Morgunblaðið - 20.01.2009, Side 2
2 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. JANÚAR 2009
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Egill Ólafsson, egol@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björgvin Guðmundsson, fréttastjóri, bjorgvin@mbl.is
Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþrótt-
ir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is Sunnudagur Ragnhildur Sverrisdóttir, ritstjórnarfulltrúi, rsv@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Minna kólesteról
www.ms.is
Benecol er náttúrulegur
mjólkurdrykkur sem
lækkar kólesteról í blóði.
Mikilvægt er að halda
kólesterólgildum innan
eðlilegra marka því of
hátt kólesteról í blóði er
einn helsti áhættuþáttur
kransæðasjúkdóma.
Ein flaska á dag dugar
til að ná hámarksvirkni.
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
–
0
9
–
0
0
5
1
Eftir Önnu Sigríði Einarsdóttur
annaei@mbl.is
VELFERÐARMÁL, skattamál,
efnahags- og vaxtastefna, sem og
áætlun ríkissjóðs skipta gríðarlegu
máli fyrir útkomu þeirra víðtæku
viðræðna sem hófust hjá heildar-
samtökum vinnumarkaðarins í gær.
Mikill vilji virðist vera meðal samn-
ingsaðila til að horfa á málin heild-
stætt og að fá stjórnvöld jafnfljótt
að samningaborðinu og auðið er.
„Þetta er á algjöru byrjunar-
stigi,“ segir Kristján Gunnarsson,
formaður Starfsgreinasambands-
ins, en gærdagurinn fór í að skipta
fundarmönnum niður í þrjá hópa
sem munu á næstu vikum taka á at-
vinnumálum, kjaramálum og svo
fjársýslu- og skattamálum.
Ljóst er að kjaramálin eiga eftir
að reynast nokkuð flókin. En al-
menni markaðurinn er með kjara-
samninga sem gilda til 2010, þó þeir
eigi að koma til endurskoðunar 15.
febrúar nk. á meðan samningar op-
inberra starfsmanna eru lausir í ár.
Kjarasamningar ASÍ þykja líklegir
til að mynda grunn að viðræðunum.
Enn er hins vegar ekki ljóst, líkt og
Árni Stefán Jónsson, formaður
SFR, bendir á, hvernig sá rammi
hentar opinberum starfsmönnum.
Mikill vilji er meðal þeirra sem
við samningaborðið sitja til þess að
stjórnvöld komi að samningunum og
nefnir Vilhjálmur Egilsson, fram-
kvæmdstjóri Samtaka atvinnulífs-
ins, fjármála-, forsætis- og félags-
málaráðuneyti sem æskilega
þátttakendur í viðræðunum. Stjórn-
völd virðast hins vegar, að sögn
Gylfa Arnbjörnssonar, forseta ASÍ,
heldur vilja halda í þá hefð að halda
að sér höndum uns lausn sé í sjón-
máli.
„Menn gera sér alveg grein fyrir
að ríkið er ekkert sérstaklega af-
lögufært um að leggja mikið efni inn
í samninginn. Það sem við erum að
kalla eftir er að ríkið taki þátt í
þeirri umræðu og mótun sem þarf
að eiga sér stað við þetta borð. Því
það sem við viljum sjá koma út úr
viðræðunum er einhver samstillt
sýn um það hvernig við eigum að
vinna okkur út úr þessu,“ segir
Gylfi.
Ríkið tregt til að
koma að viðræðum?
Mikill vilji til að skoða málin heildstætt Kjaramálin flókin
Í HNOTSKURN
»Kjaraviðræðurnar gætuorðið nokkuð flóknar. Al-
menni markaðurinn er með
kjarasamninga sem gilda til
2010 og sem ASÍ telur borga
sig að framlengja. Samningar
opinberra starfsmanna eru
hins vegar lausir í ár.
MÓTMÆLT var fyrir utan dóms-
málaráðuneytið um miðjan dag í
gær. Mótmælendur kröfðust þess
að Benóný Ásgrímssyni flugrekstr-
arstjóra og Georg Lárussyni, for-
stjóra Landhelgisgæslu Íslands,
yrði tafarlaust vikið úr starfi þar
sem þeir hefðu, að mati mótmæl-
enda, gerst sekir um spillingu í
mannaráðningum.
Morgunblaðið/Kristinn
Skýr skilaboð Hagmunagæslan
mátti lesa á skilti eins mótmælanda.
Mótmælt í
Skuggasundi
ÞAÐ var létt yfir Gylfa Arnbjörnssyni, forseta ASÍ,
Helgu Jónsdóttur, framkvæmdastjóra BSRB, og Árna
Stefáni Jónssyni, formanni SFR, á fyrsta degi víðtækra
viðræðna heildarsamtaka vinnumarkaðarins. Auk
hefðbundinna kjaraviðræðna er markmiðið að ná fram
samstilltri sýn um hvernig best megi taka á kreppunni.
Morgunblaðið/Ómar
Samstillt gegn kreppunni
UM fjórðungur eða 27% þeirra sem
eru í launaðri vinnu segjast myndu
leita sér að starfi í útlöndum ef þeir
misstu vinnuna. Þetta kemur fram í
nýrri könnun sem Capacent Gallup
gerði fyrir ASÍ. Þeir sem eru í laun-
aðri vinnu voru spurðir hvað væri
líklegast að þeir tækju sér fyrir
hendur ef viðkomandi missti vinn-
una.
„Iðnaðarmenn eru þar fjölmennir
en einnig ungt fólk með háskólapróf.
Fólk sem í dag starfar sem sérfræð-
ingar og stjórnendur. Meirihluti
þessara hópa myndi þó byrja á að
leita sér að vinnu hérlendis. Sér-
fræðingar og verkafólk eru fjöl-
mennustu hóparnir sem færu í nám
og ungt fólk færi frekar í nám en
þeir sem eldri eru,“ segir í frétt ASÍ.
Fram kom að 22% þeirra sem hafa
misst vinnuna segjast verða að leita
að vinnu erlendis.
Leita starfa
erlendis
EKIÐ var á
hreindýr á
Þrengslaveginum
við Heiðarenda á
Jökulsárdal um
tíuleytið í gær-
kvöldi. Aflífa
þurfti hreindýrið
og er fólksbíllinn
sem á dýrið ók
svo gott sem ónýtur að sögn lögregl-
unnar á Egilsstöðum. Mikil ísing er á
veginum og hvetur lögregla fólk til
að fara varlega.
annaei@mbl.is
Fólksbíll ók
á hreindýr
Í ÓÐAMANSGARÐI, fyrsta óperan
sem samin er í Færeyjum, verður
flutt á Listahátíð í Reykjavík í vor.
Tónskáldið er Sunleif Rasmussen
en textinn er byggður á samnefndri
sögu eftir William Heinesen sem í
íslenskri þýðingu Þorgeirs Þorgeir-
sonar heitir Fjandinn hleypur í
Gamalíel.
„Sagan er um ungt par, Mars-
elíus og Stellu og við sjáum hvernig
þau horfast í augu við leyndardóma
lífsins og ástina á sama tíma og þau
feta sig eftir drungalegum og
heillandi garði brjálæðingsins,“
segir Hrefna Haraldsdóttir, list-
rænn stjórnandi Listahátíðar í
Reykjavík.
„Það er ánægjulegt að fá tæki-
færi til þess að setja upp fyrstu fær-
eysku óperuna á Íslandi og gaman
að sjá hvernig listgreinarnar vinna
saman í verkinu. Þetta er spenn-
andi og viðamikið verkefni á dag-
skrá hátíðarinnar.“
Uppfærslan er samstarfsverkefni
Listahátíðar við Þjóðleikhúsið en
færeyska þjóðleikhúsið Tjóðpall-
urin vinnur með Þjóðleikhúsinu að
uppfærslunni. Hópur færeyskra og
íslenska listamanna tekur þátt í
verkefninu en leikstjóri verður Ría
Tórgarð og hljómsveitarstjóri
Bernharður Wilkinson. | 28
Eyjólfur Eyjólfsson Þóra Einarsdóttir
Færeysk ópera
á Listahátíð
ALLS verða
gefnar út 370
handtökuskip-
anir á ein-
staklinga í Ár-
nessýslu í
vikunni. Um er
að ræða fólk
sem ekki hefur
skilað sér í fjár-
nám hjá emb-
ætti sýslu-
mannsins á Selfossi.
„Það er algjört neyðarbrauð að
þurfa að gera þetta,“ segir Ólafur
Helgi Kjartansson, sýslumaðurinn
á Selfossi. Fjárnámsbeiðnum hafi
fjölgað og það hafi eins aukist að
fólk mæti ekki í fjárnám. „Hvort
það er vegna þess að þetta er ekki
fremst í forgangsröðinni veit ég
ekki,“ segir hann.
Fólkið verður handtekið á heimili
sínu eða vinnustað og það síðan
fært fyrir sýslumann eða fulltrúa
hans. Nokkuð er síðan farið var í
sams konar aðgerðir síðast og segir
Ólafur Helgi hópinn nú vera tölu-
vert stærri en þá.
Viðbrögð fólks við handtökuskip-
uninni hafi í það skipti náð yfir all-
an skalann. „Sumir skiluðu sér þeg-
ar það spurðist út að við værum að
fara í þessar aðgerðir, en aðrir ekki
fyrr en búið var að banka upp á hjá
þeim – annaðhvort á vinnustað eða
heimili.
Viðskiptaskuldir algengar
Skuldirnar að baki fjárnáms-
beiðnunum eru af öllum toga.
„Þetta eru viðskiptaskuldir, sem og
skuldir vegna kreditkorta og banka-
lána og þó að við höfum ekki gert
úttekt á því myndi ég segja að flest-
ar þeirra séu til komnar vegna ein-
hvers konar viðskipta,“ segir Ólafur
Helgi.
Upphæðirnar eru líka mjög
misháar. Í sumum tilfellum hafi
skuldin upphaflega verið nokkur
hundruð krónur en um verulega há-
ar upphæðir sé að ræða í öðrum til-
fellum. annaei@mbl.is
Verða handtekin á
heimili eða vinnustað
Allt frá kreditkortaskuldum til viðskiptaskulda
Í HNOTSKURN
»Þeim hefur fjölgað semekki skila sér í fjárnám hjá
sýslumanninum á Selfossi.
»Fólkið verður handtekið áheimili sínu eða vinnustað
og það síðan fært fyrir sýslu-
mann eða fulltrúa hans.
Ólafur Helgi
Kjartansson