Morgunblaðið - 20.01.2009, Síða 13
Fréttir 13INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. JANÚAR 2009
FRÉTTASKÝRING
Eftir Þórð Snæ Júlíusson
thordur@mbl.is
ANNAR stærsti opinberi fjárfestingarsjóður
heims, Qatar Investment Authority (QIA),
bauðst til að kaupa fimmtungshlut í Kaupþingi í
júlí síðastliðnum og greiða fyrir með reiðufé. Til-
boðið var munnlegt og vildi sjóðurinn greiða fyrir
sem svaraði innra virði hlutarins án tillits til
óefnislegra eigna. Markaðsvirði 20 prósenta hlut-
ar í Kaupþingi á þessum tíma var yfir 100 millj-
arðar króna. Þetta staðfesta bæði Sigurður Ein-
arsson, fyrrv. stjórnarformaður Kaupþings, og
Ólafur Ólafsson, annar stærsti eigandi bankans
fyrir fall hans. Stjórnarformaður QIA er Sjeik
Hamad bin Jassim bin Jaber Al Thani, forsætis-
og utanríkisráðherra Katars. Forsvarsmönnum
Kaupþings fannst tilboðið ekki ásættanlegt og
töldu bankann ekki þurfa á nýju lausafé að halda
á þeim tíma. Tæpum þremur mánuðum síðar féll
Kaupþing.
Ólafur kemur á fundi
Ólafur segir að hann hafi verið beðinn að koma
á fundi milli bankans og QIA í fyrravor. Kaup-
þing hafi á þeim tíma verið að leita eftir fjár-
festum í Mið-Austurlöndum í nokkurn tíma. Fyr-
ir tilstilli Ólafs, sem hafði verið í persónulegum
tengslum við konungsfjölskylduna í Katar árum
saman, fundaði fulltrúi Kaupþings með QIA í
Doha, höfuðborg Katars, 27.-28. mars í fyrra. Þar
var starfsemi Kaupþings kynnt fyrir hinum
væntanlegu fjárfestum.
Þann 22. apríl 2008 funduðu fulltrúar Kaup-
þings síðan í fyrsta sinn um væntanlega fjárfest-
ingu með Al-Thani forsætisráðherra og stjórn-
arformanni QIA. Sá fundur fór fram í Berlín í
Þýskalandi og að sögn Ólafs kom fram mikill
áhugi hjá honum á að koma að Kaupþingi. „Þeim
fannst Kaupþing afar áhugaverður banki. Annar
fundur var síðan haldinn með helstu stjórnendum
QIA í London í beinu framhaldi.“ Sigurður Ein-
arsson og Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrv. for-
stjóri Kaupþings, sátu báðir fundinn í London.
Á síðasta hluthafafundi Kaupþings hafði verið
samþykkt að bjóða út allt að 20 prósent af nýju
hlutafé í bankanum. Á næsta fundi Kaupþings-
manna með stjórn og stjórnendum QIA, sem var
haldinn í sumarhúsi forsætisráðherra Katars í
Frakklandi þann 28. maí, lá fyrir að sjóðurinn
hafði áhuga á að kaupa allt það hlutafé sem til
stóð að auka í Kaupþingi. Fyrir hönd Kaupþings
sátu helstu stjórnendur bankans þennan fund.
Það sem meira var, QIA vildi kaupa hlutinn og
greiða fyrir hann allan með reiðufé.
Á þessum tíma voru hinir væntanlegu kaup-
endur búnir að ráða PricewaterhouseCoopers og
ónefndan erlendan fjárfestingarbanka til að
framkvæma ítarlega könnun á Kaupþingi. Í kjöl-
far hennar staðfesti forsætisráðherra Katars að
vilji væri fyrir því að koma að Kaupþingi. Þeir
höfðu á þeim tíma þegar keypt stóran hluta í
breska bankanum Barclays og auk þess tilkynnt
að til stæði að fjárfesta í fleiri bönkum á næstu
árum. QIA var því vel undirbúið.
Töldu tilboðið allt of lágt
Tilboð QIA í fimmtungshlut í Kaupþingi var
síðan lagt fram munnlega á fundi í Doha í júlí síð-
astliðnum. Það hljóðaði upp á að sjóðurinn myndi
greiða bókfært innra virði hluta án viðskiptavild-
ar, ekki markaðsvirði. Gengi bréfa í Kaupþingi
var á bilinu 710 og 730 á hlut í júlí síðastliðnum
og því hefði markaðsvirði þess hlutar sem QIA
vildi kaupa verið yfir 100 milljarðar króna.
Forsvarsmönnum Kaupþings þótti þetta tilboð
hins vegar ekki ásættanlegt enda töldu þeir
lausafjárstöðu bankans góða á þessum tíma. Til-
boðinu var því hafnað.
Hins vegar hittust fulltrúar beggja aðila einu
sinni enn í ágúst og ákváðu þar að setjast aftur
yfir málið þegar ramadan, föstumánuði múslíma,
væri lokið. Honum lauk í byrjun október síðast-
liðins, á svipuðum tíma og íslensku bankarnir
voru að falla.
Vildu kaupa fimmtung
Fjárfestingarsjóður í
Katar vildi kaupa 20%
hlut í Kaupþingi
Ljósmynd/Hanna Lilja Valsdóttir
Persónuleg tengsl Ólafur Ólafsson, sem á þeim tíma var annar stærsti eigandi Kaupþings, ásamt
meðlimi Al-Thani-fjölskyldunnar og öðrum vinum í Flatey 31. júlí síðastliðinn.
Í HNOTSKURN
»Fulltrúar fjárfestingarsjóðs í Katarfunduðu fimm sinnum með forsvars-
mönnum Kaupþings um möguleg kaup
sjóðsins í bankanum.
»Sjóðurinn lagði fram tilboð í 20 pró-senta hlut í júlí en var hafnað. Hann
ætlaði að greiða fyrir með reiðufé.
BRÓÐIR emírsins af Katar, Sjeik Mohamed Bin
Khalida Al-Thani, hafði mikinn áhuga á samstarfi
við Kaupþing að sögn Ólafs Ólafssonar þó að QIA
kæmi ekki að bankanum sem eigandi. Meðal þess
sem hann skoðaði í því sambandi var að setja á fót
alþjóðlegan fjárfestingarsjóð ásamt bankanum.
Kaupþing átti á þessum tíma umtalsvert af hluta-
bréfum í sjálfu sér og fór þess á leit að fyrsta
skrefið í samstarfinu við nýtt íslenskt fjárfesting-
arfélag Al-Thanis, Q Iceland Finance ehf., yrði að
það keypti fimm prósenta hlut í bankanum.
Al-Thani samþykkti að kaupa hlutinn en vildi
einungis vera í ábyrgð fyrir helmingnum af kaup-
unum. Kaupverðið var 25,6 milljarðar króna.
Að sögn Ólafs hafði Al-Thani lagt fram ábyrgð-
ir að upphæð 200 milljónir evra vegna væntan-
legra viðskipta sinna við Kaupþing og var hluti
þeirra notaður til ábyrgðar
fyrir láni frá Kaupþingi beint til Q Iceland Fin-
ance, samtals 12,8 milljarðar króna. Hinn helm-
ingur kaupverðsins lánaði Kaupþing einnig, en
hann var lánaður til félags á bresku Jómfrúr-
eyjum, skráð á Ólaf Ólafsson, sem lánaði féð síðan
áfram til Al-Thani. Þannig var Al-Thani ekki í
persónulegum ábyrgðum fyrir helmingi lánsins,
12,8 milljörðum króna. Ólafur sagði að hann sjálf-
ur hefði ekki haft neinn ávinning af þessum við-
skiptum.
Hann sagði ennfremur að Al-Thani hefði greitt
12,5 milljarða króna af láninu sem var með
ábyrgðum hinn 8. október. Þetta hefði hann gert
eftir að hafa keypt vel á þrettánda milljarð króna
fyrir 50 milljónir dala sem hann hefði átt á banka-
reikningi í Kaupþingi í Lúxemborg. Þannig nýtti
hann sér mikið gengisfall íslensku krónunar í
neyðarlagavikunni til að kaupa um 250 krónur á
hvern dal. Samkvæmt heimildum Morgunblaðs-
ins sá Kaupþing í Lúxemborg um að útvega hon-
um krónur á því verði og bankinn tók á sig allt
tap vegna þessa. Ef miðað er við gengi Seðla-
bankans myndu fást um 6,4 milljarðar króna í
dag fyrir 50 milljónir dala.
Í yfirlýsingu sem Sigurður Einarsson sendi frá
sér í gær kom fram að Kaupþing hefði lánað Al-
Thani 50 milljónir dala til að kaupa skuldatrygg-
ingar á bankann með verulegum afföllum. Þessa
fjármuni notaði Al-Thani síðan til að kaupa krón-
ur og greiða fyrir helminginn af hlutnum sem
hann keypti í Kaupþingi.
Ólafur sagði að 21. október hefði hann síðan
haft persónulega milligöngu un að greiða eft-
irstöðvarnar af láni Al-Thanis sem var í ábyrgð,
alls 402 milljónir króna. Hinn helmingurinn sem
lánaður var í gegnum félagið á bresku Jóm-
frúaeyjunum er hins vegar tapaður.
thordur@mbl.is
Kaupþing fjármagnaði kaup Al-Thani
Í Flatey Sjeikinn Al-Thani við þyrlu Ólafs Ólafs-
sonar í Flatey hinn 31. júlí síðastliðinn.
Í DAG, þriðju-
dag kl. 12.05,
heldur Kjartan
Ólafsson, fyrr-
verandi ritstjóri
Þjóðviljans, fyr-
irlestur í Þjóð-
minjasafninu
undir heitinu
„Hetjudáð eða
hermdarverk?“
Í erindinu verður fjallað um at-
burði úr sögu nálægra ríkja og
rætt um hversu mjótt getur verið
á mununum þegar reynt er að
flokka gerðir manna ýmist sem
hetjudáðir eða hermdarverk. Í síð-
ari hluta erindisins verður fjallað
um símahlerarnir íslenskra stjórn-
valda hjá pólitískum andstæð-
ingum þeirra.
Fyrirlestur um
hermdarverk
Kjartan Ólafsson
Í GÆR var fjórtándi dagur eftir jól
í rússnesku rétttrúnaðarkirkjunni.
Daginn áður er venja að blessa
vatnið. Haldin er athöfn við haf,
fljót eða stöðuvatn. Presturinn veð-
ur út í vatnið og fer með bænir.
Í þeim tilgangi fór söfnuður heil-
ags Nikulásar úr Moskvupatríark-
inu í Reykjavík niður í Nauthólsvík
þar sem prestur þeirra, Timothy
Zolotuskiy, blessaði hafið. Eftir það
fór hann og aðrir safnaðarmeðlimir
þrisvar í kaf í sjónum, í nafni föð-
urins, sonarins og heilags anda.
Böðuðu sig í nafni
Jesú Krists
LÆKNARÁÐ St. Jósefsspítala
harmar fyrirætlanir stjórnvalda
um að leggja starfsemi spítalans
niður og lýsir yfir megnri óánægju
með skort á samráði.
Rökin fyrir því að færa starfsemi
spítalans til Keflavíkur eru m.a.
þau að skurðstofur St. Jósefsspítala
séu illa búnar og úreltar. Þessum
rökum mótmælir læknaráðið.
Skurðstofurnar séu góðar fyrir þá
starfsemi sem þar fer fram.
„Það er því eindregin skoðun
læknaráðs að fyrirhuguð lokun St.
Jósefsspítala sé vanhugsuð aðgerð
sem skorti fagleg rök, geti ógnað
öryggi sjúklinganna og hefur ekki
sýnt fram á marktækan sparnað.“
St. Jósefsspítali
ekki illa búinn
Tillögur um nýja stjórnarskrá hafa
heyrst og þeirri hugmynd hefur
verið fleygt að með nýrri stjórn-
arskrá væri lagður grunnur að nýju
lýðveldi á Íslandi. Í erindi á Lög-
fræðitorgi í Háskólanum á Ak-
ureyri í dag leitar Ágúst Þór Árna-
son svara við þeirri spurningu
hvort nýrri stjórnarskrá fylgi óhjá-
kvæmilega nýtt lýðveldi. Erindið
hefst kl. 12 í stofu L 201 á Sólborg.
Nýtt lýðveldi?
Efnalaugin Björg
Áratuga reynsla og þekking
- í þína þágu
.....alltaf í leiðinni
Opið: mán-fim 8:00-18:00 • fös 8:00-19:00 • laugardaga 10:00-13:00