Morgunblaðið - 04.03.2009, Blaðsíða 8
8 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. MARS 2009
FRÉTTASKÝRING
Eftir Gunnhildi Örnu Gunnarsdóttur
gag@mbl.is
FJÁRMÁLAEFTIRLIT Lúxem-
borgar telur að það hefði getað gripið
til áhrifameiri aðgerða og gætt betur
hags þeirra sem áttu innlán í dótt-
urfélögum íslensku bankanna í land-
inu hefði það verið varað við því að
bankarnir stæðu veikt. Starfsmaður
eftirlitsins, sem vaktaði dótturfélögin,
segist undrandi á að lesa fréttir
mbl.is þar sem fram kom að formaður
seðlabankastjórnarinnar, Davíð
Oddsson, og ráðherra Samfylking-
arinnar í ríkisstjórn töluðu um að
vandi bankanna hefði legið fyrir í
fyrravor. En hver sagði hvað?
Í fréttaskýringaþætti RÚV,
Fréttaaukanum, á sunnudag sagði
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formað-
ur Samfylkingarinnar, að norrænu
seðlabankarnir og Alþjóðagjaldeyr-
issjóðurinn hefðu krafist þess í apríl í
fyrra að Seðlabankinn og Fjármála-
eftirlitið beittu þeim tækjum sem þau
hefðu til að draga úr umsvifum bank-
anna.
„Ég stóð í þeirri trú að þessar
stofnanir væru að vinna sína vinnu og
væru að gera þetta,“ sagði hún.
Davíð Oddsson, fyrrum seðla-
bankastjóri, sagði svo frá því í Kast-
ljósi þann 24. febrúar að Seðlabank-
inn hefði sagt öllum frá ótta sínum
allan tímann og stjórnvöld hefðu við-
urkennt það en leitað jafnharðan til
bankastjóranna sem hefðu sagt
Seðlabankann fara með fleipur.
„Við létum það ekki duga. Við
fengum til að mynda í febrúar einn
færasta fjármálastöðugleikasérfræð-
ing í Evrópu til að vinna fyrir okkur
viðbragðsáætlun. Í þessari áætlun
gerum við ráð fyrir því að að banka-
kerfið fari á hausinn í október – í
október. Við sendum þessa skýrslu til
ríkisvaldsins.“ Endalausar fund-
argerðir séu einnig til þar sem seðla-
bankastjórar segi bankastjórum að
bankinn hafi vaxandi áhyggjur af
stöðunni, áhyggjur af fjármögnun
bankanna og netinnlánum þeirra.
Til þessara orða fyrrverandi seðla-
bankastjóra og utanríkisráðherra í
stjórn Geirs H. Haarde vísar fjár-
málaeftirlitið í Lúxemborg (CSSF).
„Þetta vekur undrun þar sem við
fengum engar fréttir um þessa vitn-
eskju sem þó virðist hafa legið á
borðinu,“ segir starfsmaður fjár-
málaeftirlitsins við Morgunblaðið.
Hann segir þó erfitt að bregðast við
þessum fréttum þar sem eftirlitið
hafi ekki séð þær í skýrslum og erf-
itt sé að meta hvort vitneskjan hafi í
raun legið fyrir.
Undir það tekur Luc Michels, að-
stoðarmaður viðskiptaráðherra
Lúxemborgar, og segir erfitt að
rýna í það sem nú er sagt. Hann
staðfestir hins vegar að ráðherrann,
eða stjórnvöld í Lúxemborg, hafi
ekki verið varaður við slæmri stöðu
íslenska bankakerfisins. „Nefnd ís-
lenskra stjórnvalda, þar á meðal
Geir H. Haarde þáverandi forsætis-
ráðherra, fundaði með okkur 26.
febrúar 2008. Á fundinum var mér
sagt að ekki væri rætt um vanda ís-
lenska bankakerfisins eða banka á
Íslandi.“
Eftir Þröst Emilsson og
Ingibjörgu B. Sveinsdóttur
FULLTRÚAR menntamálaráðu-
neytisins, sem koma áttu á fund fjár-
laganefndar Alþingis í gær til þess
að gera grein fyrir því hvað hefði
verið undirritað vegna áframhald-
andi framkvæmda við Tónlistarhús-
ið, boðuðu forföll.
Fulltrúarnir töldu sig þurfa að afla
enn frekari upplýsinga um málið, að
sögn Gunnars Svavarssonar, for-
manns fjárlaganefndar.
Formaðurinn segir að gert sé ráð
fyrir því að fulltrúarnir komi næst-
komandi mánudag og geri grein fyr-
ir því hvort viljayfirlýsingin, sem
Katrín Jakobsdóttir menntamála-
ráðherra og Hanna Birna Kristjáns-
dóttir borgarstjóri undirrituðu 19.
febrúar um áframhald framkvæmda
við Tónlistarhúsið, sé í samræmi við
lög um fjárreiður ríkisins.
Gunnar kveðst ekki efast um að
svo sé. „Ég sagði í ræðu á þingi í síð-
ustu viku að ég gerði fastlega ráð
fyrir því að þeir sem komu að þess-
um samningi hefðu gert það með
hliðsjón af lögum um fjárreiður rík-
isins.“
Erindi vegna Tónlistarhússins
kom inn á borð fjárlaganefndar á ell-
eftu stundu þegar fjárlög voru í
vinnslu í desember, að því er Gunnar
greinir frá.
„Það var óskað eftir því að setja
nokkra milljarða inn í verkefnið og
við óskuðum eftir frekari upplýsing-
um. Þetta var á laugardagsmorgni
og við vorum að afgreiða fjárlögin á
mánudeginum. Það var sagt að ekki
væri hægt að afla upplýsinganna og
þá sögðumst við ekki geta afgreitt
málið. Við bindum ekki ríkið án þess
að hafa upplýsingar.“
Á undanförnum mánuðum hefur
fjárlaganefnd haft sérstakt eftirlit
með ríkisstofnunum og bent á að
ekki sé æskilegt að skrifa undir
samninga nema fyrir liggi í fjárlög-
um eða rammafjárlögum að ríkið
geti staðið á bak við umrædda samn-
inga.
Samkvæmt samkomulaginu um
áframhald framkvæmda við tónlist-
arhúsið mun Austurhöfn-TR ehf., fé-
lag í eigu ríkis og borgar, taka verk-
efnið yfir. Allar áætlanir miðast við
að ekki þurfi að koma til aukin fram-
lög ríkis og borgar frá því sem
ákveðið var árið 2004 þegar fram-
kvæmdir og rekstur voru boðin út.
Gunnar Svavarsson segir ekki úti-
lokað að fulltrúi Austurhafnar mæti
á fundinn á mánudaginn.
Fulltrúar menntamálaráðuneytis boðuðu forföll og mættu ekki á fund fjárlaga-
nefndar Afla frekari gagna um samkomulagið um áframhald á framkvæmdum
Fundi um Tónlistarhús frestað
Morgunblaðið/Júlíus
Tónlistarhúsið Kostnaðurinn er
áætlaður 13,3 milljarðar króna.
GUÐMUNDUR Helgi
Þórðarson læknir lést
á líknardeild Landa-
kotsspítala 3. mars sl.
Hann fæddist 26. mars
1924 í Hvammi í Valla-
hreppi, S-Múlasýslu.
Guðmundur lauk stúd-
entsprófi frá MA 1945
og prófi í læknisfræði
frá HÍ 1952. Hann var
héraðslæknir í Hofsós-
héraði 1954-1962 og í
Stykkishólmshéraði
1962-1974. Heimilis-
læknir í Hafnarfirði
frá 1974 til ársloka
1993 að hann eftirlét ungum sér-
fræðingi í heimilislækningum starf
sitt. Guðmundur var alla tíð mikill
hugsjóna- og félagsmálamaður og
lét víða til sín taka. Blaða- og tíma-
ritsgreinar, einkum
um heilbrigðis- og fé-
lagsmál, skrifaði hann
áratugum saman. Auk
þess eru til í handriti
merk gögn sem hann
skráði meðan hann
gegndi erfiðum lækn-
ishéruðum.
Morgunblaðið birti
fjölda greina eftir
Guðmund, þá síðustu
10. janúar 2004 um
„Gróðafíkn“, en þar
fjallaði hann m.a. um
ábyrgð ofurlauna-
manna.
Guðmundur var kjörinn heiðurs-
félagi Félags íslenskra heimilis-
lækna 1997. Eftirlifandi eiginkona
hans er Lóa Stefánsdóttir. Þau eiga
þrjú börn.
Guðmundur Helgi
Þórðarson
Andlát
„Fjármálaeftirlitið vill ekki eiga samskipti við Fjármálaeftirlitið í Lúx-
emborg í gegnum fjölmiðla,“ er svar þess þegar Morgunblaðið leitaði við-
bragða við undrun fjármálaeftirlitsins í Lúxemborg (CSSF). „Fjármálaeft-
irlitið bendir þó á að það hvatti bankana á síðasta ári, meðal annars
opinberlega, til þess að minnka efnahagsreikning sinn og má vísa í erindi
Jónasar Fr. Jónssonar, fyrrverandi forstjóra Fjármálaeftirlitsins, á ráð-
stefnu Samtaka fjármálafyrirtækja hinn 10. apríl 2008, því til staðfest-
ingar. Jafnframt má benda á að efnahagur bankanna minnkaði um 7% í
evrum talið á fyrri hluta ársins 2008,“ stendur í skriflegu svari FME.
Í ávarpi Jónasar telur hann upp atriði sem gætu styrkt íslenskt fjár-
málakerfi og þar nefnir hann að stjórnendur bankanna verði að sýna fram
á að þeir kunni að rifa seglin í stormi og stórsjó; lækka kostnað og minnka
efnahag sinn. Fyrr hafði hann tekið fram í ávarpinu að bankarnir hafi allir
staðist strangt álagspróf. Þeir séu fyllilega samanburðarhæfir við norrænu
bankana og undirstöður þeirra séu traustar.
FME varaði opinberlega við
Ingibjörg og Davíð Fyrrverandi utanríkisráðherra og fyrrverandi formaður seðlabankastjórnar í sjónvarps-
viðtölum hjá Sjónvarpinu. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir í Fréttaaukanum og Davíð Oddsson í Kastljósinu.
Hefði gripið til
beittari aðgerða
Fjármálaeftirlitið í Lúxemborg hefði betur getað varið inn-
lánin í bönkunum hefði það vitað af vanda íslensku bankanna
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur hef-
ur veitt skilanefnd Landsbanka Ís-
lands hf. níu mánaða framlengingu
á greiðslustöðvun bankans, eða til
26. nóvember 2009. Beiðni um
framlengingu var ekki mótmælt af
hálfu kröfuhafa þegar málið var
tekið fyrir í héraðsdómi. Í yfirlýs-
ingu frá skilanefnd segir að fram-
lengingin skapi Landsbankanum
svigrúm og traustan grundvöll til
að ná settum markmiðum um að há-
marka verðmæti eigna bankans. Sú
vinna sé unnin til hagsbóta fyrir
kröfuhafa en náið samstarf sé haft
við þá um framvindu mála.
Greiðslustöðvun framlengd
Getum við
aðstoðað?
Í dag, miðvikudag, sitja ráðgjafar
okkar lengur við símann.
Ráðgjafar Eignastýringar, Almenna lífeyrissjóðsins
og Fjármögnunar svara spurningum ásamt ráðgjöfum
Íslandsbanka.
Hringdu í okkur á milli
kl. 17 og 21 í síma 440 4000.
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
0
8
-2
2
5
4
VIÐRÆÐUR standa nú yfir milli ís-
lenska ríkisins og enska ráðgjafar-
fyrirtækisins Hawkpoint um að fyr-
irtækið vinni að samningagerð milli
gömlu og nýju bankanna undir
stjórn íslenskra stjórnvalda. Ekki
hefur verið samið við Hawkpoint en
fjármálaráðherra vonast til að það
gangi eftir.
Verkefnið er að veita ráðgjöf um
samningagerð við kröfuhafa gömlu
bankanna í tengslum við lokaupp-
gjör og hins vegar sérfræðiráðgjöf
í tengslum við uppgjörið.
Áður höfðu stjórnvöld boðið fjór-
um erlendum ráðgjafarfyr-
irtækjum að taka þátt í útboði. Tvö
drógu sig í hlé vegna hagsmuna-
tengsla, en auk Hawkpoint var rætt
við fyrirtækið Houlihan Lokey.
onundur@mbl.is
Ráðgjafar
við uppgjör
bankanna