Morgunblaðið - 04.03.2009, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 04.03.2009, Blaðsíða 7
Fréttir 7INNLENT MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. MARS 2009 VEÐRIÐ hefur löngum verið Íslendingum hugleikið og oft um fátt meira rætt en tíðina. Því hafa landsmenn væntanlega fengið eitthvað annað að ræða um síðustu daga en kreppu því veðrið hefur ekki beint leikið við landsmenn eins og þessi hlaupari fékk að reyna við Ægisíðuna. Morgunblaðið/Kristinn Hlaupið undan vindi ALDÍS Wester- gren, 37 ára gömul kona sem síðast sást 24. febrúar, var ófundin síð- degis í gær. Mikil leit og eftir- grennslan lögreglu og leitarsveita hef- ur engan árangur borið. Lögreglan er að vinna úr ákveðnum vísbend- ingum, án þess að þær hafi hingað til komið henni á sporið. Síðast er vitað um ferðir Aldísar við Gvendargeisla í Grafarholti í Reykja- vík. Að sögn lögreglunnar stendur til að leita betur út frá Gvendargeisla og á svæðunum þar í kring um leið og veður og aðstæður leyfa. Veður var óhagstætt til leitar í gær. Lögreglan beinir því til húseigenda og húsbyggj- enda á svæðinu og í grennd við það að svipast um í vinnuskúrum og nýbygg- ingum. Einnig eru þeir sem eiga leið um svæðin í kring beðnir að láta lögreglu vita sjái þeir vísbendingar um ferðir Aldísar. Aldís er 165-170 sm á hæð, með skollitað axlasítt hár og líklega klædd í dökkan jakka eða úlpu, dökkar buxur og með svartan og hvítan hálsklút. Þeir sem geta veitt einhverjar upp- lýsingar um ferðir Aldísar eru vinsam- legast beðnir um að hafa samband við lögregluna í síma 444-1100. Leit ekki borið árangur Leitað verður nánar út frá Gvendargeisla Aldís Westergren Þitt val •Það er Lægsta mínútuverðið 11,90 kr. • Lægsta mínútuverð í GSM á Íslandi, 11,90 kr. óháð kerfi. • Einn GSM vinur innan kerfis. • Hentar þeim sem tala jafnan lengi í hverju símtali. • Nánari upplýsingar á siminn.is. Sex vinir óháð kerfi • Veldu þér sex GSM vini í hvaða kerfi sem er. • Þetta er leiðin fyrir þá sem hringja mest í sama fólkið aftur og aftur. • Nánari upplýsingar á siminn.is. Núll í alla heimasíma • Ekkert mínútugjald úr GSM í alla heimasíma á Íslandi. • Þrír GSM vinir innan kerfis. • Nánari upplýsingar á siminn.is. eðaeða Veldu þína leið og byrjaðu að spara! Hringdu núna í síma 800 7000 og veldu þína leið! Í BRÉFI sem Morgunblaðinu hefur borist frá Björgólfi Thor Björgólfs- syni, segir að umfjöllun í Kastljósi á mánudagskvöld um málefni Lands- bankans hafi verið ónákvæm og vill- andi. Með framsetningunni sé aug- ljóslega látið í það skína að Björgólfur Thor hafi farið með rangt mál og að það virðist vera inntak frá- sagnarinnar. „Hið rétta er að svör FSA og breska fjármálaráðuneyt- isins segja ekkert til um hvort orð mín standist eður ei. Hinsvegar hafa stjórnendur Landsbankans staðfest þau með formlegum yfirlýsingum mínum,“ segir í bréfi Björgólfs. Viðræður en ekki samkomulag Björgólfur segir rangt með farið að hann hafi í Kompásviðtali á Stöð 2 sl. haust sagt að Landsbankinn hafi gert samkomulag við breska fjár- málaeftirlitið (FSA) um að taka Ice- save innlánareikningana með flýti- meðferð inn í dótturfélag bankans í Bretlandi og þar með koma ábyrgð- um á þeim reikningum í lögsögu breskra yfirvalda. „Í kynningu á innslagi Kastljóss er fullyrt um samkomulag, í umfjöll- uninni sjálfri er þrisvar sinnum talað um samkomulag og þar er mér m.a. lagt í munn að hafa fullyrt um sam- komulag og í fréttum Sjórnvarpsins er einnig staðhæft að ég hafi talað um samkomulag. Hið rétta er að ég talaði aldrei um samkomulag. Ég talaði um að viðræður hefðu átt sér stað við FSA og í samtölum stjórn- enda bankans við starfsmenn þess hefði komið fram að ef Landsbank- inn gæti greitt 200 milljónir sterlingspunda til Bretlands á mánudeginum væri FSA reiðubúið að veita flýtimeðferð (e. fast track) á Icea- save reikning- unum inn í breskt dótturfélag bank- ans. Landsbankanum var því boðin flýtimeðrferð gegn því að greiða 200 milljónir sterlingspunda en þar sem bankinn fékk ekki fyrirgreiðslu varð ekkert úr mögulegu samkomulagi,“ segir í bréfinu frá Björgólfi. Hann segir þennan grundvall- armun á orðum sínum og röngum fullyrðingum Kastljóss mjög mik- ilvægan, einkum þegar svar FSA og breska fjármálaráðuneytisins sé skoðað í heild. Fyrirspurn íslenska fréttamannsins hafi verið margræð og því komi svar fjármálaráðuneyt- isins og FSA ekki á óvart. Ráðu- neytið vísi til þess að ekki hafi verið sá skilningur sem lýst sé í fyr- irspurninni en svarið útiloki þó ekki að Landsbankinn hafi átt í viðræðum þeim sem fyrr er lýst við FSA. „Fyrrgreind umfjöllun hefur verið meiðandi og er þess farið á leit við Kastljós og fréttastofu Sjónvarps að villandi og ónákvæm umfjöllun um orð mín verði leiðrétt í kvöld á sama vettvangi og í gærkvöldi [mánudags- kvöld],“ segir í bréfinu. Rangar fullyrð- ingar í Kastljósi Björgólfur Thor fer fram á leiðréttingu Björgólfur Thor Björgólfsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.