Morgunblaðið - 04.03.2009, Blaðsíða 4
4 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. MARS 2009
Eftir Bergþóru Njálu Guðmundsdóttur
ben@mbl.is
SKAMMTÍMALOKUN gatna og að um helmingi bíla
verði ekki leyft að aka, er meðal þeirra úrræða sem listuð
eru í viðbragðsáætlun heilbrigðisnefndar Reykjavíkur
um loftgæði, sem samþykkt var í nefndinni á mánudag.
Lagabreytingu þarf til að hægt sé að beita þessum úr-
ræðum, sem og nokkrum öðrum sem tilgreind eru í áætl-
uninni.
Viðbragðsáætluninni er ætlað að móta skammtímaað-
gerðir til að uppfylla sett skilyrði um loftgæði í borginni.
Mögulegar aðgerðir eru settar fram í 19 liðum og er
margt þar kunnuglegt á ferð, s.s. að veita upplýsingar og
leiðbeiningar til almennings og fyrirtækja um loftmeng-
un, rykbinding, gatnaþvottur og að hvetja fólk til að hjóla
og ganga. Annað vekur meiri athygli, s.s. sú aðgerð að
hægja á bílaumferð, að skylda bílstjóra til að drepa á bíln-
um t.d. á ljósum, að beita skammtímalokun gatna, gefa
frítt í strætó og að bílar með annaðhvort oddatölu eða
slétta tölu í bílnúmeri fái ekki að vera á ferð.
Margar þessara aðgerða krefjast lagabreytinga, eins
og Kristján Guðmundsson, formaður heilbrigðisnefndar
Reykjavíkur, bendir á. „Þetta hefur verið reynt í öðrum
löndum og þess vegna er verið að slá þessu upp en við
gerum ekkert í þessu núna nema það verði einhverjar
lagabreytingar.“ Inntur eftir því hvort ráðist verði í við-
ræður við stjórnvöld um slíkar lagabreytingar svarar
Kristján: „Það verður örugglega farið út í að kanna hug
manna til þess en þeir hafa síðasta orðið. Þetta er spurn-
ing um vilja þingsins.“
Hann leggur áherslu á að enn sé ekki búið að ákveða
neitt í þessum efnum en verði af aðgerðum af þessum
toga sé miðað við að þeim sé aðeins beitt í skamman tíma
í senn, s.s. einn dag í einu, þegar loftgæði eru lítil. „Nú
verður myndaður viðbragðshópur, sem í sitja tveir frá
Heilbrigðiseftirlitinu og einn frá framkvæmda- og eigna-
sviði borgarinnar, sem munu vinna eftir þessu plaggi.
Þeir setjast þá yfir þetta og það er spurning um hvað
kemur út úr því.“
Skoða víðtækar aðgerðir
Lagabreytingar þarf svo hægt verði að beita skammtímaaðgerðum sem lýst er
í nýsamþykktri viðbragðsáætlun heilbrigðisnefndar Reykjavíkur um loftgæði
Í HNOTSKURN
» Ákveðin viðmiðunarmörkum hámarksmagn efna í
lofti verða höfð til hliðsjónar
þegar metið verður hvort
grípa skuli til aðgerðanna.
» Viðbragðsáætlunin tekureinnig til innilofts, að því
marki sem það verður fyrir
áhrifum af útilofti.
» Einnig hefur verið unnináætlun um langtíma-
aðgerðir til að auka loftgæði í
borginni sem hefur ekki verið
samþykkt enn.
MEÐ Grænum dögum sem standa yfir í Háskóla
Íslands þessa viku, er markmiðið að vekja nem-
endur og starfsfólk skólans til vitundar um vist-
væna neyslu og endurvinnslu. Fjölbreytt dag-
skrá er í boði alla vikuna og má þar nefna
kvikmyndasýningar, fatamarkað og málþing.
Umhverfisvæn fyrirtæki kynntu starfsemi sína á
Háskólatorgi í gær og gafst þá m.a. færi á að
smakka mat úr lífrænt ræktuðu hráefni.
Grænt í boði á Háskólatorgi
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Eftir Ylfu Kristínu K. Árnadóttur
ylfa@mbl.is
„VIÐ teljum að til frambúðar þurfi að
breyta kosningakerfinu og við höfum
ákveðnar hugmyndir um það,“ sagði
sr. Þórhallur Heimisson í gær þegar
L-listinn kynnti framboð sitt. „Við
teljum mikilvægt að inn á komandi
Alþingi verði einhverjir utan gömlu
stjórnmálaflokkanna til að fylgja
þessum hugmyndum um breytingar á
kerfinu eftir. Það er til þess verks
sem við bjóðum okkur fyrir utan að
koma að endurreisn íslensks efna-
hagslífs og endurreisn íslensks sam-
félags.“ Þórhallur sagði listann ekki
ætla að þiggja styrki frá einkaaðilum
eða fyrirtækjum því það skapaði lýð-
ræðinu hættu. „Við ætlum ekki að
láta peninga frá öðrum segja okkur
hvernig við eigum að tala.“
Bjarni Harðarson, fyrrverandi al-
þingismaður, er einn forsvarsmanna
L-listans. Hann segir að brotið verði
upp á gamla skipulagið með því að
bjóða fram lista frjálsra frambjóð-
enda án þess að stjórnmálaflokkur
standi bak við hann en þannig skapist
milliliðalaust samband milli kjósenda
og frambjóðenda.
Þórhallur sagði listann vilja end-
urreisn fjölskyldna og heimila í land-
inu, endurreisn lýðræðisins og at-
vinnulífsins. Þá vilji hann varðveita
lýðræðið á traustum grunni með því
að hafna aðild að ESB. „Það er eins
og eina svarið gagnvart hruni, at-
vinnuleysi og vonleysi, fjórföldun á
fólki sem leitar aðstoðar hjá Hjálp-
arstarfi kirkjunnar, sé að ganga í
ESB,“ sagði Þórhallur. „Við teljum
að lausnin felist í fullveldinu, lýðræð-
inu, að við stöndum saman.“
Bjarni sagði að verið væri að vinna
að listauppstillingum í öllum kjör-
dæmum og væri það skoðun listans
að koma þyrfti á persónukjöri.
Bjóðast til endurreisnarinnar
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Framboð L-listinn telur mikilvægt að fylgja eftir hugmyndum um breytingar
á kerfinu og býðst til verksins. Listinn þiggur ekki styrki frá einkaaðilum.
L-listinn telur að breyta þurfi kosningakerfinu til frambúðar Telja mikilvægt
að á komandi Alþingi verði menn utan gömlu flokkanna til að breyta kerfinu
ÁSTA Ragnheið-
ur Jóhannes-
dóttir félags-
málaráðherra
hefur lagt fram
frumvarp um
breytingar á lög-
um um atvinnu-
leysistryggingar
til þess að sporna
við misnotkun á
atvinnuleys-
isbótum. Haft hefur verið eftir for-
stjóra Vinnumálastofnunar að brögð
séu að því að fólk reyni að misnota
sjóðinn með því að skrá sig atvinnu-
laust en sé jafnframt í námi eða í
svartri vinnu.
„Vinnumálastofnun hefur þurft
frekari úrræði. Það er mjög mik-
ilvægt að leita allra leiða til þess að
koma í veg fyrir að hægt sé að mis-
nota Atvinnuleysistryggingasjóð og
grafa þar með undan tilgangi hans,“
segir félagsmálaráðherra.
Vinnumálastofnun fær auknar
heimildir til þess að leita eftir upp-
lýsingum um hagi umsækjenda.
Stofnunin getur þar með óskað eftir
upplýsingum og gögnum frá vinnu-
veitanda ef talin er þörf fyrir nánari
rökstuðning um samdrátt í rekstri
og minnkað starfshlutfall meðal
starfsmanna. Einnig verður hægt að
leita eftir upplýsingum frá skólum
um námsvist ef þurfa þykir.
Í frumvarpinu er einnig kveðið á
um framlengingu á hlutabótum til
áramóta. ingibjorg@mbl.is
Spornað
við mis-
notkun
Ásta R.
Jóhannesdóttir
Hagir atvinnulausra
kannaðir ef þörf er á
FULLTRÚAR frá kosningaeftirliti
ÖSE, Öryggis- og samvinnustofnun
Evrópu, eru nú staddir hér á landi til
þess að kynna sér undirbúning al-
þingiskosninganna í vor.
Fulltrúarnir, sem komu hingað í
fyrradag og fara af landi brott á
fimmtudaginn, eru að kanna hvort
þörf sé á eftirliti með sjálfum kosn-
ingunum og ræða þeir við ýmsa aðila
í því samhengi.
Breytt fyrirkomulag kosninga er
atriði sem stofnun eins og ÖSE fylg-
ist með. Stofnunin hefur beint sjón-
um sínum í ríkari mæli að Vest-
urlöndum en áður.
ingibjorg@mbl.is
Fulltrúar
ÖSE komnir
„ÝMIS mótmæli“
hafa orðið vegna
þeirrar ákvörð-
unar að heimila
hvalveiðar. „Við
erum að reyna að
vinna í því að
koma okkar sjón-
armiðum á fram-
færi,“ segir
Steingrímur J.
Sigfússon, sjáv-
arútvegsráðherra. „Ég mun kannski
gera meira af því á næstunni, mögu-
lega með því að funda með og tala
við þá aðila sem eru stærstir í þeim
efnum. Þá er ég að tala um nokkrar
mjög stórar verslunarkeðjur og
fleiri slíka aðila sem okkur skiptir
miklu máli að fari ekki út í ein-
hverjar harkalegar aðgerðir á móti
okkur,“ segir Steingrímur.
Forsendur ákvörðunarinnar
standa þó enn, að sögn Steingríms,
sem lýsti áhyggjum af væntanlegum
mótmælum fyrir tveimur vikum,
þegar hann tilkynnti að ákvörðun
forvera síns stæði. onundur@mbl.is
Hvalveiðum
er mótmælt
Steingrímur J.
Sigfússon