Morgunblaðið - 20.01.2009, Qupperneq 24
24 Minningar
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. JANÚAR 2009
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
Spádómar
! "#$
%&' ()*)
+++,-$ ,
Atvinnuhúsnæði
Ca. 200 fm atvinnuhúsnæði
óskast til leigu
Óskum eftir að leigja snyrtilegt ca.
180-220 fm atvinnuhúsnæði á höfuð-
borgarsv. Með innk.dyrum, rúmgóðu
millilofti og WC. Þarf að vera full-
klárað (standsett). S: 772-5751,
naphila@internet.is
Sumarhús
Sumarhús - orlofshús.
Erum að framleiða stórglæsileg og
vönduð sumarhús í ýmsum stærðum.
Áratuga reynsla.
Höfum til sýnis á staðnum fullbúin
hús og einnig á hinum ýmsu
byggingarstigum.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
símar 892 3742 og 483 3693,
netfang: www.tresmidjan.is
Falleg og vönduð sumarhús frá
Stoðverk ehf. í Ölfusi.
Gott verð. Teiknum eftir óskum kaup-
enda, sýningarhús á staðnum. Einnig
til sölu lóðir á Flúðum.
Símar: 660 8732, 660 8730,
892 8661, 483 5009.
stodverk@simnet.is
Til sölu
Til sölu. Fjórar gamlar dráttarvélar til
að gera upp, Isuzu Trooper árg. 1999,
nýir spíssar, lítið keyrður, bein sala
eða skipti á dráttarvél, landbúnaðar-
tækjum eða 5 tonna vörubíl.
Upplýsingar í síma 865 6560.
Verslun
Rýmingarsala, 50-90% afsláttur
Dekurbúðin
Rýmingarsala, 50-90% afsláttur,
Dekurbúðin Laugavegi 67, gegnt GK.
Afsláttur af sloppum, koddum, sæng-
um, handklæðum og fl. Komdu og
gerðu frábær kaup.
Byggingavörur
www.vidur.is
Harðviður til húsbygginga. Vatns-
klæðning, panill, pallaefni, parket,
útihurðir o.fl. o.fl. Gæði á góðu verði.
Sjá nánar á vidur.is.
Upplýsingar hjá Magnúsi í símum
6600230 og 5611122.
Málarar
Málningarvinna
Þaulvanur málari ætlar að bæta við
sig verkefnum. Inni og úti. Vönduð og
öguð vinnubrögð. Sanngjarnt verð.
Uppl. í síma 897 2318.
Ýmislegt
Nýkomnir glæsilegir dömuskór
úr leðri og með skinnfóðri.
Margar gerðir. stærðir: 37 - 41
Verð: 14.880.-
Misty skór, Laugavegi 178,
sími 551 2070,
opið: mán. - fös. 10 - 18.
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.
www.misty.is
Nýi Freemans-listinn er kominn!
Aldrei verið glæsilegri. Listinn er til í
verslunum Office1 eða pantið listann
í s: 565-3900 eða www.freemans.is
ERUM VIÐ SÍMANN NÚNA.
Bílar
Toyota Avensis
1,8 sjálfskiptur, skr. 9/06. Dekurbíll,
ekinn 30.000 km, ekkert lán, verð
2.690.000. Engin skipti.
Sími 894 6562 og 867 9914.
Bílar óskast
Óska eftir nýlegum bíl
Óska eftir nýlegum, lítið eknum bíl.
Audi A4 árgerð 2003 upp í og stað-
greiðsla á milli. Ólafur 660-4027.
jobbagunn@hotmail.com
Bílaþjónusta Húsviðhald
Stigahúsateppi
Suðurlandsbraut 10, 108 Reykjavík.
Sími 533-5800. www.strond.is
Eruð þið leið á baðherberginu?
Breytum, bætum og flísaleggjum.
Upplýsingar í síma 899 9825.
Þjónustuauglýsingar 5691100
✝ Ragnheiður Bene-diktsdóttir fædd-
ist á Erpsstöðum í
Dalasýslu 1. júlí 1917.
Hún lést á taugalækn-
ingadeild Landspít-
alans í Fossvogi 11.
janúar síðastliðinn.
Foreldrar hennar
voru hjónin Benedikt
Snorrason, bóndi á
Erpsstöðum, f. 6.4.
1878, d. 20.3. 1960, og
Guðrún Guðmunds-
dóttir húsfreyja, f.
9.8. 1879, d. 15.8.
1947. Systkini Ragnheiðar voru
Hólmfríður, f. 9.2. 1902, d 30.6.
1988, Elísabet, f. 23.7. 1905, d. 21.4.
2006, Guðmundur, f. 3.5. 1907, d.
13.6. 1990, Guðfinna, f. 2.4. 1909, d.
19.10. 1980, Friðmey, f. 23.6. 1911,
d. 12.9. 2003, Sólveig, f. 20.6. 1914,
d. 7.11. 2005, og Anna, f. 23.4. 1919,
d. 28.10. 1996. Uppeldissystkini eru
Guðmundur Ólafsson, f. 19.12.
1899, d. 18.10. 1993, og Halldóra
Benediktsdóttir, f.
9.10. 1925. Ragnheið-
ur ólst upp hjá for-
eldrum sínum á Erps-
stöðum en sigldi til
Reykjavíkur frá Búð-
ardal 18 ára og starf-
aði þá og bjó hjá Lilju
Kristjánsdóttur,
Laugavegi 37. Hún
fór síðan heim í einn
vetur en kom aftur og
þá til hjónanna Níels-
ar Carlssonar og
Kristjönu Þórdísar
Árnadóttur á Lauga-
vegi 39 og hefur fylgt afkomendum
þeirra æ síðan. Hún starfaði lengi
við saumaskap, fyrst á Saumastof-
unni Lillu, Marbakka á Seltjarn-
arnesi og síðar hjá Fötum hf. á
Laugavegi 39, bakhúsi og lauk
starfsferli sínum hjá saumastofu
Últíma í Kjörgarði.
Útför Ragnheiðar fer fram frá
Bústaðakirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 13.
Elsku Ragna mín. Þú kvaddir á
sama hátt og þú lifðir, í fullkomnum
friði og ró. Ég fékk að njóta kærleiks-
ríkrar umhyggju þinnar allt frá fæð-
ingu. Fyrstu árin bjuggum við í sama
húsi, þú, afi og amma, ásamt fjöl-
skyldu minni. Ég minnist þess að þá
hafðir þú til afnota stórt herbergi en
eldaðir með ömmu. Seinna var inn-
réttuð séríbúð fyrir þig og koníaks-
stofan hans afa fékk nýtt hlutverk. Í
húsinu var mikið líf og fjör og mjög
gestkvæmt. Þú vannst handan bíla-
plansins og þangað leituðum við syst-
urnar stundum og sáum undur fram-
leiðslunnar í Föt hf. Mörg kvöldin
varst það þú sem söngst okkur í svefn
og fórst með bænirnar með okkur.
Síðan fluttum við í Urðarstekkinn
en þú sinntir áfram afa og ömmu. Það
verður seint fullþakkað hversu vel þú
hlúðir að þeim báðum en ekki síst afa
fram á hans hinsta dag. Eftir að ég
stofnaði fjölskyldu og flutti á næstu
hæð fyrir ofan þig með 3 lítil börn var
gott að eiga þig að. Þá leist þú eftir
Ásgeiri, Jóni Inga og Heiðdísi og urðu
til sterk kærleiksbönd milli ykkar. Ég
vissi að alltaf myndi ég koma að öllu
hreinu og fínu þegar þú værir nálæg
því snyrtimennska var þér í blóð bor-
in rétt eins og ljúfmennskan og börn-
in voru í bestu höndum sem völ var á.
Það var ósjaldan sem litla þrenningin
mín marseraði niður stigana að
morgni dags og klappaði á dyr til að fá
öðruvísi morgunkorn. Þú spilaðir við
þau og last og þegar yngsti dreng-
urinn fæddist kenndirðu honum marí-
as og lönguvitlausu eins og hinum.
Þú varst svo glöð þegar þú fékkst
hálfnöfnu og guðdóttur og tókst hana
undir þinn verndarvæng. Þú ljómaðir
líka í síðustu ferð þinni erlendis þegar
við heimsóttum Heiðdísi við stúdent-
sútskriftina hennar. Síðasta daginn
sem þú gast tjáð þig töluðuð þið sam-
an í síma. Hún hefði svo gjarnan viljað
vera hjá þér þessa síðustu daga.
Ömmubörnunum okkar, Katrínu
Klöru og Kolbrúnu Köru, tókstu eins
og öllum hinum börnunum með opn-
um örmum. Þær fá ekki að kynnast
þér eins og við hin en þær munu njóta
þess sem við lærðum af þér.
Aldrei heyrðist styggðaryrði frá
þér og þú barst harma þína í hljóði
þegar systkini þín og ástvinir kvöddu
þennan heim hvert á eftir öðru. Öllum
sem litu til þín veittir þú blíðu og ást-
úð á þinn rólega hátt.
Þú varst alltaf ein af okkur þó að
engin væru blóðböndin. Á Laugaveg-
inum var alltaf drekkhlaðið kaffiborð
og enginn fór svangur frá þér. Á 17.
júní og Þorláksmessu var eldhúsið
þitt miðstöð fjölskyldunnar. Síðustu
æviárin var þrekið farið að minnka og
mér hlotnaðist sá heiður að fá að að-
stoða þig. Áfallið sem þú varðst fyrir
milli jóla og nýárs gerði þér ljóst að
þú ættir ekki afturkvæmt heim og
ljósheimurinn kallaði sterkar á þig en
öldrunarheimili hér í bæ. Þig hafði
líka dreymt að þú sætir að kaffispjalli
með afa og Gunnu, vinkonu þinni,
stuttu fyrir jól. Þau voru að kalla þig
heim í ljósið. Þú varst sátt og við
kveðjum þig með þakklæti og miklum
kærleika. Megi minning þín lifa um
ókomna tíma.
Lilja Petra Ásgeirsdóttir.
Ragnheiður Benediktsdóttir
Fleiri minningargreinar um Ragn-
heiði Benediktsdóttur bíða birtingar
og munu birtast í blaðinu næstu daga.
✝
Kærar þakkir sendum við öllum er sýndu okkur
hlýhug og samúð við andlát og útför föður okkar
og tengdaföður,
ÞÓRÐAR JÓNSSONAR,
Grandavegi 47,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á deild 14E,
Landspítala Hringbraut, fyrir ljúfmennsku.
Páll Þórðarson, Þorbjörg Einarsdóttir,
Sigurlaug Þórðardóttir,
Birna Þórðardóttir,
Jón Þórðarson
og fjölskyldur.
✝
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og
hlýhug við andlát og útför móður okkar, tengda-
móður, ömmu og langömmu,
KLÖRU FRIÐRIKSDÓTTUR,
Hraunbúðum,
áður til heimilis á Látrum,
Vestmannaeyjum.
Sérstakar þakkir til starfsfólksins á Hraunbúðum
fyrir einstaka umönnun.
Friðrik Jónsson, Jakobína Guðmundsdóttir,
Svava Jónsdóttir, Þráinn Einarsson,
Guðjón Jónsson, Anna Svala Johnsen,
Ragnar Jónsson, Sigrún Hjaltalín,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Móðir okkar, tengdamóðir og amma,
SESSELJA GUÐJÓNSDÓTTIR,
áður Lyngheiði 9,
Selfossi,
sem lést þriðjudaginn 13. janúar, verður jarðsungin
frá Selfosskirkju föstudaginn 23. janúar kl. 13.30.
Bragi Bjarnason, Sigrún Ásgeirsdóttir,
Halldóra M. Bjarnadóttir,
barnabörn, barnabarnabörn og
barnabarnabarnabörn.
✝
Innilegar þakkir til allra þeirra er sýndu okkur
samúð og vinarhug við andlát og útför okkar
ástkæra eiginmanns og föður,
FREYSTEINS SIGURÐSSONAR
jarðfræðings,
og heiðruðu minningu hans.
Sérstakar þakkir til allra þeirra er aðstoðuðu bæði
hann og okkur í langvarandi veikindum hans.
Ingibjörg Sveinsdóttir,
Ragnhildur Freysteinsdóttir.