Faxi

Årgang

Faxi - 01.12.1975, Side 18

Faxi - 01.12.1975, Side 18
VALTÝR GUÐJÓNSSON FAXI35 ára Lánur þessar eru settar hér í tilefni nokkurs konar ferðalags. Blaðið Faxi hóf ferð sína fyrir 35 árum, það rifjaðist upp fyrir mér fyrir rúmri viku, og að ég fylgdi því eftir fyrstu eitt eða tvö árin sem ritstjóri þess. Útgefendur voru áhugasamir post- ular í Málfundafélaginu Faxa, eða rétt- ara sagt félagið sjálft, og svo eí enn. Árið 1940 mátti segja, að sál og lík- ami alls mannkynsins væri að komast á fulla ferð inn í nýjan heim. Málfunda- félagið Faxi var stofnað ári fyrr, — en félagið er hinsvegar saklaust af því að eiga nokkurn þá í sköpun heimsins. Það vildi bara svona til, að félagið varð til, að við í félaginu horfðum á ferðina eins og fjöldi annars saklauss fólks. í ferð verður jafnan að nefna til áfanga- staði. Félagið lifir enn, blað þess líka. Þá voru samt skelfilega erfiðir tímar, og til úrbóta sennilega fátt betra en að gefa út blað. Menn greindi á um pólitík í landinu, og um stefnur innan byggðar- lagsins. Til þess að valda ekki neinum miska eða misskilningi, var blaðið hlut- laust um þetta. Menn greindi á um vakn- inguna miklu bak við stríðið úti í lönd- um, þjóðernisvakningu og föðurlandsást Adólfs Hitlers var upp á sitt besta, en í mótvægi þess þróuð lýðræðis- og sið gæðisvitund vestrænna þjóða. Ekki varð þó þetta að ágreiningisefni meðal Faxa- manna, né heldur íslendinga að neinu ráði. Stríðið var utanlands. En við í fé- laginu hlustuðum á eins og f jöldi annars saklauss fólks. Tvisýnir tímar og ágreiningsefni mörg, efnahagsleg og menningarleg. Eitt, aðeins eitt: Enn stóðu mál þannig þá, að fjölda fólks um landið allt þótti sér misboðið, ef einn fremsti stílsnill- ingur íslands, fyrr og síðar, var nefndur til góðskálda. Nokkrum árum síðar varð hann samt fyrsti Nóbelshöfundur okkar litlu þjóðar. Ég man að við vildum gefa út blað til þess að efla þroska. Ungt fólk í fylgd roskinna og góðra manna, sækir eftir þroska — og æfingu í að tjá sig um heilnæma hluti, hvort heldur í ræðu eða riti. Þess vegna örkuðum við inn í Jesú- prent í Reykjavík, og létum prenta fyrstu blöðin af Faxa. Það var fyrir 35 árum. Við vorum flestir ungir þá, og vissum ekki gerla hvert ferðinni var heitið lengra. Líf þessa blaðs hefur ekki byggst á útgefendunum, og við það er ekkert að athuga. Útgefendur hafa samt rætt af áhuga og innsæi um framhaldslíf blaðs- ins á hverju ári sem guð hefur gefið til, um gengi þess og tilgang, á sama hátt og safnaðarfulltrúar um kirkju- sókn, trú og siðgæði, og bindindisfröm- uðir um nauðsyn bindindis í landinu. Blað sem þarf að lifa, það þarf einn duglegan mann. Eins og allir vita, sem til þekkja, axlaði Hallgrímur Th. Bjömsson einn allan þungann af ferðalagi blaðsins í rúm 30 ár, sem ritstjóri og útbreiðslu- meistari, og enn er kannske annar dug- legur karl tekinn við. Hver veit, — þá lifir blaðið, blaðið sem enginn vissi fyr- irfram hvort næði fimm ára aldri hvað þá meira. Það gæti því sem best orðið eilíft eins og spariskírteini. Margir fyrstu árgangar blaðsins munu löngu uppseldir og ófáanlegir. Menn og minjar eiga í því frá upphafi til þessa dags, sína línuna hvort. Óðum líður á öldina, og bráðum ætti að þurfa að fara að búa til nýjan heim, enn á ný. Upp rísa þá ungir menn, sem kynnu að geta notað blaðið sem heimild, fært úr því til sögu héðan úr byggð sitthvað, sem betur er varðveitt, heldur en það væri með öllu týnt. Hjartnns þnkUiv Hjartans þakkir fceri ég öllum þeim, sem sýndu mér vinsemd á sjötugs- afmæli minu, 27. október s.l., með árnaðaróskum, margvíslegum gjöfum og þátttöku í fagnaði afmæliskvöldsinS. Þótt eigi sé mögulegt að birta hér nöfn einstaklinga, skal hér getið þeirra félaga og stofnana, sem ekki hvað sizt stuðlaði að því að gera mér afmælisdaginn ógleymanlegan, með því að þau efndu til samsætis mér til heiðurs afmæliskvöldið. Félögin og stofnanirnar eru þessi: Verkcdýðs- og sjómannafélag Kefla- víkur og nágrennis, Bæjarstjórn Keflavikur, Kaupfélag Suðurnesja og Sóknamefnd Keflavikur. Fyrir átta ykkkar rausn og gjafir á ég aðeins góðar óskir ykkur til handa og því bið ég ykkur öUum blessunar Guðs á ókomnum árum. Ragnar Guðleifsson 126 — FAXI

x

Faxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.