Morgunblaðið - 04.03.2009, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 04.03.2009, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. MARS 2009 SÁTT hefur tekist milli Bjarna F. Einarssonar, doktors í fornleifa- fræði, og Háskóla Íslands um að ljúka kæru fyrir siðanefnd HÍ og hefur kæra Bjarna í framhaldinu verið dregin til baka. Hlutdrægni gætti í umfjöllun Bjarni sótti um dósents- eða lekt- orsstarf í fornleifafræði við HÍ í des- ember 2001 ásamt þremur öðrum. Vorið eftir skilaði dómnefnd áliti þar sem tveir umsækjendanna voru metnir hæfir en hinir tveir, þ. á m. Bjarni, ekki. Mikil umræða skapað- ist innan skólans um hversu stór orð voru höfð um Bjarna. Hann fékk nei- kvæða dóma fyrir verk sín, var ásak- aður um ábyrgðarleysi og að hafa farið illa með almannafé. Stöðu- nefnd, sem fjallaði um álit dóm- nefndar, komst að þeirri niðurstöðu að ýmsir annmarkar væru á áliti dómnefndar og greindi meðal annars hlutdrægni í umfjöllun hennar. Þá funduðu kennarar við sagnfræðiskor HÍ og vildi meiri- hluti að áliti dóm- nefndar yrði hafnað og staðan auglýst að nýju. Bjarni kærði tvenn ummæli í dómnefndar- álitinu og í mars 2004 úrskurðaði Hæstaréttur að ummælin vógu að æru Bjarna, per- sónu og heiðri sem vísinda- og fræði- manns á sviði fornleifafræði. Í dómn- um var sagt að ummælin væru meiðandi, tilhæfulaus og óviður- kvæmileg og því voru þau dæmd ómerk. Í frétt á heimasíðu HÍ segir að bæði Bjarni og háskólinn telji sig hafa orðið fyrir skaða vegna vinnu- bragða og ummæla dómnefndar- manna. Háskólinn hafi breytt reglum við veitingu starfa háskóla- kennara og öflun dómnefndarálita í tengslum við það. ylfa@mbl.is Bjarni og Háskóli Íslands náðu sáttum  Dr. Bjarni F. Einarsson dregur til baka kæru fyrir siða- nefnd skólans  Upphaf máls má rekja til ársins 2001 Bjarni F. Einarsson Eftir Andra Karl andri@mbl.is ÞREYTA og röng viðbrögð öku- manns eru helstu orsakaþættir banaslyss sem varð 16. september sl. á Siglufjarðarvegi við Sandvík, að mati Rannsóknarnefndar umferð- arslysa. Í skýrslu nefndarinnar kem- ur fram að ökumaðurinn hafði ekið tæpa 800 km, í því sem næst einum rykk, áður en slysið varð. Þar sem slysið varð liggur veg- urinn nærri klettabelti sem endar í fjöruborði. Nefndin beinir því til Vegagerðarinnar að skoða með hvaða hætti hægt er að tryggja að vegfarendur lendi ekki í því að fara fram af klettabeltinu og ofan í sjó. Einnig segir í skýrslunni að þegar ökumaður hefur misst annað hjólið út af slitlagi sé honum mikill vandi á höndum. Hætta sé á að ökumaður missi endanlega stjórn á bifreið sinni þegar sveigt er inn á veg aftur – eins og raunin varð í þessu slysi – og því þarf ökumaður að meta hvort ekki sé betra að stýra bifreiðinni beint út af vegi í stað þess að sveigja inn á veg. Ekkert kom fram við skoðun á bif- reiðinni sem talið er að hafi haft áhrif á orsök slyssins og voru nið- urstöður áfengis- og lyfjarann- sóknar neikvæðar. Ákvæðið ekki túlkað eins Skýrslan var gerð opinber í gær- dag og í kjölfarið gerði aðstandandi hins látna athugasemd vegna birt- ingarinnar. Telur hann að RNU beri samkvæmt lögum um nefndina að gefa aðstandendum tækifæri til að skoða skýrslurnar fyrir birtingu. Skoðar hann þann möguleika að kvarta til umboðsmanns Alþingis. Ásdís J. Rafnar, formaður RNU, segist skilja sjónarmið mannsins en nefndin túlki lögin ekki á sama hátt. Hún segir nefndina vinna í anda lag- anna og við skýrslugerð sé gætt mikillar varfærni í allri framsetn- ingu. Þreyta og röng viðbrögð  RNU birtir skýrslu um banaslys á Siglufjarðarvegi í fyrra  Aðstandandi telur nefndina brjóta gegn lögum um RNU Í HNOTSKURN »Í lögum um RNU segir að viðskýrslugerð skuli nefndin gefa þeim aðilum sem sérlega ríkra hagsmuna hafa að gæta að mati nefndarinnar kost á, með þeim hætti sem rannsóknarnefnd umferðarslysa ákveður hverju sinni, að tjá sig um drög að skýrslunni. KRUMMI krunkar úti, kallar á nafna sinn, segir í kvæð- inu. Hér hafa tveir nafnar komist í góðgæti á hafnar- bakkanum á Granda í Reykjavík. Búnir að kroppa í ruslapoka sem einhver áhöfnin hefur skilið eftir sig, eða aðrir óvarkárir vegfarendur um hafnarbakkann. Líkast til fleiri fuglar en þessir sem komast í feitt. Morgunblaðið/Árni Sæberg Kroppað í ruslapoka við höfnina Bjarni kærði tvenn ummæli í dómnefndarálitinu og krafðist þess að þau yrðu dæmd ómerk. Önnur vörðuðu rann- sókn hans á minjum í Hólmi í Nesjum. Í dómnefndarálitinu sagði m.a. að Bjarni slægi fram fullyrðingum „sem ekki eru byggðar á neinum rökum, en það er hreint og beint ábyrgðarleysi“. Síðari ummælin vörðuðu rannsókn Bjarna á Hjarðar- bólsodda í Kolgrafarfirði á Snæfellsnesi. Í dómnefndar- álitinu sagði m.a. að tilgangi rannsóknarinnar hefði ekki verið náð og illa verið farið með almannafé. Hæstiréttur ómerkti ummælin. Ummælin voru dæmd ómerk

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.