Morgunblaðið - 20.01.2009, Síða 23

Morgunblaðið - 20.01.2009, Síða 23
Minningar 23 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. JANÚAR 2009 ✝ Ólafía Karlsdóttirfæddist í Bakka- koti á Seltjarnarnesi 2. ágúst 1909. Hún lést á Hrafnistu í Hafnarfirði 12. janúar síðastliðinn. For- eldrar hennar voru Sigríður Jónsdóttir, f. í Krísuvík 29.8. 1874, d. 7.8. 1959, og Karl Guðmundur Ólafsson skipstjóri frá Bygg- garði á Seltjarn- arnesi, f. 10.8. 1872, d. 18.7. 1925. Ólafía var sjötta í röð átta systkina. Ein systir er á lífi. Systkini Ólafíu eru Kar- ólína, f. 3. 6. 1900, d. 5.2. 1988; Guðjón, f. 27.11. 1901, d. 15.5. 1966; Þorbjörg, f. 3.12. 1903, d. 25.2. 1994; Inga Jóna, f. 29.11. 1905, d. 22.6. 1999; Guðrún, f. 20.8. 1907; Bjarni, f. 8.9. 1911, d. 6.12. 1999; og Hrefna, f. 18.10. 1914, d. 2.6. 2001. Ólafía giftist 23.12. 1934 Hauki Jónssyni trésmíðameistara, f. 31.10. 1899, d. 9.7. 1970. Foreldrar hans voru Guðrún Guðmundsdóttir og Jón Jónsson bóndi í Sigguseli á Mýrum. Dóttir Ólafíu og Hauks er Sigrún grunnskólakennari, f. 5.7. 1949, gift Magnúsi Helgasyni raf- virkja. Börn þeirra: 1) Auður um- hverfisstjórnunarfræðingur, f. 30.7. 1971, í sambúð með Jóhannesi Dags- syni heimspekingi og myndlist- armanni, sonur þeirra er Flosi, f. 20.10. 2005. 2) Haukur vélvirki, f. 4.4. 1974, kvæntur Önnu Kristínu Halldórsdóttur uppeldisfræðingi, dóttir þeirra er Natalía Yun, f. 24.3. 2006. 3) Árni byggingarfræðingur, f. 18.12. 1978, kvæntur Maríu Krist- ínu Gröndal hársnyrti, dætur þeirra eru Andrea Marín, f. 3.7. 2003, og Arna Bríet, f. 16.11. 2006. Útför Ólafíu fer fram frá Hafn- arfjarðarkirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 15. Mig langar að minnast Ólafíu Karlsdóttur tengdamóður minnar sem látin er á 100. aldursári á Hrafn- istu í Hafnarfirði. Ólafía eða Lóa eins og hún var köll- uð af vinum og ættingjum bjó fyrstu 10 æviárin á Seltjarnarnesi, en þá flutti fjölskyldan í Hafnarfjörð undir Hamarinn. Þrátt fyrir að hafa búið í Hafnarfirði í 89 ár taldi hún sig ávallt vera Seltirning. Hún sagði að lengi hefði hún saknað Seltjarnarnessins svo að hún fór daglega upp á Hamar að horfa til æskuslóðanna. Í Hafnarfirðinum átti Lóa góð ár. Að barnaskólagöngu lokinni tók vinn- an við eins og títt var í þá daga. Hún vann við ýmislegt svo sem sumarstörf í sveit, barnapössun og svo fiskvinnu hjá Hellyers-bræðrum og Ólafi Böðv- arssyni. Síðar vann hún í 20 ár við ræstingar í Öldutúnsskóla og hætti að vinna 75 ára gömul. Lóa var ein af stofnendum verkakvennafélagsins Framtíðar í Hafnarfirði. Hún lærði fatasaum hjá Karólínu systur sinni og lék saumaskapurinn í höndum hennar. Barnabörnin nutu góðs af saumaskap hennar og enn eru til flíkur sem hún saumaði á þau. Þessar flíkur bera vitni um einstak- lega fallegt handbragð og vandvirkni. Á yngri árum tók hún virkan þátt í leiklist hjá Leikflokki Hafnarfjarðar. Hún lék í mörgum leikritum þar og m.a. aðalhlutverkið í Tengdamömmu eftir Kristínu Sigfúsdóttur. Hún tal- aði oft um þennan tíma með blik í aug- um. Þessi ár voru henna alla tíð dýr- mæt. Á Þorláksmessu 1934 giftist Lóa Hauki Jónssyni trésmíðameistara, en hann var einn af stofnendum og eig- endum skipasmíðastöðvarinnar Drafnar. Lóa og Haukur byrjuðu sinn búskap á Suðurgötu 31 en byggðu sér fallegt hús á Hringbraut 63 og síðar á Ölduslóð 48. Haukur lést sjötugur að aldri 9. júlí 1970. Frá fyrsta degi er við Lóa kynnt- umst ríkti með okkur gagnkvæmt traust og vinátta og bar þar aldrei skugga á. Tengdamamma hafði sér- staka unun af að elda og var lista- kokkur hvort sem um var að ræða hversdags- eða veislumat. Einnig var hún bakari góður enda hafði hún unn- ið í bakaríinu hjá Ásmundi bakara. Á Ölduslóðinni byrjuðum við Sig- rún okkar búskap og búum þar reyndar enn. Í fyrstu bjuggum við á neðri hæðinni og Lóa á þeirri efri. Þetta var ómetanlegt fyrir okkur öll. Amma Lóa var ávallt reiðubúin fyrir okkur öll hvort sem var að gæta barnanna okkar leiðbeina þeim, hlusta á þau og hlúa að okkur á allan hátt. Henni verður aldrei nægjanlega þakkað fyrir þetta. Lóa var mikill húmoristi og hafði skemmtilega frásagnargáfu og frá- sagnargleði. Hún var mjög fróð og hafði ótrúlegt minni og fylgdist vel með þjóðfélagsmálum allt til síðasta dags og hafði sterkar skoðanir á þeim sem öðrum málum. Fjölskyldan var henni hjartfólgin og hún fylgdist grannt með okkur öll- um. Fram á síðasta dag spurði hún um langömmubörnin sín og hún þreyttist aldrei á að heyra sögur af þeim og sá þau fyrir sér í huganum hvert og eitt. Að leiðarlokum vil ég enn og aftur þakka Lóu tengdamömmu samfylgd- ina og bið Guð að varðveita hana. Magnús tengdasonur. Ólafía Karlsdóttir  Fleiri minningargreinar um Ólaf- íu Karlsdóttur bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga.         ✝ Ástkær móðir mín, tengdamóðir, amma og lang- amma, SIGURJÓNA STEINGRÍMSDÓTTIR, Hjúkrunarheimilinu Eir, áður Hagamel 35, Reykjavík, verður jarðsungin frá Neskirkju á morgun, miðvikudaginn 21. janúar kl. 11.00. Gylfi Guðmundsson, Marta Sigurðardóttir, Edda J. Gylfadóttir, Guðlaugur Viktorsson, Þórunn H. Gylfadóttir, Þorsteinn S. Guðmundsson, Guðmundur Gylfason, Valgerður Erlingsdóttir og barnabarnabörn. ✝ Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, HELGI KRISTJÁN HALLDÓRSSON, Sævarlandi 14, sem lést þriðjudaginn 13. janúar, verður jarð- sunginn frá Fríkirkjunni í Reykjavík fimmtudaginn 22. janúar kl. 15.00. Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir, en þeim sem vilja minnast hins látna er bent á minningar- sjóð félags aðstandenda Alzheimerssjúklinga, FAAS, í síma 533 1088. Elísabet Gunnlaugsdóttir, Lára V. Helgadóttir, Eiríkur Jónsson, Margrét Helgadóttir, Siegfried Hugemann, Gunnlaugur Helgason, Ágústa Valsdóttir, afabörn og langafabörn. ✝ Innilegar þakkir til allra er sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför okkar ástkæra eigin- manns, föður, tengdaföður, afa og langafa, STEFÁNS G. PÉTURSSONAR, Tröllagili 14. Sérstakar þakkir færum við starfsfólkinu á dvalar- heimilinu Hlíð og læknum sem önnuðust hann af mikilli alúð í veikindum hans. Guð blessi ykkur öll. Kristbjörg Magnúsdóttir, Helgi Magnús Stefánsson, Helga Kristjánsdóttir, María Sigurbjörg Stefánsdóttir, Leiknir Jónsson, Svandís Ebba Stefánsdóttir, Jóhannes Páll Héðinsson, Anna Kristín Stefánsdóttir, Anfinn Heinesen, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar elskulegrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, GUÐRÚNAR VIGDÍSAR SVEINBJARNARDÓTTUR, Höfðavegi 20, Vestmannaeyjum. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Heilbrigðisstofnunar Vestmannaeyja fyrir góða umönnun. Haraldur Gíslason, Ólöf Óskarsdóttir, Rannveig Gísladóttir, Hjörtur Hermannsson, Kristín Gísladóttir, Helga Gísladóttir, Geir Sigurlásson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Innilegar þakkir sendum við öllum þeim sem sýndu okkur hlýhug, vináttu og samúð við andlát og útför eiginmanns míns, föður okkar, afa og langafa, STEINDÓRS ÚLFARSSONAR málmsteypumeistara, Þangbakka 10, Reykjavík. Sérstakar þakkir sendum við Sigurði Böðvarssyni krabbameinslækni og starfsfólki líknardeildar Landspítalans í Kópavogi. Sigríður Jóna Jónsdóttir, Oddfríður Steindórsdóttir, Þórarinn Jón Magnússon, Úlfar Steindórsson, Jóna Ósk Pétursdóttir, Helga Jónína Steindórsdóttir, Gunnar Már Jóhannsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær eiginmaður, faðir, tengdafaðir, sonur, bróðir og afi, BIRGIR AXELSSON, Hraunbæ 194, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Grafarvogskirkju miðviku- daginn 21. janúar klukkan 11.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á Ljósið, endurhæfingar- og stuðningsmiðstöð fyrir krabbameinsgreinda og aðstandendur, sími 561 3770. Steinunn Bjartmarsdóttir, Einar Gunnar Birgisson, Bjartmar Birgisson, Ásta Björk Sveinsdóttir, Axel Valur Birgisson, Berglind Kristinsdóttir, Áslaug Guðlaugsdóttir, Kristín Axelsdóttir, Árni Ísleifsson, Edda Axelsdóttir, Ómar Friðriksson, Sveinn Andri, Álfheiður Edda, Birgir Þór, Anna Vala og Bergþór. ✝ Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ELÍN SIGURBJÖRT SÆMUNDSDÓTTIR, Borgarholtsbraut 62, Kópavogi, sem lést 10. janúar, verður jarðsungin frá Kópavogskirkju föstudaginn 23. janúar kl. 14:00. Innilegar þakkir til starfsfólks krabbameinsdeilda Landspítalans og Karitaskvenna, fyrir yndislega umönnun og hlýhug. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á hjúkrunar- og ráðgjafarþjónustu Karitas s. 770-6050 og 551-5606. Grímur Guðmundsson, Jón Elvar, Sigríður Markúsdóttir, Guðmundur Grímsson, Hrafnhildur Proppé, Finnur Grímsson, Þórunn Hafsteinsdóttir, Elín Grímsdóttir, Jón Bjarni Gunnarsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, HJÖRDÍS KARLSDÓTTIR ljósmóðir, Melalind 8, Kópavogi, sem lést laugardaginn 10. janúar, verður jarðsungin frá Bústaðakirkju fimmtudaginn 22. janúar kl. 13.00. Sigurður Gísli Bjarnason, Guðrún Hjálmarsdóttir, Símon Friðriksson, Steinunn Þorsteinsdóttir, Sigrún Sigurðardóttir, Ásgrímur Þór Pálsson, Steinar Sigurðsson, Ragnhildur Sverrisdóttir, Ragnhildur Sigurðardóttir, Smári Sveinsson, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.