athafna- samur í Bretlandi, stjórnaði m. a. The London Pnil- harmonic og hafði eigið söngleikj afélag, er nefndist „Old Chelesea". Tauber giftist tvisvar, fyrri kona hans hét Charlotta Vancoti, en þau skildu árið 1931, og fimm árum seinna giftist hann aftur Diönu Napier. Kirkju- og söngmót Snæfellsnesprófastsdæmis Kirkju- og söngkóramót Snæfellsnesspró'fastsdæmis var haldið í Stykkishólmi laugardag og sunnudag 11. og 12. sept. Hófst það á laugardaginn kl. 8,30 með guðsþjónustu í kirkjunni. Upphaflega var gert ráð fyrir að séra Magnús Guð- mundsson, prestur í Ólafsvík prédikaði, en sökum veikinda gat hann ekki sótt mótið, en ræðu hans flutti sr. Þorsteinn Sigurðsson Staðarstað, en sóknarprestur P inn í Stykkishólmi þjónaði fyrir altari. FIÐLAN a) bakið, b) dekkið, c) stóllinn, d) sálin, f) gripbrettið, g) söð- ullinn, x-y) hljóðgötin, d) strengjahaldarinn, u) skrúfumar. Á sunnudagsmorgun var fjölsótt barnaguðáþjónusta, sem sr. Þorgnímur annaðist, en sr. Sigurbjörn Á. Gísla- son, sem heimsótti mótið, talaði einnig við börnin. Hámessa var eftir hádegi og steig sr. Sigurbjörn í stól- inn í stað prófastsins sr. Jósefs Jónssonar, Setbergi, sem ekki gat mætt vegna veikinda. Þeir sr. Þorsteinn L. Jónsson, Söðulsholti og sr. Sigurður Lárusson þjónuðu fyrir altari, en auk þess tók sá síðarnefndi gesti til altaris, og var altarisgangan fjölmenn. Sfðar um daginn flutti sr. Þorsteinn L. Jónsson er- indi í samkomuhúsinu um bænina, en hún var aðal- viðfangsefni mótsins. Var þar húsfyllir. Kl. 6 um kvöldið hófst svo söngmót kirkjukóranna. Setti formaður Kórasambandsins, sr. Þorgrímur Sig- MUSICA 19

x

Musica

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Musica
https://timarit.is/publication/725

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.