Útvarpstíðindi - 01.05.1953, Blaðsíða 7

Útvarpstíðindi - 01.05.1953, Blaðsíða 7
Salttu og eftir smáryskingar tekst henni að leggja hann fyrir. Harri, Jussi og Antti koma inn. Stef Anttis (söngur íangans) og söngur Jussis blandast saman: „Við erum ekki þræl- ar og skulum heldur aldrei verða það.“ Fóget- inn birtist í dyrunum með svipu í hendinni, og steytir hnefann framan í bæjarfólkið, vegna þess að það er ekki ^tekið ofan fyrir honum. Jussi sýnir fógeta fangabréf Anttis. Fógetinn reiðir svipuna til höggs og slær hattinn af Jussi, sem verður fjúkandi reiður, þrífur svipuna af fógeta og brýtur hana. 2. þáttur. Túnið fyrir utan bæinn. í fjarska heyrist fyrst kall selstúlkunnar, síðar kveða við sterkar karl- mannsraddir. Liisa kemur syngjandi fram á sviðið. Kaisa kemur líka stundu síðar og fer að þvo. Liisa er að syngja um unnusta sinn, sem hafði komið svo karlmannlega fram við fóget- ann daginn áður. Maija fer inn til þess að sækja brúðargjafir Anttis, sem hún svo skart- ar. En í hennar augum eru þær of vandaðar og veraldlegar. Jussi kemur út úr bænum og sér fljúgandi fálka, sem ber í sjóndeildarhring- inn. Jussi lofsyngur stolt, dirfsku og frelsi rán- fugla. Liisa gengur nær Jussi, og ástin vaknar skyndilega í brjósti beggja. í lok þessa atriðis heyrist óljós hljómlist í fjarska. Æskulýður sveitarinnar kemur þjótandi fram á sviðið, og heldur rakleitt inn í bæinn, og brátt berast glaðir danstónar innan úr bænum. Skömmu síðar kemur Antti sárreiður, vegna þess refsi- dóms, sem hann á að sæta. Maija ásetur sér að bjarga honum úr klóm „réttvísinnar", og hvet- ur hann til þess að leggja á flótta. Kétt eftir að Antti er horfinn, og Maija situr ein eftir harmi lostin, heyrast allt í einu hinir trylltu söngvar „hájyanna." „Hájyarnir" bera sig dólgslega og foringi þeirra skorar einhvern heimamanna á hólm. Jussi verður til að taka áskoruninni, berst drengilega og fer með sigur af hólmi. „Hajyarnir" halda sneyptir leiðar sinnar. Jussi og Liisa gefa sig nú óskipt á vald ást sinni, en fyrr en varir kemur Harri og trufl- ar þau. Hann spyr þau eftir Antti, og jafnskjótt og hann kemst að raun um flótta hans, leggur Harri út í náttmyrkrið til þess að leita hans. 3. þáttur . Liisa situr við vinnu sína inni í stofu. Jussi kemur heim eftir langa og árangurslausa leit. Hvert sem leitað er, þá finnst Antti hvergi. Þau syngja ástarsöng saman, en þagna um leið og þau sjá til ferða fógetans. Hann er þar kominn til þess að reyna að fá upplýsingar viðvíkjandi flótta Anttis. Fyrst spyr hann drenginn spjör- unum úr, og tekst að veiða það upp úr honum, að Jussi hafi síðast verið með Antti. Því næst yfirheyrir hann Kaisa, en honum verður ekki eins ágengt með hana og með Kaappo, enda anýr hún svo út úr fyrir honum, að hann rekur hana á dyr. Yfirheyrslunum heldur enn áfram ,og er nú Juási leiddur fram fyrir fógetann. Vegna framsagnar drengsins, lætur fógetinn setja Jussi í járn, og skipar honum að fara inn í næsta her- bergi. Fógetinn tekur svipu sína og fer á eftir honum. Héraðsdómarinn varar hann við að nota svipuna á fangann. Það sé bæði hættulegt og ólöglegt. Án þess að fást um það^ fer fógetinn inn á eflir Jussi, og brátt heyrist þaðan mikill hávaði. Jussi kemur aftur hamslaus af reiði: „Hann barði mig með svipunni eins og ég væri gömul eik.“ Fógetinn kemur nú út úr herberg- inu. í reiði sinni brýtur Jussi af sér járnin, bregður hnífi sínum og ræðst á fógeta, sem í sömu andránni hleypur af skammbyssu. — Fó- getinn fellur dauður niður. Jussi, sem særst hef- ir í brjósti, syngur sinn síðasta söng og deyr. Liisa kastar sér yfir hann, veitir honum ná- bjargirnar og brestur síðan í þungan grát. Blaðamannafélag íslands mun á næstunni hafa kvöldvöku í útvarpinu, er verður helguð fyrsta íslenzka blaðamanninum, Magnúsi Ket- ilssyni sýslumanni. Á árunum 1773—’75 gaf Magnús út tímaritið Islandske Maanedstidender, er var prentað í Hrappsey. Magnús Ketilsson fæddist 29. jan. 1732 og dó 18. júlí árið 1803. Hann var sýslumaður í Dalasýslu árið 1702 og bjó í Búðardal. Hann var einn af merkustu mönnum síns tíma og liggja eftir hann mikil ritstörf. Á útvarpskvöldi Blaðamannafélagsins mun verða lesið upp úr verkum hans, sérstak- lega tímaritinu. „Hvers vegna hættirðu að læra að syngja, vinkona?" „Ég söng einu sinni í kirkju, og söfnuðurinn skifti þegar um trúarbrögð.“ ÚTVARPSTÍÐINDI 7

x

Útvarpstíðindi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Útvarpstíðindi
https://timarit.is/publication/728

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.