Morgunblaðið - 04.03.2009, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 04.03.2009, Blaðsíða 6
6 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. MARS 2009 Eftir Bergþóru Njálu Guðmundsdóttur ben@mbl.is DÆMI eru um að fólk afþakki end- urhæfingu og meðferð á Reykja- lundi, jafnvel eftir langa bið, af ótta við að það muni hafa áhrif á stöðu þess í vinnu. Lækningaforstjóri Reykjalundar segir einnig brögð að því að fólk, sem boðið er meðferð á dagdeildum miðstöðvarinnar, setji fyrir sig aukin bensínútgjöld vegna ferða til og frá deildunum. Að sögn Hjördísar Jónsdóttur, lækningaforstjóra Reykjalundar, verður starfsfólk vart við það að fólk afþakki meðferð og beri fyrir sig ótta við að missa vinnu, jafnvel eftir að hafa beðið svo mánuðum skiptir eftir því að komast að. „Starfsfólk hér hefur tekið eftir þessu, þótt það sé ekki eins áber- andi núna og það var fyrst eftir bankahrunið. Það er þessi hræðsla, t.d. þegar fólk er of þungt eða með verki, að það geti verið að gefa svo- lítinn höggstað á sér með því að fara úr vinnunni.“ Aðlaga meðferðina samfélaginu Hún segir að hjá hinu opinbera séu raunar strangar reglur sem komi í veg fyrir slíkar uppsagnir. „Hins vegar held ég að einkafyr- irtæki hafi talsvert mikinn rétt á að láta fólk fara. Það er örugglega eitthvað slíkt sem fólk óttast.“ Hjördís bendir á að undanfarið hafi verið lögð áhersla á að efla dagdeildarþjónustu Reykjalundar enda sé það ódýrara en hefðbundin meðferð þar sem sjúklingur dvelur allan sólarhringinn á miðstöðinni. „En þá setur fólk fyrir sig flutn- ingskostnað, þ.e að koma sér til og frá staðnum. Strætisvagnasam- göngur eru ekki nógu góðar hingað og fólk horfir í bensínkostnaðinn þannig að það veltir þessum hlut- um meira fyrir sér nú en áður.“ Meðaltími endurhæfingar er sex til átta vikur að hennar sögn. „Við erum að reyna að breyta því, ein- mitt til að aðlagast samfélaginu, á þann hátt að þeir sem eru í vinnu séu hugsanlega færri daga hér í viku og geti þá verið í vinnunni eitt- hvað á milli. Það er hægt að leggja meðferð sumra þannig upp þótt það eigi alls ekki við um alla.“ Raunar segir Hjördís þessa þróun hafa verið byrjaða fyrir banka- hrunið, enda sé það mikilvægur hluti endurhæfingar að halda fólki virku. Vildi bíða eftir eftirlaununum Biðtíminn eftir endurhæfingu er misjafn, allt frá nokkrum vikum og upp undir ár. „Þetta fer eftir með- ferðarsviðum en einnig verðum við að hafa ákveðna forgangsröðun. Ef viðkomandi er hins vegar búinn að vera á biðlista í meira en ár biðjum við yfirleitt um nýjar beiðnir til að vita hvort ástandið hafi eitthvað breyst í millitíðinni,“ segir Hjördís sem undirstrikar þó að Reykja- lundur vinni stöðugt að því að stytta biðlistana. Hún tekur undir að einmitt vegna biðarinnar geti það verið ansi mikil fórn að afþakka meðferð. „Já, manni finnst það. Eitthvert dæmi var um einstakling sem var búinn að bíða en þegar komið var að honum kaus hann bíða enn um sinn þar sem hann átti eftir fjóra mánuði í eftirlaun.“ Í slíkum tilfellum dettur fólk þó ekki aftast í röðina á ný. „Ef við- komandi hefur fullgilda ástæðu fyr- ir því að hafna plássinu reynum við að semja við hann um framhaldið. Öðru máli gegnir ef hann einfald- lega vill ekki eða nennir ekki að koma eða eitthvað slíkt.“ Afþakka eftir langa bið Morgunblaðið/Valdís Thor Þjálfun Margir bíða lengi eftir endurhæfingu og meðferð á Reykjalundi enda er hún oft á tíðum forsenda þess að halda áfram venjulegu lífi.  Ótti við vinnumissi aftrar fólki frá því að fara í nokkurra vikna endurhæfingu á Reykjalundi  Sjúklingar á dagdeild setja bensínkostnað við ferðir fyrir sig FLEST bendir til að inflúensan ætli að fara mjúkum höndum um landsmenn á þessum vetri. Haraldur Briem sóttvarna- læknir hjá Land- lækni hefur fylgst með þróun mála hjá Læknavaktinni. „Það var toppur fyrir hálfum mánuði og nú sýnist mér að flensutilfellum fari fækkandi. Ég hef það á tilfinning- unni að flensan sé að hjaðna,“ segir Haraldur. Sömu sögu er að segja frá nágrannalöndum okkar. Haraldur segir að þessi vetur hafi verið með besta móti. „Það er þó ekki útilokað að við fáum síðvetrarsmell.“ Pant- aðir voru 60 þúsund skammtar af bóluefni og kláruðust þær birgðir að mestu leyti. Það bendi til þess að fólk hafi verið duglegt að láta bólu- setja sig, sem kunni að vera ein skýring þess að flensan hefur verið jafn lítið útbreidd og raun ber vitni. sisi@mbl.is Er inflúensan að fjara út? Haraldur Briem NÚ liggur fyrir að engar hóp- uppsagnir voru tilkynntar Vinnu- málastofnun í febrúar. Hópuppsagnir sem koma til framkvæmda næstu mánuði eru því óbreyttar, þ.e. um 480 koma til framkvæmda nú í mars, um 230 í apríl og um 120 í maí. 16.569 voru skráðir atvinnulausir hjá Vinnu- málastofnun í gær. sisi@mbl.is Engar nýjar hópuppsagnir E N N E M M /S ÍA /N M 36 59 9 Aðgerðaáætlun Símans fyrir fólkið og fyrirtækin! Síminn kynnir þrjár nýjar leiðir í GSM

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.