Útvarpstíðindi - 01.05.1953, Blaðsíða 17
FELLE BOOM:
RIDDARALEIKUR
„Jóhannes," snökti Utelinda. „Jóhannes, mig
vantar peninga."
Öjá, maður fer nú nærri um það ,að þetta er
upphafið að skemmtilegum viðræðum hjóna.
„Til hvers vantar þig peninga, elskan mín?“
„Jóhannes, ég hef verið móðguð hræðilega."
„Drottinn minn dýri. Hver hefir móðgað þig?“
„Kona dyravarðarins."
„Og vantar þig þess vegna peninga?“
Hún fleygði sér upp í sófann og fór enn á ný
að snökta. Jóhannes gekk út að glugganum. Á
húsinu handan við götuna tindraði ljósauglýs-
ing í kvöldrökkrinu: „Weilchen-líkjör er sætari
en hefndin."
„En hvers vegna?“
„Ég ætla að kaupa eitur.“
„Utelinda. Hvers vegna viltu strax byrla kon-
unni eitur?“
Sófinn hófst og hneig undir ekkasogum.
„Er dyravarðarfrúin hætt að heilsa þér. Eða
hefir hún verið að krefja þig um húsaleiguna
sem er ógreidd?"
„Verra en það, Jóhannes, miklu verra.“
„Hefir hún haft í hótunum við þig eða ráðist
á þig?“
„Ennþá verra."
„En hvað hefir hún þá gert sem er svo
hræði ...“
„Hún er búin að hrekja hann Sám úr skotinu
hans við útidyrnar og kallar hann óþrifagemsa."
„Óþrifagemsa?"
„Það voru hennar óbreytt orð.“
„Og er það ástæðan fyrir því, að þú ætlar að
eitra fyrir kerlingartetrið?"
„Hvað er þetta, Jóhannes? Ekki hana sjálfa,
heldur köttinn hennar."
Jóhannesi létti auðsjáanlega stórum.
„A-ha — Nú skil ég. Hún á ekkert með að
reka Sám, hvorki úr hans fastabæli né heldur
öðrum. Það væri nú skárra!“
Utelinda horfði hreykin á Jóhannes út und-
an tárvotum vasaklútnum:
„Ég vissi það alltaf, að þú varst riddari. Hve-
nær fæ ég peningana?"
„Hvaða peninga?"
Frh. á bls. 18.
Ríkisútvarpið
Takmark Ríkisútvarpsins og ætlunar-
verk er að ná til þegna landsins með
hvers konar fræðslu óg skemmtun, sem
því er unnt að veita.
ASalskrifstofa útvarpsins annast um af-
greiðslu, fjárhald, útborganir, samninga-
gerðir o. s. frv. Útvarpsstjóri er venjulega
til viðtals kl. 2—4 síðdegis. Sími skrif-
stofunnar er 4993. Sími útvarpsstjóra
4990.
Innheimtu afnotagjalda annast sérstök
skrifstofa. Sími 4998.
Útvarpsráðið (Dagskrárstjórnin) hefur
yfirstjórn hinnar menningarlegu starfsemi
og velur útvarpsefni. Skrifstofan er opin
til viðtals og afgreiðslu frá kl. 2—4 síð-
degis. Sími 4991 .
Fréttastofan annast um fréttasöfnun
innanlands og frá útlöndum. Fréttaritarar
eru í hverju héraði og kaupstað landsins.
Sími fréttastofu: 4994. Sími fréttastjóra:
4845.
Auglýsingar. Útvarpið flytur auglýsing-
ar og tilkynningar til landsmanna með
skjótum, áhrifaríkum hætti. Þeir, sem
reynt hafa, telja útvarpsauglýsingar á-
hrifamestar allra auglýsinga. — Auglýs-
ingasími 1095.
Verkfræðingur útvarpsins hefur dag-
lega umsjón með útvarpsstöðinni, magn-
arasal og viðgerðastofu. Sími verkfræð-
ings er 4992.
Viðgeröarstofan annast um hvers konar
viðgerðir og breytingar viðtækja, veitir
leiðbeiningar og fræðslu um not og við-
gerðir viðtækja. Sími viðgerðarstofunnar
4995.
Takmarkið er: Útvarpið inn á hvert
heimili! Allir landsmenn þurfa að eiga
kost á því að hlusta á æðaslög þjóðlifsins;
hjartaslög heimsins.
Ríkisútvarpið.
ÚTV ARPSTÍÐINDl
17