Útvarpstíðindi - 01.05.1953, Page 5
F i n n s k a
o p e r a n
í Reykjavík
Koma finnsku óperunnar nú á dögun-
um var mikill og sjaldgæfur viðburður
í menningarlífi okkar. Ópera þessi er
talin í fremstu röð, enda eru Finnar
miklir tónlistarmenn og eiga m. a. eitt
mesta tónskáld, sem nú er uppi, Jean
Sibelius. Leevi Madetoja, höfundur ó-
perunnar Österbottriingar, sem nú er
orðin nokkurskonar þjóðarópera Finna,
er talinn standa Sibeliusi næstur
finnskra tónskálda, og er auk þess nem-
andi hans. Hafði Sibelius einhverntíma
látið þau orð falla, að vafalaust yrði
Madetoja eftirmaður sinn í finnskri
tónlistarsköpun. Madetoja lézt hinsveg-
ar árið 1947, tæplega sextugur að aldri,
en Sibelius lifir enn í hárri elli, sem
kunnugt er.
Leevi Madetoja.
Listafólkið, sem hingað kbm, hefir í
engu brugðist hlutverkum sínum, því
söngur þess og leikur er tvímælalaust
með því bezta, sem manni gefst kostur
á að heyra og sjá. Hljómsveitarstjórinn
Leo Funtek, hefir verið hljómsveitar-
stjóri hjá Finnsku óperunni síðan árið
1925 og nýtur mikillar hylli í heima-
landi sínu, sem frábær hljómsveitar-
stjóri.
Útvarpshlustendum til glöggvunar á
efni söngleiksins, höfum við fengið leyfi
til að birta þann útdrátt þess, sem prent-
aður er í leikskrá Þjóðleikhússins.
1. þáttur.
Þegar tjaldið er dregið frá, sjáum við í stofu
í húsi Harris, sem er smáleiguliði og fangavörð-
ÚTVARPSTÍÐINDI
5