Útvarpstíðindi - 01.05.1953, Blaðsíða 9

Útvarpstíðindi - 01.05.1953, Blaðsíða 9
Sulo Raikkönen forstjóri finnsku óperunnar. Óper- an Österbottningar, sem út- varpshlustendur fengu að heyra s. 1. laugardagskvöld er byggð á sjónleik eftir A. A. Járviluoma. — Er cfni hennar rakið á öðrum stað í blaðinu. 21.20 Erindi: Úr Spánarferð (Njáll Símonar- son fulltrúi). 21.45 Tónleikar (pl.). 22.10 Brazilíuþættir; X: Fegurðardrottning stórborganna (Árni Friðriksson fiskifræð- ingur). 22.35 Dans- og dægurlög (pl.). ERINDI FLUTT Á NÆSTUNNI: Arnór Sigurjónsson flytur þrjú erindi um hákarlaútgerð í Höfðahverfi á 19. öld og þátt Einars Ásmundssonar í Nesi í henni. Fyrsta er- indið er á dagskrá 19. maí. Ólafur Þorvaldsson þingvörður talar um Hafn- arfjörð á síðara helmingi 19. aldar og rifjar upp margt, sem orðið hefir gleymskunni að bráð. Þetta verða þrjú útvarpserindi. Ilendrik Ottósson fréttamaður flytur erindi um fall Miklagarðs árið 1453. Föstudaginn 29. maí n. k. verða liðin rétt 500 ár frá þeim sögu- lega atburði, og væntanlega verður erindi Hend- riks á dagskránni það kvöld. Sigurður Guðjónsson kennari flytur erindi um lýðháskólann í Askov á Jótlandi, en þar hafa margir íslendingar stundað nám og þ. á m. Sigurður. UPPLESTRAR Á NÆSTUNNI: Bragi Sigurjónsson, skáld, á Akureyri, les frumort kvæði. Grétar Fells rithöfundur les nokkur frumort Ijóð. ÚTVARPSTÍÐINDI 9

x

Útvarpstíðindi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Útvarpstíðindi
https://timarit.is/publication/728

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.