Morgunblaðið - 20.01.2009, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 20.01.2009, Qupperneq 6
6 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. JANÚAR 2009 FRÉTTASKÝRING Eftir Ingibjörgu B. Sveinsdóttur ingibjorg@mbl.is TÆPLEGA 700 ungmenni í Reykjavík, á aldrinum 16 til 24 ára, voru í desember síðastliðnum á atvinnuleysisskrá, að því er Lár- us Rögnvaldur Haraldsson, deild- arstjóri upplýsingamiðstöðvar hjá Hinu Húsinu greinir frá. Vítamín fyrir atvinnulausa Þar hófst í gær vikulangt nám- skeið, Vítamín, fyrir atvinnulaus ungmenni, 16 til 20 ára. „Þetta er hópur sem hefur verið í fullri vinnu og er nýlega dottinn út af vinnumarkaði. Þetta eru líka ungmenni sem hafa tekið sér hlé frá námi í einhvern tíma eða ekki komist inn í skóla.“ Hópefli og sjálfstyrking Vinnumálastofnun gaf ungmenn- unum kost á að velja á milli viku- langa námskeiðsins hjá Hinu Hús- inu, sem í eru 20 þátttakendur, eða styttra námskeiðs hjá stofn- uninni sjálfri sem í eru fleiri þátt- takendur. „Hjá okkur verður um hópefli að ræða og sjálfstyrkingu sem er auðveldara þegar hópurinn er lít- ill. Við munum meðal annars kenna þeim gerð ferilskrár og hamra á því við unglingana að þeir séu virkir, hvort sem er í at- vinnuleit eða sjálfboðastarfi,“ greinir Lárus frá. Hópnum fylgt eftir Hann getur þess jafnframt að til standi að fylgja hópnum eftir og kalla hann inn á hálfsmánaðar fresti. Að loknu námskeiðinu sem stendur yfir verður metið hvort breyta þurfi námskeiðshaldinu en halda á nýtt námskeið eftir tvær vikur, að sögn Lárusar. „Við erum almennt að endurskoða starfið hér til þess að geta þjónað okkar markhópi sem best. Við erum að skoða hugmyndir um ýmiss konar örnámskeið.“ 2.000 á öllu landinu Í desember voru rétt rúmlega 2.000 einstaklingar á aldrinum 15 til 24 ára á atvinnuleysisskrá á öllu landinu. Á höfuðborgarsvæðinu voru 258 ungmenni 15 til 19 ára skráð at- vinnulaus en 293 á landsbyggðinni. Á aldrinum 20 til 24 ára voru 868 skráðir atvinnulausir á höfuðborg- arsvæðinu en 647 á landsbyggð- inni. Fjöldi ungra er án vinnu  Námskeiðið Vítamín haldið hjá Hinu Húsinu  Hópefli og sjálfstyrking MENNTAMÁLARÁÐUNEYTIÐ hefur skipað tilsjónarmenn með fjármálum tveggja skóla vegna þess að ekki hefur tekist að fylgja fjárhagsáætlunum og greiða niður halla fyrri ára. Tilgangurinn er að ná utan um reksturinn. Menntamálaráðuneytið skipaði tilsjónarmann með fjármálum Fjöl- brautaskólans í Breiðholti í desem- ber og núna um áramótin var skip- aður tilsjónarmaður með fjármálum Háskólans á Hólum, samkvæmt upplýsingum Gísla Þórs Magnússonar, skrifstofustjóra fjár- málasviðs ráðuneytisins. Hann seg- ir að FB hafi skuldað um 50 millj- ónir kr. fyrir rúmu ári og ekki hafi tekist að grynnka á því, eins og áætlanir voru um. Hærri tölur eru í tilviki Háskól- ans á Hólum. 170 milljónir sem Al- þingi samþykkti á fjáraukalögum fyrir jól duga ekki fyrir öllum upp- söfnuðum halla. Þá fékk skólinn ekki 115 milljóna króna hækkun á fjárveitingum á núgildandi fjár- lögum sem nefnd til eflingar skól- ans hafði lagt til, þótt tillögurnar hafi verið samþykktar í ríkisstjórn. Skúli Skúlason, rektor Háskólans á Hólum, segir að erfiðara verði að fá varanlega niðurstöðu í málið þar sem fjárframlagið fékkst ekki hækkað. Hann hefur ekkert á móti skipan tilsjónarmanns. „Við upplifum þetta sem hreinan og kláran stuðn- ing við skólann, til að koma honum yfir þennan hjalla. Það er unnið hörðum höndum að leiðréttingu og áætlanagerð, með hans aðstoð. Við erum frekar bjartsýn, þótt málið sé erfitt,“ segir Skúli. Verið er að leita leiða til aðhalds og sparnaðar í rekstri og jafnframt tekjuöflunar. Unnið hefur verið að undirbún- ingi formbreytingar á rekstrarfyr- irkomulagi skólans, að gera hann að sjálfseignarstofnun. Skúli segir enn stefnt að því enda segist hann sannfærður um að það sé góð leið fyrir sérhæfðan skóla. helgi@mbl.is Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Hólar Hólaskóla var breytt í há- skóla og þar er nú fjárhagsvandi. Tilsjón á Hólum AFSTAÐA Ríkislögreglustjóra til Taser-rafbyssa liggur fyrir og kem- ur fram í skýrslu sem send var dómsmálaráðherra fyrir áramót. Afstaðan fæst hins vegar ekki upp- gefin að svo stöddu. Eftir að ríkislögreglustjóri af- henti dóms- og kirkjumálaráðu- neyti skýrslu sína fól ráðuneytið embættinu að skoða ákveðin atriði málsins. Sú athugun stendur enn yfir. „Spurning vaknaði við skýrslu RLS og var óskað frekari skýr- inga,“ segir Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra. Spurður um afstöðu embættisins til rafbyssa, en í skýrslunni er gerð tillaga með eða móti Taser- væðingu lögreglunnar, sagði Björn: „Nei, ekki fyrr en athugun er lok- ið.“ andri@mbl.is Afstaða RLS liggur fyrir UM 12% þeirra sem eru skráðir at- vinnulausir gegna reglubundnum hlutastörfum, samkvæmt upplýsing- um frá Vinnumálastofnun. Starfs- hlutfall getur verið allt frá 25% en al- gengast er að hlutfallið sé á bilinu 50-75%. Miðað við þetta má ætla að um 1.300 manns sem eru skráðir at- vinnulausir hafi hlutastörf. Á vef Vinnumálastofnunar í gær kom fram að tæplega 11.700 væru án atvinnu. Upplýsingarnar sem birtast á vefnum byggjast á tilkynningum um atvinnuleysi en ekki endanlegri skráningu, þ.e. eftir að öllum fylgi- skjölum hefur verið framvísað. Hjá stofnuninni fengust þær upplýsingar í gær að 11.246 væri nákvæmari tala um fjölda atvinnulausra. Í skýrslu Vinnumálastofnunar í desember kom fram að 1.270 erlend- ir ríkisborgarar væru atvinnulausir en gera má ráð fyrir að um 10-11.000 erlendir ríkisborgarar hafi verið við vinnu um áramótin. Vísbendingar eru um að þeim hafi fjölgað umfram íslenska ríkisborgara á atvinnuleys- isskrá, samkvæmt þeim upplýsing- um sem fengust hjá Vinnumálastofn- un í gær. runarp@mbl.is Um 12% á atvinnuleys- isskrá í hlutastörfum Vísbendingar um að atvinnuleysi meðal útlendinga aukist Í HNOTSKURN » 7.340 karlar eru atvinnu-lausir en 4.339 konur. » Þegar launamaður hefurþurft að draga úr starfs- hlutfalli sínu að kröfu vinnu- veitanda skerða þau laun sem hann heldur fyrir 50% eða hærra starfshlutfall ekki fjár- hæð atvinnuleysisbóta sem hann fær samhliða starfi. Hefur atvinnuleysi ungra aukist? Atvinnuleysi ungs fólks hefur aukist meira en þeirra eldri og hefur 16-24 ára atvinnulausum fjölgað úr 1.408 í lok nóvember í 2.069 í lok desember. Eru þeir um 23% allra atvinnu- lausra í desember, samkvæmt skýrslu Vinnumálastofnunar. Hverjar eru horfurnar? Gert er ráð fyrir áframhaldandi samdrætti í mörgum atvinnu- greinum, einkum verslun, mannvirkjagerð og þjónustu- greinum á næstu mánuðum auk þess sem mörg minni fyrirtæki eiga við mikinn fjárhagsvanda að stríða. S&S VEGNA slæms ástands á atvinnumarkaði gera skóla- stjórnendur framhaldsskólanna allt sem þeir geta til þess að halda nemendum í skólunum, að sögn Karls Kristjánssonar, deildarstjóra skóladeildar mennta- málaráðuneytsins. „Skólarnir reyndu að taka inn eins marga nemendur á vorönn og þeir gátu og litu þá ekki til þess hvort nem- endur hefðu dottið út áður eða ekki náð tilskildum ár- angri. Það var reynt að verða við óskum sem allra flestra um skólavist. Það var almenna línan,“ segir Karl sem jafnframt bendir á að samkvæmt nýjum lögum eigi nemendur rétt á að vera í skóla til 18 ára aldurs. „Það þýðir að þeir eiga rétt á að koma aftur þótt þeir detti út,“ bendir Karl á. ingibjorg@mbl.is Skólarnir taka sem flesta inn Karl Kristjánsson SVEITARFÉLAG Vestmannaeyja hefur hug á að fjármagna sjálft við- byggingu og viðgerðir á Safnahúsi Vestmannaeyja. Sveitarfélagið myndi þar með eignast viðbygg- inguna og framkvæmdirnar ekki koma til hækkunar á leigustofni hússins, sem er í eigu Eignarhalds- félagsins Fasteignar. Þetta segir Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Vest- mannaeyjum. Sveitarfélagið hefur, líkt og mörg önnur, ekki farið varhluta af hækkandi leigu húsnæðis í eigu Fasteignar þar sem 55% leigu- gjaldsins eru reiknuð út í evrum. „Við leitum allra leiða til að draga úr kostnaði og þó að við eig- um í góðu samstarfi við Fasteign, þá snýst þetta bara um krónur og aura.“ annaei@mbl.is Eignist við- bygginguna SKAMMDEGIÐ er að víkja, sólin farin að hækka á lofti og valda bílstjórum erfiðleikum eins og þessum á Kringlumýrarbrautinni í Reykjavík í gær, á mesta umferðartíma fá þeir geislana beint í augun. Einn þeirra er forsjáll og hefur brugðist við með því að setja upp sólgleraugu. Auk þess sem sólin getur blindað ökumanninn er alltaf öðru hverju hálka og því rétt að aka var- lega, jafnvel þótt mikið liggi á. Sólin er ekki búin að gleyma okkur Morgunblaðið/Ómar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.