Morgunblaðið - 04.03.2009, Blaðsíða 31
Minningar 31
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. MARS 2009
gefa okkur súkkulaði? Börnin eru svo
einlæg, þú varst frábær amma, gef-
andi og góð við börnin.
Ég lifi í Jesú nafni.
Í Jesú nafni ég dey.
Þó heilsa og líf mér hafni,
hræðist ég dauðann ei.
Dauði ég óttast eigi
afl þitt né valdið gilt.
Í Kristi krafti ég segi
Kom þú sæll þá þú vilt.
(Hallgr. Pétursson)
Elsku Katrín mín, hvíl í friði, megi
algóður guð og englar hans vaka yfir
þér og vernda, umvefja þig hlýju,
kærleik og ljósi. Ég mun halda minn-
ingu þinni á lofti í hugum barna
minna.
Ég votta öllum aðstandendum og
vinum hennar mína dýpstu samúð,
missirinn er mikill.
Guð veri með ykkur öllum.
Lífið er fæðing og dauði, hlátur og
grátur, sól og rigning, gleði og sorg.
Minningarnar eru til staðar og verða
ekki teknar frá okkur. Hlúum að
hvort öðru og verum sterk og stór
eins og Katrín var og ég geri hennar
orð að mínum, „maður verður að
halda áfram“.
Takk fyrir allt, elsku Katrín.
Nú legg ég augun aftur,
ó, Guð, þinn náðarkraftur
mín veri vörn í nótt.
Æ, virst mig að þér taka,
mér yfir láttu vaka
þinn engil, svo ég sofi rótt.
(Sveinbjörn Egilsson.)
Ósk María Ólafsdóttir, Markús
Máni Ásgímsson og Sigurrós Sól
Ásgrímsdóttir.
Elsku amma mín, það er skrítið að
þú skulir vera horfin frá okkur. Það
er svo stutt síðan við sátum í Engi-
hjalla japlandi á vínabrauði, þú með
kaffibolla, áður en við gerðum þig
fína um hárið, spjallandi um lífið og
tilveruna og tjáðum okkur báðar inni-
lega um fjölskyldumál. Þú varst svo
góð að hlusta á mig og sýna mér
skilning. Ég er þakklát fyrir að hafa
fengið að eiga þessar samræður við
þig. Mikið á ég eftir að sakna þessara
góðu stunda sem við áttum og þess-
ara sterku tengsla sem við vorum
farnar að mynda undir lokin. Það
verður erfitt að geta ekki heimsótt
þig í Engihjallann, og fengið að
klippa þig, elsku amma mín. Þú varst
alltaf dugleg að hrósa mér og þú
gerðir aldrei upp á milli okkar barna-
barnanna. Sagðir alltaf: ég er stolt af
þér, svo bættir þú við: og ykkur öll-
um. Það skipti þig miklu máli að vita
hvernig fólkið þitt hefði það og þegar
við hittumst spurðir þú alltaf um
pabba, systkini mín og líka mömmu,
sem mér þótti sérstaklega vænt um.
Það er skrítið hvernig ástvinur getur
skyndilega verið hrifsaður frá manni
svo fljótt, sértaklega því þú stóðst
alltaf upp aftur. Þú kvartaðir aldrei
þó svo að það leyndi sér ekki að lík-
aminn hrjáði þig. Frá því að ég man
eftir mér hef ég fengið símtal frá þér
á afmælisdaginn minn. Þegar hjúkr-
unarkonan kom inn með lyfin þín og
þú vildir taka þau inn með grautnum
þínum rifjuðust upp minningar frá
þeim tíma þegar ég var 5 ára og bjó
smátíma hjá ykkur afa í Lyngheið-
inni. Þá lést þú mig taka meðalið mitt
með ís en ekki með vökva eins og
flestir gera, þetta gerði það að verk-
um að ég átti mun auðveldara með að
taka lyfin. Þarna á laugardeginum
fékk ég mikla trú og var sannfærð um
að þú myndir standa þetta af þér eins
og svo oft áður. Þarna lást þú og gast
varla talað en þér var mikið í mun um
að ég kæmi til skila afmæliskveðju til
Dynju frá þér. Svona varst þú, amma,
fárveik og það var þér efst í huga að
þú gætir sent henni afmæliskveðju.
Amma mín, þú varst svo flott kona
og ekki að ástæðulausu að maður hef-
ur svona gaman af því að hafa sig til.
Þegar við horfðumst í augu í síðasta
sinn náði ég að segja þér svolítið og
þú gafst mér merki um að þú skildir
það. Merkið var það greinilegt að ég
er sannfærð um að þú heyrðir hvað
ég sagði og mér þykir óendanlega
vænt um að hafa getað kvatt þig með
þessum fréttum sem ég veit að hefðu
glatt þig og afa. Á mánudeginum var
útlitið ekki gott og þú kvaddir þennan
heim, elsku amma, alltof fljótt. Ég
geymi fallegu stundirnar sem við átt-
um og allar góðu minningarnar í
hjarta mínu og veit að þú, afi, fylgist
með mér.
Veistu vindur harður,
blíður í hjarta mínu vaknar skjól.
Skef á móti hverri skímu
svo ávallt skíni alltaf sól.
Þín nafna
Katrín Ósk Guðlaugsdóttir.
Elsku yndislega amma mín.
Ég sakna þín rosalega og mér þyk-
ir leitt að þú hafir þurft að fara svona
snemma. Við eigum öll eftir að sakna
þín alveg rosalega mikið. Þú varst svo
myndarleg og svo sæt og fín, alveg
sama hvort þú varst fullklædd eða í
náttslopp. Þú varst alltaf til staðar
fyrir okkur og það gerði það einfald-
ara að leita til þín.
Mér fannst alltaf svo þægilegt að
koma í heimsókn til þín, setjast niður
í sófann með þér og spjalla um hitt og
þetta og grínast saman um ákveðna
hluti, heimilið þitt var ákveðinn
griðastaður fyrir mig. Ef mér leið illa
fannst mér þægilegast að koma til
þín. Þú varst alltaf góð við alla. Mér
þykir svo vænt um þig fyrir allt sem
þú hefur gert fyrir mig og allan
stuðninginn sem ég fékk frá þér.
Ég elska þig,
Nína Margrét.
Kæra amma. Það var alltaf svo
þægilegt að koma til þín og kaupa
snúð og horfa á barnatímann.
Mamma kom alltaf til þín um hádegið
á virkum dögum og var hjá þér. Alltaf
á laugardögum þegar ég var hjá þér
keypti ég nammi (auðvitað) og ég
keypti alltaf rautt lítið nammi, fullt af
því, þér fannst það svo gott. Mamma
sagði mér að þegar hún fór með þér
að versla og máta föt á þig varstu
þreytt daginn eftir.
Mér þykir mikið vænt um þig,
amma, og það var þægilegt að gista
hjá þér.
Kveðja,
Fríða Katrín.
Meira: mbl.is/minningar
sínum í þeim efnum og sameinuð fór-
um við alltaf í kröfugöngu fyrsta
maí.
Mér þótti framandi að hlusta á
Ásu segja mér frá Rússlandsferðinni
sem hún og Bjössi fóru í á yngri ár-
um, sérstaklega þó hvað járnbraut-
arstöðvarnar voru flottar, allar í
gullskreyttum listaverkum eftir
fræga listamenn. Ása var skemmti-
legur sögumaður og vel að sér í bók-
menntaverkum gömlu meistaranna,
hún hvatti mig langt innan við ferm-
ingu til að lesa Kiljan og gaf mér
Vefarann mikla frá Kasmír í ferm-
ingargjöf. Eftir lestur þeirrar bókar
í annað skiptið þá barnshafandi
ákvað ég nafngift, ef ég eignaðist
dóttur þá myndi hún heita Diljá sem
varð síðar að veruleika.
Þegar ég kynntist Ásu vann hún
sem fiskverkakona í Ísbirninum.
Henni varð tíðrætt um Guðmund
Jaka verkalýðsforingja og launakjör
verkalýðsins. Það breyttist ekkert
þótt hún fengi betri vinnu sem
bankastarfsmaður í Alþýðubankan-
um. Ása var alltaf trú sínum skoð-
unum og lét sig miklu varða litla
manninn í þjóðfélaginu og mundi vel
gamla tíma þegar kjörin voru kröpp
og þess vegna var hún varkár í efn-
ishyggjunni.
Mikil gleðistund var í lífi okkar
allra þegar Benni og Gunna heitin
eignuðust dóttur fyrir rúmum 25 ár-
um. Hún fékk nafnið Ása Hlín í höf-
uðið á ömmu sinni og var hamingja
foreldra hennar og Ásu ómæld.
Óveðursský féll á litlu fjölskyldu Ásu
þegar eiginmaður hennar lést langt
fyrir aldur fram og stuttu síðar
greindist Guðrún með krabbamein
sem bar hana ofurliði nokkrum vik-
um fyrir fjögurra ára afmæli Ásu
Hlínar. Ólýsanlegur harmur ríkti á
Karlagötu 21 þar sem Ása, Benni og
Ása Hlín bjuggu, enginn skildi til-
ganginn. Ása breyttist eftir andlát
dóttur sinnar og mjög skiljanlegur
biturleiki einkenndi hana, ég hef oft
reynt að sitja mig í spor Ásu en get-
ur það nokkur nema sá sem reynt
hefur líkan harm sjálfur. Bróðir
minn varð einstæður faðir, óhefð-
bundið fjölskylduform hófst og
áfram bjuggu þau öll á Karlagötunni
og tók Ása alltaf virkan þátt í uppeldi
Ásu Hlínar og varð hennar móður-
ímynd. Ása hefur alltaf tilheyrt okk-
ar fjölskyldu og tekið þátt í öllu með
okkur, hún var barngóð og gaf sér
alltaf tíma til að hlusta og miðla.
Elsku Ása, minning þín verður vel
varðveitt. Ég votta Benna og Ásu
Hlín mína dýpstu samúð og Ása
Hlín, ég veit að sorg þín er óbærileg.
Áslaug Þóra Harðardóttir.
Í dag kveð ég Ásu Ásmundsdóttir,
ömmu Ásu Hlínar, frænku minnar og
vinkonu. Ég þekkti Ásu allt mitt líf
og man aldrei eftir fjölskylduvið-
burði án þess að hún gleddist þar
með okkur. Ása var barngóð og
skemmtileg, hún var alltaf góð við
mig og tók alltaf vel á móti mér á
Karlagötunni. Ása var veraldarvön
og ferðaðist víða, ég fór með henni í
tvær utanlandsferðir sem voru mjög
skemmtilegar og var hún ákaflega
fróður og góður ferðafélagi.
Þegar ég hugsa um Ásu verður
mér hugsað til Ásu Hlínar en þær
voru mjög samrýndar og gerðu mjög
margt saman, meira að segja á ung-
lingsárum Ásu Hlínar, já, það er
óhætt að segja að hún Ása Hlín hafi
aldrei skammaðist sín fyrir ömmu
sína og hún bar mikla virðingu fyrir
henni. Þær skildu hvor aðra og má
segja að þær hafi talað sama tungu-
mál. Það fór ekki á milli mála hvað
þeim þótti vænt hvorri um aðra og
virtu þær ávallt skoðanir og mál-
frelsi hvor annarrar.
Elsku Ása Hlín og Benni, aftur
hefur sorgin bankað á dyr á hjá ykk-
ur á Karlagötunni og missir ykkar er
mikill. Elsku frænka, ég hef oft reynt
að setja mig í þín spor og veit að sorg
þín er óbærileg. Vonandi mun sárið í
hjarta þínu gróa með tímanum og
góðar minningar ykkar ömmu þinn-
ar veita þér styrk til að halda áfram.
Þessi kveðjustund er mér mjög sár,
elsku Ása, en minning þín lifir með
okkur öllum.
Þín,
Hjördís Diljá.
Meira: mbl.is/minningar
Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is
Vaktsími: 565 5892 & 896 8242 • Sólarhringsvakt
Komum heim til aðstandenda ef óskað er
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR
Kistur • Krossar • Sálmaskrár • Duftker • Blóm • Fáni • Gestabók • Erfidrykkja • Prestur
Kirkja • Legstaður • Tónlist • Tilkynningar í fjölmiðla • Landsbyggðarþjónusta • Líkflutningar
Suðurhlíð 35 Fossvogi • www.utforin.is
Vaktsími: 581 3300 & 896 8242 • Sólarhringsvakt
Komum heim til aðstandenda ef óskað er
Bryndís ValbjarnardóttirSverrir Einarsson
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Það sem hafa ber í huga varðandi andlát og útför
Hermann Jónasson Yvonne Tix
✝
Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi
og langafi,
HALLDÓR B. STEFÁNSSON,
Lautasmára 3,
Kópavogi,
sem lést miðvikudaginn 25. febrúar, verður
jarðsunginn frá Háteigskirkju fimmtudaginn
5. mars kl. 13.00.
Hallgerður Pálsdóttir,
Ólafur Halldórsson, Auður Sigurðardóttir,
Páll Halldórsson, Sólveig Ásgrímsdóttir,
Ásta Halldórsdóttir, Einar Erlendsson,
Elín Ýrr Halldórsdóttir, Kristján M. Baldursson,
Ólöf Eir Halldórsdóttir, Jenni Guðjón Clausen,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
KRISTÍN ÓLAFSDÓTTIR,
Stangarholti 5,
Reykjavík,
sem lést miðvikudaginn 25. febrúar, verður
jarðsungin frá Háteigskirkju föstudaginn 6. mars
kl. 13.00.
Örn Guðjónsson, Sigurósk Garðarsdóttir,
Vilhelm Valgeir Guðbjartsson, Guðrún Ragnarsdóttir,
Ólöf María Guðbjartsdóttir, Jónas Pétur Sigurðsson,
Svanur Guðbjartsson, Ólöf Magnúsdóttir,
Þröstur Guðbjartsson, Patiwat Deepaen,
Guðrún Guðbjartsdóttir, Benedikt Bjarni Albertsson,
Unnur Guðbjartsdóttir, Garðar Benediktsson,
Kristín Þóra Guðbjartsdóttir, Sigurður Stefán Jónsson,
Birna Guðbjartsdóttir, Sölvi Rúnar Sólbergsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær eiginkona mín, dóttir, móðir, tengdamóðir,
amma og systir,
INGIBJÖRG FINNBOGADÓTTIR,
Sandbakkavegi 4,
Hornafirði,
verður jarðsungin frá Hafnarkirkju laugardaginn
7. mars kl. 14.00.
Ingólfur Waage,
Hulda Bjarnadóttir,
Herdís Waage, Jón B. Karlsson,
Hulda Waage, Jón V. Níelsson,
Hrefna Waage, Benedikt H. Stefánsson,
ömmubörn og systkini hinnar látnu.
✝
Bróðir okkar, mágur og frændi,
ARNÓR KARLSSON
fyrrum bóndi á Bóli,
síðar Arnarholti í Biskupstungum,
Bjarkarbraut 10,
Bláskógabyggð,
sem lést á Landspítalanum í Fossvogi miðviku-
daginn 25. febrúar, verður jarðsunginn frá
Skálholtsdómkirkju laugardaginn 7. mars og hefst athöfnin kl. 14.00.
Jarðsett verður í Torfastaðakirkjugarði.
Systkini hins látna og aðrir venslamenn.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
GUNNAR KRISTJÁN BJÖRNSSON
efnaverkfræðingur,
Skólabraut 3,
Seltjarnarnesi,
verður jarðsunginn frá Langholtskirkju föstudaginn
6. mars kl. 13.00.
Lovísa H. Björnsson,
Árni Gunnarsson, Daniela Ilea Gunnarsson,
Rannveig Gunnarsdóttir, Tryggvi Pálsson,
Sigurjón Gunnarsson, Sigríður Olgeirsdóttir,
Gunnar Örn Gunnarsson, Olga Bergljót Þorleifsdóttir,
Halldór Gunnarsson, Anna Persson,
Þórarinn Gunnarsson, Berglind Garðarsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.