Árdís - 01.01.1933, Side 50
48
Var Mrs. Guttormsson greitt þakklætisatkvæði fyrir hennar
ágæta erindi.
Var erindrekum og gestum hoðið til skemtikeyrslu um bæinn
Að því loknu var kveldverður framreiddur í fundarsal kirkjunnar.
Skemtu konur sér við söng undir stjórn Mrs. Helgason.
Fjórði fundur
Fundur settur af forseta kl. 8 e. h., (>. júlí.
Séra E. Fafnis stvrði bænagjörð.
Fór svo fram eftirfylgjandi skemtiskrá: Piano solo, Miss B.
Eyólfsson; Erindi, “The Pioneer Woman,” Mrs. H. G. Henrickson;
“Lantern in Her Hand,” Bess Streeter Aldrich; Erindi, “Myndir
frá Japan,” Mrs. S. O. Thorlaksson; Japanslcir söngvar, sungnir af
Margarethe Thorlaksson; Piano solo, Mrs. H. Helgason, Einsöngur,
Mrs. S. C. Thorsteinsson.
Næst var rætt um rit félagsins.
Síðasta þing gerði samjjykt um að félagið gæfi út ársrit. Fól
J)að framkvæmdarnefnd framkvæmdir í því máli. Skýrði l'orseti
frá að nefndin hefði kosið tvær konur til að greiða l'yrir því máli
fram að þingi: Mrs. S. Olafsson í Arborg, og Mrs. B. S. Benson í
Winnipeg. i fjarveru Mrs. Olafsson skýrði Mrs. Benson frá J)ví
sem gjört hafði verið og gaf áætlun um kostnað er þetta hefði í för
með sér.
Eftir stuttar umræður var gerð uppástunga af Mrs. Pétursson,
studd af Mrs. Valdimarsson, að eftirfylgandi konur séu kosnar til
að hrinda Jæssu í framkvæmd eins fljótt og unt væri: Mrs. S.
Olafsson, Mrs. B. S. Benson, og Mrs. F. Johnson. SamJ)ykt.
Samkvæmt samþykt síðasta þings hafði framkvæmdarnefndin
breytt 3 grein laga félagsins og samið aukalög er heimilaði ein-
staklingum að gjörast meðlimir félagsins.
Var tillaga framkvæmdarnefndar unr eftirfylgandi lagabreyt-
ingu borin upp til samþyktar:
3. grein—Félöguin kvenna og konum tilheyrandi kirkjufélaginu
er heimilt að gjörast meðlimir hins sameinaða kvenfélags.