Morgunblaðið - 20.01.2009, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. JANÚAR 2009
“HRÖÐ, F
LOTT OG
FYNDIN
GAMAN
MYND.”
“...STÓRS
KEMMTI
LEG GLÆ
PAMYND
OG AÐD
ÁENDUR
RITCHIES
GETA TE
KIÐ GLE
ÐI SÍNA Á
NÝ.”
L.I.B. - TO
PP5.IS
HVAÐ EF ÆVINTÝRI OG DRAUMAR
ÞÍNIR MYNDU RÆTAST
ADAM SANDLER ER STÓRKOSTLEGUR
Í ÞESSARI FRÁBÆRU GAMANMYND
BEDTIME STORIES kl. 8 LEYFÐ
ROCKNROLLA kl. 10 B.i. 16 ára
CHANGELING kl. 10 B.i. 7 ára
YES MAN kl. 8 B.i. 7 ára
THE SPIRIT kl. 10 B.i. 12 ára
BEDTIME STORIES kl. 5:50 - 8D - 10:20 LEYFÐ DIGITAL
ROCKNROLLA kl. 8 - 10:20D B.i. 16 ára DIGITAL
ROCKNROLLA kl. 5:30 - 10:20 B.i. 16 ára LÚXUS VIP
YES MAN kl. 5:50 - 8 - 10:20 B.i. 7 ára
YES MAN kl. 8 LÚXUS VIP
CHANGELING kl. 5:30 - 8:30 B.i. 16 ára
BOLT m/ísl. tali kl. 5:503D LEYFÐ
THE SPIRIT kl. 10:20 B.i. 12 ára
TWILIGHT kl. 8 B.i. 12 ára
CITY OF EMBER kl. 5:50 B.i. 7 ára
BEDTIME STORIES kl. 6D - 8:10D - 10:20D LEYFÐ DIGITAL
ROCKNROLLA kl. 8D - 10:20D B.i. 16 ára DIGITAL
YES MAN kl. 6 - 8:10 - 10:20 B.i. 7 ára
BOLT m/ísl. tali kl. 63D LEYFÐ 3D - DIGITAL
BOLT m/ensku tali kl. 6:103D LEYFÐ 3D - DIGITAL
BEDTIME STORIES kl. 8 LEYFÐ
THE SPIRIT kl. 10:10 B.i. 12 ára
SÓLSKINSDRENGUR m/ísl. tali kl. 8 þriðjudagstilboð gildir ekki á íslenskar myndir LEYFÐ
TWILIGHT kl. 10:10 B.i. 12 ára
SÝND Í ÁLFABAKKA OG SELFOSSI
BYGGT Á SÖNNUMATBURÐUM
Frá Clint Eastwood,
óskarsverðlauna-
leikstjóra Mystic River,
Million Dollar Baby og
Unforgiven.
Tilnefnd til 2
Golden Globe verðlauna
BEDTIME STORIES kl. 8 LEYFÐ
THE SPIRIT kl. 10:10 B.i. 7 ára
CITY OF EMBER kl. 8 B.i. 7 ára
FOUR CHRISTMASES kl. 10:10 B.i. 7 ára
AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELLFOSSI SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI OG AKUREYRI
SÝND Í ÁLFABAKKA, KEFLAVÍK OG SELLFOSSI
FILMCRITIC.COM
“JIM CARREY KEMUR LOKS INN Í GRÍNIÐ AFTUR
EFTIR FULLLANGA FJARVERU, OG HANN VELDUR
ALLS EKKI VONBRIGÐUM!”
TOMMI - KVIKMYNDIR.IS
VIPSALURINNER BARA LÚXUS
ER STAÐSETTUR Í SAMBÍÓUNUM ÁLFABAKKA
V.J.V TOPP5.IS
SÝND Í ÁLFABAKKA OG AKUREYRI
„HEILLANDI, FULLORÐINS ÞRILLER,
MEÐ ÓTVÍRÆÐRI ÓSKARSFRAMMISTÖÐU
FRÁANGELINU JOLIE.“
- EMPIRE
SÝND Í ÁLFABAKKA OG KEFLAVÍK
EMPIRE
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI OG AKUREYRI
SÝND Í ÁLFABAKKA OG KRINGLUNNI
L.I.B. – FRÉTTABLAÐIÐ
SÝND MEÐ Í
SLENSKU
OG ENSKU
TALI
ÁLFABAKKA KRINGLUNNI
AKUREYRI KEFLAVÍK SELFOSSI
SAMbio.is
Reykjavík • Akureyri • Keflavík • Selfoss
Ámilli jóla og nýárs gafst mértími til að kíkja á tværmerkar heimildarmyndir
sem hafa einhverra hluta vegna
ekki ratað inn í myndspilarann fyrr
en nú. Annars vegar var það heim-
ildarmynd Juliens Temple, Joe
Strummer: The Future Is Unwrit-
ten, um leiðtoga The Clash og svo
The Clash: Westway to the World
eftir Don Letts, heimildarmynd frá
2000.
Myndin um Strummer rataðinýverið inn á leigur hér-
lendis og var búið að lofa hana í há-
stert í mín eyru lengi, lengi. Hina
tók ég svo með sem einhvers konar
viðbæti og mælist ég eiginlega til
þess að fólk byrji á því að horfa á
hana, eigi það þetta tvennt eftir.
Þessi samloka gefur manni nefni-
lega ágæta innsýn í líf og störf
Strummer, en sveit hans, The
Clash, er af mörgum talin ein
merkasta rokksveit sem nokkru
sinni hefur starfað. Þeir sömu
gráta líka örlög hennar nokkuð og
það má vel færa rök fyrir því að
hana hafi þrotið örendið óþarflega
snemma. Undir restina var nokk-
urs konar ofursveitarára tekin að
leika um hana, svo virtist sem hún
ætlaði að verða U2 á undan U2
sjálfum. En svo kollsteyptist allt
heila gillið á einni nóttu eða því
sem næst.
Fyrir nokkrum árum tók heim-ildarmyndagerð undir sig
ákveðið þroska- og þróunarstökk.
Menn hófu að beita nýstárlegum
aðferðum við að matreiða efnið og
það má segja að þessar tvær mynd-
ir séu fyrir og eftir breytingu.
The Clash: Westway to the
World er þannig mjög hefðbundin í
uppbyggingu, rúllar eiginlega
áfram eins og kennslumyndband.
Ramminn er aldrei brotinn upp
með einhverju óvenjulegu, það er
keyrt áfram á viðtölum í myndveri
sem eru brotin upp reglubundið
með tóndæmum, myndskeiðum eða
ljósmyndum. Þrautreynd formúla
og hún virkar vel hér, kannski að-
allega vegna þess að sagan er góð.
Og auk þess gefa allir meðlimir
færi á sér, en Strummer lést síðan
sviplega árið 2002, tveimur árum
eftir að myndin kom út.
The Clash skar sig nokkuð fráöðrum pönkhljómsveitum.
Þeir voru fyrir það fyrsta vel spil-
andi (utan mögulega Pauls Simon-
on, bassaleikara, sem er svalleikinn
holdi klæddur). Meðlimir voru
svona „fullorðins“; gengi af harð-
skeyttum ástríðufullum mönnum
sem báru með sér bæði textalegan
boðskap og barmafylli af frábærri
tónlist sem varð framsæknari og
ævintýralegri með hverju miss-
erinu. Í raun brotnaði The Clash
undan eigin metnaði, meðlimir
kunnu einfaldlega ekki að hlífa sér
og eftir fimm ára linnulaust hjakk
var skaðinn einfaldlega skeður. En
á meðan Letts gefur ágæta, sögu-
lega mynd tekst Temple að kafa að-
eins dýpra.
Temple gerði hina frábæru TheFilth and The Fury (2000) þar
sem hann nýtti sér óhefðbundin
meðul til að koma sögu og arfleifð
Sex Pistols, pönkhljómsveitarinnar,
á framfæri. Í raun fer hann eins að í
Strummer-myndinni; hann nýtir
sér teiknimyndir, búta úr gömlum
kvikmyndum o.fl. til að vefa saman
sannfærandi, heildstæða frásögn.
Temple leitast við að fanga sál
Strummer og hlífir honum ekki,
ekki frekar en Strummer sjálfur.
Kostir og gallar eru því dregnir
fram. Á einum stað segir Letts
t.a.m. fullum fetum að Strummer
hafi verið heigull og hafi forðast
átök og árekstra í mannlegum sam-
skiptum.
En um leið kemur það rækilega
fram að Strummer var rómantíker,
maður sem sá í gegnum það efn-
islega. Hann var engu að síður
breyskur og háði daglega baráttu
við það að vilja vera frægur og það
að vilja yppa öxlum yfir holum
heimi frægðarinnar.
Og eins og sannur listamaður varhann ofurviðkvæmur en var
um leið eiginlega dæmdur til að
hrífa fólk með sér. Því að alltaf var
allt gefið, allt var meint, allt var
alla leið. Það er ekki létt að vera
„allt eða ekkert“ maður og titill
Clash-lagsins „Death or Glory“ seg-
ir býsna margt um það hvernig
Strummer hagaði lífi sínu. Strum-
mer lést síðan árið 2002 úr dular-
fullum hjartasjúkdómi og varð
mörgum harmdauði.
Það er eins og maður horfi á allt í
gegnum kreppugleraugu í dag en á
þessum tímum sviptinga og hrær-
inga; þegar gildi og viðmið sem
voru eitt sinn sjálfsögð eru það ekki
endilega lengur er hægt að gera
margt vitlausara en að kynna sér
feril manns sem að minnsta kosti
reyndi – og það af öllum lífs og sál-
arkröftum – að halda í eitthvað sem
hægt er að kalla hugsjónir.
arnart@mbl.is
Dýrðina, annars dauðann
AF LISTUM
Arnar Eggert Thoroddsen
»Hann var engu aðsíður breyskur og
háði daglega baráttu við
það að vilja vera frægur
og það að vilja yppa öxl-
um yfir holum heimi
frægðarinnar.
Áhrif Joe Strummer, fyrrum leiðtogi The Clash, snart marga með tónlist sinni og viðhorfum.
BANDARÍSKI
leikarinn Robert
Downey jr. vand-
ar leikstjóra sín-
um, Guy Ritchie,
ekki kveðjurnar
þessa dagana þar
sem þeir eru við
tökur á Sherlock
Holmes. Ástæð-
an er sú að Ritc-
hie krafðist þess að Downey jr., sem
er um 1,70 m á hæð, gengi um í upp-
hækkuðum skóm svo hann liti út fyrir
að vera sömu hæðar og mótleikari
hans, Jude Law. Að sögn vinar
Downey jr. á leikarinn afskaplega
erfitt með að ganga í skónum og blót-
ar þeim í sífellu. Reyndar virðist sem
kvikmyndin, sem er væntanleg í kvik-
myndahús í nóvember á þessu ári, sé
að ganga að Downey Jr. dauðum. Á
dögunum tókst honum að kveikja í
klofinu á sér við tökur á einu atrið-
anna og nokkrum dögum seinna var
hann kýldur niður kaldur af áhættu-
leikara . Downey Jr. leikur hinn
snjalla Holmes en Jude Law leikur
aðstoðarmann hans Doctor Watson.
Er að kikna
undan hlut-
verkinu
Robert Downey Jr.
OFURFYRIR-
SÆTAN Kate
Moss íhugar nú
vandlega að stofna
dúett með kærasta
sínum Jamie
Hince, gítarleik-
ara hljómsveitar-
innar The Kills.
Moss, sem fagnaði
35 ára afmæli sínu
á föstudaginn, fékk forláta Steinway-
píanó frá kærastanum og þrátt fyrir
að kunna ekkert á píanóið er hún
staðráðin í að læra. Jamie gaf henni
einnig sérsmíðaðan hring og tvö verk
eftir franska graffítí-listamanninn
Andre. Andre mun á næstu vikum
fljúga til London og mála verkin á
vegg Moss á heimili hennar í Norður-
London. Íslandsvinurinn Sir Philip
Green var einnig örlátur á afmæli fyr-
irsætunnar og greiddi fyrir fimm
svítur á Dorchester-hótelinu í Lond-
on undir afmælisveisluna. Bað hann
starfsmenn hótelsins um að skreyta
svíturnar með blómum, kampavíni og
dýrindis veitingum. Á meðal gesta í
afmælinu voru Stella McCartney, Sa-
die Frost og Meg Matthews. Að lok-
inni máltíð á hótelinu var haldið að
heimili Moss sem hafði verið skreytt í
miðaldastíl í tilefni dagsins.
Fékk svítur
að gjöf frá
Philip Green
Par Kate Moss og
Jamie Hince.