Morgunblaðið - 20.01.2009, Page 11
Fréttir 11INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. JANÚAR 2009
Dagskrá
21. janúar kl. 15:00 til 17:00
Opinn fundur um vísindamál
15:00-16:00 Breyttar aðstæður, nýjar áskoranir
- Guðrún Nordal, formaður vísindanefndar
- Kristín Vala Ragnarsdóttir, forseti verkfræði- og náttúruvísindasviðs Háskóla Íslands
- Þórarinn Guðjónsson, varaforseti Vísindafélagsins
- Einar Stefánsson, prófessor og yfirlæknir Landspítala og frumkvöðull hjá Oxymap
- Þórdís Ingadóttir, dósent lagadeild Háskólans í Reykjavík
16:00-17:00 Pallborð og umræður
- Fundarstjóri: Leifur Hauksson
28. janúar kl. 15:00 til 17:00
Opinn fundur um tækniþróun og nýsköpun
15:00-16:00 Breyttar aðstæður, nýjar áskoranir
- Þorsteinn Ingi Sigfússon, formaður tækninefndar
- Þórður Magnússon, stjórnarformaður Eyris
- Sigríður Sigurjónsdóttir, prófessor í vöruhönnun Listaháskóla Íslands
- Vilhjálmur Þorsteinsson, fjárfestir á sviði upplýsingatækni
16:00-17:00 Pallborð og umræður
- Fundarstjóri: Leifur Hauksson
4. mars kl. 15:00 til 17:00
Kynning og umræður um drög að nýrri stefnu
Vísinda- og tækniráðs
Vísindanefnd og tækninefnd boða til opinna funda
um mótun nýrrar vísinda- og tæknistefnu í Nýja
Kaupþing banka hf, Borgartúni 19, Reykjavík
2009-2012
VÍSINDA &
TÆKNISTEFNA
Eftir Svanhildi Eiríksdóttur
Reykjanesbær | „Það er mikill
kraftur og jákvæðni sem ríkir hér á
svæðinu við að spyrna við fótum.
Þrátt fyrir bölsýnisspár sé ég tæki-
færi framundan og þau er best að
nýta en ekki sitja auðum höndum
heima í sófa. Hér er fólk án atvinnu
sem vill láta gott af sér leiða, m.a. við
kennslu og leiðsögn,“ sagði Hjörleif-
ur Hannesson við opnun Virkjunar á
fimmtudag en Hjörleifur er einn af
þeim sem misst hafa atvinnuna.
Virkjun – miðstöð fyrir fólk í at-
vinnuleit mun hefja starfsemi mánu-
daginn 19. janúar og var dagskráin
kynnt af Önnu Lóu Ólafsdóttur
verkefnisstjóra hjá Miðstöð sí-
menntunar á Suðurnesjum. Virkjun
er ætlað að byggja upp starfsemi
fyrir íbúa á Reykjanesi sem leita
nýrra tækifæra í atvinnu og námi en
markhópurinn er einkum atvinnu-
lausir. Nú þegar hefur umsóknum í
nám hjá Keili, Miðstöð símenntunar
á Suðurnesjum og Fjölbrautaskóla
Suðurnesja aukist. Virkjun verður
ekki síður samkomustaður fólks sem
vill breyta því áfalli sem atvinnuleysi
er í ný tækifæri á atvinnumarkaði
með námi, námskeiðum, tóm-
stundum og menningarstarfsemi, en
allar þessar leiðir verða í boði, ásamt
sjálfsstyrkingu, ráðgjöf og sér-
fræðiþjónustu. Starfseminni er ætl-
að að vera sjálfbær og að miklu leyti
unnin í sjálfboðavinnu.
1.400 einstaklingar á Suður-
nesjum eru nú án atvinnu en starf-
semin er samstarfsverkefni sveitar-
félaganna á Suðurnesjum,
Vinnumálastofnunar, stéttarfélaga,
fyrirtækja og menntastofnana á
svæðinu. Atvinnuleysi mælist mest á
Suðurnesjum, um 10%, en um 5% á
landinu öllu. Við opnunina á fimmtu-
dag kom fram að mikil jákvæðni hef-
ur einkennt allan undirbúning Virkj-
unar. Að sögn Ásmundar
Friðrikssonar verkefnisstjóra hjá
Reykjanesbæ hefur orðið nei ekki
þekkst og allir hafa lagt sig 100%
fram. Gylfi Arnbjörnsson forseti
ASÍ sagði mikilvægt skref vera tekið
með opnun Virkjunar þar sem vissu-
lega væri mikill vandi framundan
sem mikilvægt væri að taka á strax.
Guðbrandur Einarsson formaður
Verslunarmannafélags Suðurnesja
tók í sama streng og sagði að sam-
starf þeirra fjölmörgu aðila, sem á
undanförnum vikum og mánuðum
hafi unnið af mikill elju og dugnaði,
sé nú að bera ávöxt. „Þetta er starf
sem við vildum ekkert vinna og
gjarnan vildi ég skella í lás strax á
morgun, en þetta er veruleikinn. Við
hér á Suðurnesjum vorum fyrst nið-
ur í efnahagslægðinni og verðum
fyrst upp aftur,“ sagði Guðbrandur.
Getum leitt fólk áfram
Fyrsti og eini starfsmaður Virkj-
unar er Páll Rúnar Pálsson rekstr-
arfræðingur, sem nýverið missti
vinnuna. Hann kom að undirbún-
ingsvinnunni um miðjan desember
eftir að Ásmundur Friðriksson verk-
efnisstjóri hafði samband við hann
og bað hann að vera með. „Ég efast
ekki um að hér verði tækifærin að
veruleika. Það er búið að vera mjög
magnað að finna hvað allir eru já-
kvæðir fyrir þessu, bæði fyrirtæki
og einstaklingar sem hafa eitthvað
fram að bjóða.“
Virkjun er staðsett í 1.300 fer-
metra húsnæði á Vallarheiði sem áð-
ur hýsti launadeild varnarliðsins og
afhenti Pálmar Guðmundsson verk-
efnisstjóri Þróunarfélagsins Kadeco
húsæðið formlega við opnunina.
Starfsemi er fyrirhuguð í öllu hús-
næðinu og sagði Páll Rúnar að hann
væri eins konar ráðskona staðarins.
„Ég mun halda utan um skráningar
á fólki og niðurröðun í húsið og slíkt
og vera hérna á staðnum.“ Páll Rún-
ar sagði að fyrst um sinn muni
þarfagreining fara fram. „Fjölmarg-
ir sérfræðingar hafa boðið sína þjón-
ustu og námskeiðsframboð mun fara
eftir því hversu margir koma á stað-
inn. Við gerum okkur grein fyrir því
að það getur tekið fólk tíma til að
átta sig á þess. Við ætlum að byrja
og þá kemur vonandi fólkið.“
– Getið þið sinnt 1.400 manns?
„Já, vonandi. Ég hugsa að við ætt-
um alveg að geta gert það, allavega
leitt það áfram í einhverja farvegi,“
sagði Pálmar í samtali við blaða-
mann.
Ætla að snúa baki við
vonleysi og svartsýni
Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir
Virkjun Páll Rúnar Pálsson rekstrarfræðingur sem nýverið missti vinnuna
mun hafa yfirumsjón með daglegri starfsemi Virkjunar.
Virkjun hefur tekið til starfa á Vallarheiði með það að
markmiði að snúa vörn í sókn í efnahagsþrengingum
„FANGELSIÐ og starfsfólk þess
hefur frá upphafi gert allt sem hægt
var til þess að létta fanganum lífið og
aðstoða hann við námið, þ.m.t. að
veita honum aukinn aðgang að int-
erneti sem þó er undir eftirliti. Fyr-
irsögnin andar því köldu í garð
þeirra sem að málum koma á Litla-
Hrauni,“ skrifar Erlendur S. Bald-
ursson afbrotafræðingur fyrir hönd
forstjóra Fangelsismálastofnunar
ríkisins í athugasemd sem Morgun-
blaðinu hefur borist. Erlendur vísar
til umfjöllunar blaðsins sl. sunnudag
þar sem fjallað var um málefni Birgis
Páls Marteinssonar undir fyrirsögn-
inni „Á þetta bara að vera refsivist?“
en Birgir afplánar sjö ára fangels-
isrefsingu á Litla-Hrauni vegna að-
ildar sinnar að Pólstjörnumálinu.
Í athugasemd Erlends kemur
fram að á Litla-Hrauni sé unnið mik-
ið meðferðarstarf og í boði sé tóm-
stundastarf, líkamsrækt, nám, vinna
og ýmis námskeið. „Stefna fangels-
isyfirvalda er í stuttu máli sú að gera
föngum kleift að rækta garðinn sinn.
Sérstaklega hefur verið hugað að
námi fanga hvað þetta varðar og í
ágúst sl. var sérstakur námsráðgjafi
ráðinn til starfa.
Það breytir hins vegar ekki þeirri
staðreynd að fangelsi er fangelsi og
þeir sem þar dvelja gegn vilja sínum
kvarta eðilega oft undan þeim tak-
mörkunum sem ávallt hljóta að vera
til staðar á slíkum stöðum. Ekki er
heldur unnt að vista nema lítinn
hluta fanga í opnu fangelsi á Kvía-
bryggju þó svo að þeir uppfylli skil-
yrði þar að lútandi.
Haft er eftir Brynjari Níelssyni
hrl. að viðkomandi fangi eigi ekki
heima á Litla-Hrauni. Hver á heima
á Litla-Hrauni? Ekkert er óeðlilegt
við það að maður sem orðinn er 26
ára gamall og dæmdur í sjö ára fang-
elsi fyrir stórfellt fíkniefnabrot vist-
ist tímabundið í aðalfangelsi lands-
ins. Fangelsi landsins eru ekki bara
refsivist þau eru hins vegar fang-
elsi,“ skrifar Erlendur.
„Fangelsin ekki
bara refsivist“
Föngum kleift að rækta garðinn sinn
EINN inflúensu-
stofn af þremur
er orðinn ónæm-
ur fyrir því lyfi
sem helst er not-
að við sjúkdómn-
um. Almennt er
lyfið notað í litlum
mæli hérlendis.
Þeir þrír stofn-
ar veira sem
valda inflúensu eru H1N1, H3N2 og
B. Næmispróf sýna að fyrstnefndi
stofninn er orðinn ónæmur fyrir lyf-
inu Tamiflu en auk þess er flensa í
einhverjum tilfellum meðhöndluð
með lyfinu Relenza. „Það er afar
óheppilegt að þetta skuli gerast,“
segir Haraldur Briem sóttvarna-
læknir. „Því viljum við að menn taki
veirusýni svo við getum áttað okkur
á því hvaða stofn er í gangi.“
Munurinn á lyfjunum er helstur sá
að Tamiflu er í töfluformi en Relenza
er innúðalyf, að sögn Haraldar, sem
undirstrikar að bæði lyfin séu notuð í
miklu hófi. Tamiflu hafi verið ávísað
á um 500 einstaklinga í fyrra og Re-
lenza á sex. Flestir komist yfir sjúk-
dóminn af eigin rammleik. Hann tel-
ur flest tilfelli inflúensu nú vera
vegna H3-stofnsins en það geti verið
breytilegt. Sýnatökur leiði vonandi
fljótlega í ljós hver stofnanna sé ráð-
andi um þessar mundir.
ben@mbl.is
Inflúensuveirustofn
myndar ónæmi við lyfi
Haraldur Briem