Útvarpstíðindi - 01.05.1953, Page 12
S.K.T.
Danslagakeppni
Nýlega er lokið fjórðu danslagakeppni
S.K.T. Bárust keppninni 105 lög að þessu
sinni og er það mál manna, að lögin sem
nú bárust hafi verið jafn-betri en áður,
og sýnir það að dægurlagahöfundar vor-
ir eru í framför. Hefur S.K.T. unnið
þarft verk með því að efna til þessarar
keppni og örfa þannig íslenzka tónlist-
armenn til að leggja sig alla fram við
samningu danslaganna og er nú óhætt
vegar sú sennilegust, að ráðið telji sig hafa þeg-
ar hlotið nokkra þjálfun í að munnhöggvast og
þyki nú það eitt skorta á starfsemi sína, að hafa
ekki svo mikið sem kvöldskólamenntun í að
kjaftshöggvast, og er af þessu Ijóst, að nú hyggst
Fjárhagsráð bæta ráð sitt og mun það óátalið af
flestum. A. m. k. er auðsær áhugi formannsins,
er treður upp með sjónauka hugsjóninni til full-
tingis. Annars má telja fullvíst að ýmsir af
viðskiptavinum Fjárhagsráðs væru þess ekki
ófúsir, að gefa honum kíki ef þenna þryti.
A hinn bóginn er þetta gleðilegt tímanna
tákn, hve drengilega Fjárhagsráð tekur upp
boxhanskann fyrir hnefaleikana, og væntan-
lega sjá aðrar stéttir og starfshópar sóma sinn
í að fara að fordæmi þess, og taki nú framvegis
virkan þátt í þeim íþróttagreinum, er þeir teldu
sig hafa bezt skilyrði til afreka í, —t. d. ættu
úrsmiðir að vera liðtækir í fjaðurvigt og kjöt-
kaupmenn hreint og beint ósigrandi í létt-
þungavigt, og þá yrði nú heldur ekki lítill snúð-
ur á bakarameistarafélaginu í kringlukasti, og
ef Prestafélagið ynni ekki pokahlaupið með yf-
irburðum, yrðu áreiðanlega flestir íslendingar
öldungis grallaralausir.
För Fjárhagsráðs að Hálogalandi á vafalaust
eftir að hafa góð áhrif á störf þess í framtíð-
inni, ekki sízt í aukinni tækni við að setja hnef-
ann í borðið, og fari svo að hnefaleikar og hnefa-
réttur eigi sér nokkra framtíð í óru landi, mun
sú för þess bera hátt, svo sem einn saltstólpi í
eyðimörk.
að segja ,að hin beztu íslenzku dægur-
lög standi í engu að baki þeim beztu
erlendu.
Af 35 lögum sem til gr.eina komu í
keppninni, komust 17 í úrslit. Óhætt er
að segja, að útvarpshlustendur hafi
fylgst af athygli með þessari keppni,
sem byrjaði í lok marz s.l. og endaði
fyrsta sunnudagskvöld í maí. Freymóð-
ur Jóhannsson listmálari átti hugmynd-
ina að þessari danslagakeppni og hefir
hann stjórnað henni af miltilli rogg-
semi.
Gömlu dansarnir.
Úrslit þar urðu þau, að sjómannavals
Svavars Benediktssonar hlaut 1. verð-
laun. Textinn er eftir Kristján skáld frá
Djúpalæk.
Freymóður Jóhanrisson, listmálari.
12
ÚTVARPSTÍÐINDI