Útvarpstíðindi - 01.05.1953, Page 6
Próf. Leo Funtck, hljómsveit-
arstjóri finnsku óperunnar, er
finnskur í aðra ætt, en austur-
rískur í hina. f stöðu sína var
hann skipaður árið 1925, en hafði
áður starfað hjá sænsku óper-
unni í Stockhólmi, árin 1914—
1919, og verið kennari og tónlist-
argagnrýnandi í Helsingfors.
Prófessor Leo Funtek, hljómsveitarstjóri.
ur í senn. Maija, dóttir hans, situr í þungum
þönkum við gluggann á meðan hún bíður eftir
unnusta sínum, Antti, sem er ó leið heim eftir
yfirheyrzlu í lögregluréttinum í Vasa. Honum
hafði orðið á að beita hnífi í óflogum við skó-
ara nokkurn, sem hafði gerzt of nærgöngull við
unnustu hans. Þegar Kaisa kemur heim úr bæn-
um, spyr hún eftir Antti, og er hún kemst að
raun um, að hann hefir verið leiddur fyrir rétt,
án þess að hafa nægilega til saka unnið, verður
hún fjúkandi vond, og hellir úr skálum reiði
sinnar yfir hinn nýskipað fógeta. Stundu síð-
ar heyrist söngur Anttis, og hann kemur með
Harri inn í stofuna. Maija fer út á meðan, vegna
þess að hún þorir ekki að vera í návist Anttis.
Hún hefir orðið fyrir trúarlegum áhrifum, og
telur því ástir syndsamlegar. — Jussi kemur
inn, heilsar Antti og verður dálítið forviða, að
Maija skuli ekki vera viðstödd. — Hann fer
ög finnur hana og dregur hana nauðuga vilj-
uga inn í stofuna, og skilur hana þar eina eftir
hjá Antti. Antti undrast kuldalegt viðmót henn-
ar og ímyndar sér, að hún sé orðin óstfangin í
einhverjum öðrum en honum. Samtal þeirra
snýst nú um framtíð þeirra og væntanlegt heim-
ili. Loks hrekkur Maija upp úr draumórum
sínum, og reynir að telja Antti hughvarf og fá
hann til þess að iðrast gjörða sinna. Antti bregzt
reiður við fortölum hennar, og segist ekki hafa
getað látið skóarann sleppa fyrir slíkt athæfi.
í næsta atriði reikar Salttu, niðursetningur-
inn á Harri, ölvaður fram á sviðið og dreng-
urinn Kaappo á eftir honum. Þar hefst ölteiti
eitt kostulegt. Salttu leikur á als oddi, ýmist
dansar hann eða hann segir drengnum frá æv-
intýrum, sem hann hefir ratað í í kaupstaðar-
ferðum sínum í Vasa. Brátt gerast þeir hálföl-
óðir og reyna að kveða hvor annan undir með
óskaplegum óhljóðum. Þegar Maija kemur inn,
þagna þeir skyndilega. Hún verður fokvond við
6
ÚTVARPSTÍÐINDI