Útvarpstíðindi - 01.05.1953, Síða 2
Úrslit skoðunakönnunarinnar
Þátttaka í fyrstu skoðanakönnun Út-
varpstíðinda varð allgóð, og jafnvel
meiri en við höfðum gert okkur vonir
um, þar sem slík atkvæðagreiðsla sem
þessi hafði ekki farið fram s.l. tíu ár, en
fyrir hérumbil tíu árum efndu Útvarps-
tíðindi til atkvæðagreiðslu um vinsæl-
ustu útvarpsmennina og var sú atkvæða-
greiðsla mun yfirgripsmeiri en þessi.
Að þessu sinni bárust 309 atkvæða-
seðlar víðsvegar að af landinu. Eins og
menn muna, voru til leiðbeiningar
prentuð nöfn flestra þeirra er til greina
komu sem útvarpsmenn ársins 1952.
Þetta hafði þær afleiðingar, að atkvæði
dreifðust mjög mikið, og hafa vafalaust
margir notað tækifærið til að tjá kunn-
ingjum sínum hylli sína. Kom þetta
greinilegast fram í atkvæðagreiðslunni
um vinsælasta fyrirlesarann, en í þeim
flokki fengu alls 36 fyrirlesarar atkvæði.
Verða hér aðeins taldir þrír efstu menn-
irnir í hverjum flokki, en þeir eru þeir
raunverulegu sigurvegarar í þessari
annari skoðanakönnun Útvarpstíðinda.
Erindajlutningur:
Eins og fyrr segir, dreifðust 309 at-
kvæði í þeim flokki milli 36 manna, og
urðu þessir hæstir:
Vilhjálmur Þ. Gíslason 33 atkv.
Sigurður Magnússon 30 —
Martin Larsen 27 —
Söngvarar:
Atkvæði dreifðust milli 18 íslenzkra
söngvara, og báru þessir sigur úr býtum:
Guðmundur Jónsson 93 atkv.
Stefán íslandi 81 —
Einar Kristjánsson 33 —
Leikarar:
Atkvæði skiftust milli 18 þekktra leik-
ara ,en þessir urðu efstir:
Brynjólfur Jóhannesson 78 atkv.
Lárus Pálsson 57 —
Þorst. Ö. Stephensen 57 —
Ákveðnir útvarpsþœttir:
í þessum flokki skiftust atkvæði milli
14 aðila, en leikar fóru svo, að flest at-
kvæði hlaut:
Pétur Pétursson fyrir þáttinn
„Sitt af hvoru tagi 93 atkv.
Sveinn Ásgeirsson fyrir þátt-
inn „Hver veit?“ 65 —
Benedikt Gröndal og Óska-
stund hans 64 —
Við þökkum ölium þeim lesendum
Útvarpstíðinda, sem tóku þátt í þessari
atkvæðagreiðslu, og vonum að þótt
margir mætir útvarpsmenn hafi komið
að hljóðnemanum á því herrans ári 1952,
geti allir verið sammála um að sigur-
vegararnir í þessari keppni séu allir
vel að sigri sínum komnir.
<S>-----------------------------------------------------------------------------------------------<s>
ÚTVARPSTÍÐINDI — útvarps- og skemmtiblað. Flytur auk dagskrárkynningar
allskonar efni til skemmtunar og fróðleiks. — Ritstjórar: Guðm. Sigurðsson, Sig-
túni 35, sími 5676 og Jóhannes Guðfinnsson, Laugaveg 46, sími 1259. — Afgreiðsla:
Sigtúni 35, sími 5676. — Áskriftarverð kr. 40,00. Lausasöluverð kr. 4,00 eintakið. —
Prentað í Prentfelli h.f„ Hörpugötu 14, sími 6936. — Utanáskrift: Útvarpstíðindi,
Pósthólf 121, Reykjavík.
----------------------------------------------------------------------------------------------—<í>
2
ÚTVARPSTÍÐINDI