Morgunblaðið - 20.01.2009, Qupperneq 1
„HEILDARKOSTNAÐUR er um 11 milljónir evra, sem
nemur rúmlega 1,8 milljörðum íslenskra króna,“ segir
Ingvar Þórðarson, en hann og Júlíus Kemp verða á meðal
framleiðenda að næstu mynd finnsk/bandaríska kvik-
myndagerðarmannsins Rennys Harlins. Myndin heitir
Mannerheim og fjallar um Carl Gustaf Emil Manner-
heim, hershöfðingja og síðar forseta, sem er þjóðhetja í
augum Finna.
Íslenskt starfsfólk mun koma að gerð myndarinnar, en
meðal annars mun Helgi Björnsson fara með hlutverk í
henni. „Við munum svo eiga allan rétt á Íslandi, auk þess
sem við munum fá ákveðnar prósentur af hagnaði af
myndinni um allan heim,“ segir Ingvar, en gert er ráð
fyrir að hún verði frumsýnd á næsta ári. jbk@mbl.is| 32
Helgi
Björnsson
Ingvar
Þórðarson
Renny
Harlin
Framleiða finnska
stórmynd Harlins
Þ R I Ð J U D A G U R 2 0. J A N Ú A R 2 0 0 9
STOFNAÐ 1913
18. tölublað
97. árgangur
Landsprent ehf.
MBL.IS
Morgunblaðið
hvar sem er
hvenær sem er
95
ára
mbl.is
Fr
ét
ta
bl
að
ið
M
or
gu
nb
la
ði
ð
Samkvæmt könnun MMR um
traust fólks á aldrinum 18–67
ára til fjölmiðla, dagana
19.–23. des.
Óskorað
traust til
Morgunblaðsins
64,3% mikið traust
lítið traust
11,4%
41,2%
24,5%
Leikhúsin
í landinu >> 30
MÓÐIR 14 ÁRA EINHVERFS DRENGS
DREYMIR UM AÐ SONUR-
INN VERÐI SJÁLFSTÆÐUR
AFKOMENDUR RÚNARS JÚLÍUSSONAR
Halda rekstri
Geimsteins áfram
BARACK Obama, sem í dag tekur við emb-
ætti forseta Bandaríkjanna, aðstoðaði í
gær við endurbætur á heimili fyrir táninga
í Washington og heiðraði þannig minningu
mannréttindafrömuðarins Martins Luthers
Kings á degi hins síðarnefnda. Obama mun
sverja forsetaeiðinn við þinghúsið rétt fyrir
klukkan fimm í dag að íslenskum tíma. Er
búist við að mikill mannfjöldi verði við-
staddur athöfnina. | 15
Í minningu Kings
AP
Eftir Björgvin Guðmundsson
bjorgvin@mbl.is
ÚTVALDIR viðskiptavinir Kaup-
þings, þar á meðal Ólafur Ólafsson,
annar stærsti eigandi bankans, fengu
milljarða króna að láni til að gera
samninga sem þeir gátu ekki tapað á.
Kaupþing hafði lánað um 84 millj-
arða króna vegna þessara samninga til
erlendra félaga sem voru í eigu við-
skiptavinanna vikurnar áður en bank-
inn féll. Áhættan í viðskiptunum lá öll
hjá Kaupþingi og hluthöfum bankans
en ekki hjá fjárfestunum sjálfum. Þeir
áttu hins vegar von á miklum fjár-
hagslegum ávinningi, allt að tíu millj-
örðum króna.
Samningarnir voru gerðir með það
að markmiði að styrkja fjárhag eig-
enda þessara félaga. Til stóð að greiða
út hluta af reiknuðum hagnaði samn-
inganna fyrirfram. Það náðist ekki.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins voru þessar lánveitingar ekki
samþykktar í lánanefnd bankans áður
en þær voru afgreiddar. Það sama er
að segja um fjármögnun Kaupþings á
kaupum sjeiksins Al-Thani á 5% í
bankanum.
Þar sem áhættan í þessum lánveit-
ingum var stór þurfti lánanefnd stjórn-
ar Kaupþings að samþykkja þær. Sú
nefnd var kölluð saman vikuna áður en
neyðarlögin voru samþykkt og bank-
arnir féllu. Þar var listi af óafgreiddum
lánum lagður fram og hann samþykkt-
ur til að ganga frá formsatriðum.
Greiðslur Kaupþings til erlendra fé-
laga tiltekinna viðskiptavina síðustu
vikurnar fyrir fall námu um 120 millj-
örðum króna. Á sama tíma hrikti í
stoðum fjármálafyrirtækja í heimin-
um.
Milljarðalán án áhættu
Kaupþing lánaði tugi milljarða króna
áður en samþykki lánanefndar lá fyrir
Í HNOTSKURN
»Auk hárra lána til við-skiptavina ákváðu stjórn-
endur Kaupþings að kaupa
skuldabréf bankans á markaði
fyrir 180 milljónir evra.
»Að teknu tilliti til þess fóruum 140 milljarðar króna út
úr bankanum á nokkrum vik-
um.
»Á sama tíma var umhverfifjármálafyrirtækja í heim-
inum mjög fallvalt og allt
lausafé dýrmætt.
Milljarðalán | 14
Willem H.
Buiter, prófessor
við London Scho-
ol of Economics,
mælir fastlega
gegn einhliða
upptöku evru. Í
fyrirlestri sem
hann hélt í gær
sagði hann ein-
hliða upptöku
óviðeigandi fyrir Ísland.
„Það myndi útiloka landið frá því
að fá nokkurn tíma fulla aðild að
myntbandalagi Evrópu og njóta
Seðlabanka Evrópu sem lánveit-
anda til þrautavara fyrir íslenska
banka. Það gæti jafnvel útilokað
ykkur frá aðildarviðræðum, enda
skýlaust brot á þeim reglum sem
gilda um aðildarferlið.
Ef þið viljið ekki fara inn í ESB
og ekki fá þessa þjónustu frá Seðla-
banka Evrópu eruð þið að biðja um
að hafa einungis lágmarks banka-
starfsemi. Ef svo er ættuð þið endi-
lega að evruvæðast einhliða, því
það er besta leiðin til að loka þess-
um dyrum endanlega.“ »12
Einhliða upptaka evru
óviðeigandi fyrir Ísland
Willem H. Buiter
Atvinnuleysi
ungs fólks hefur
aukist meira en
þeirra eldri. Fólk
á aldrinum 16-24
ára er nú um
23% allra at-
vinnulausra,
samkvæmt
skýrslu Vinnu-
málastofnunar. Í Reykjavík voru
tæplega 700 ungmenni á aldrinum
16-24 ára atvinnulaus í lok desem-
bermánaðar en rúmlega tvö þús-
und á landinu öllu. Hafði þeim
fjölgað um rúmlega sex hundruð
milli mánaða.
Horfurnar eru ekki bjartar en
gert er ráð fyrir áframhaldandi
samdrætti í mörgum atvinnugrein-
um. Hitt húsið hefur brugðist við
þessu með því að bjóða upp á hóp-
eflisnámskeið fyrir atvinnulaus
ungmenni á aldrinum 16-20 ára. »6
Atvinnuleysi ungmenna
eykst hröðum skrefum
AÐSÓKN í lögfræðiaðstoð Orators, félags laganema í
Háskóla Íslands, hefur aukist gríðarlega á umliðnum
mánuðum, eða frá því í byrjun október. Spurningar um
fjármál heimilanna, fjárnám, gjaldþrot og gjaldþrota-
skipti eru mjög algengar en það er breyting frá því sem
áður var. Aðsóknin er raunar svo mikil að hringt er í
stjórnarmenn félagsins utan símatímans – á öllum tímum
sólarhringsins – og þeir nánast grátbeðnir um aðstoð.
Guðrún Edda Guðmundsdóttir, annar framkvæmda-
stjóri lögfræðiaðstoðarinnar, segir mjög misjafnt hversu
mörgum fyrirspurnum sé svarað í hverjum símatíma,
enda fari það mikið eftir eðli spurninganna. Opið er fyrir
símann frá kl. 19.30 til 22 og á þeim tíma getur verið tekið
á móti 8-10 símtölum eða 25-30. Síminn stoppar alla vega
ekki. „Við verðum yfirleitt mjög hissa ef síminn hringir
ekki um leið og við leggjum tólið á. Þá athugum við hvort
ekki sé örugglega lagt á,“ segir Guðrún Edda.
andri@mbl.is | 18
Nánast
grátbeðnir
um aðstoð