Morgunblaðið - 04.03.2009, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 04.03.2009, Blaðsíða 32
32 Minningar MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. MARS 2009 Látinn er langt um aldur fram Gunnlaug- ur Þorláksson. Við kynntumst fyrir tæp- um 36 árum er ég kom inn í fjöl- skylduna og undirritaður tók strax eftir, að þar fór skarpgreindur og fjölhæfur maður. Gunnlaugur var nánast alla sína starfsævi á sjó, enda var hann eftirsóttur vegna dugnaðar, útsjónarsemi og ósér- hlífni, auk þess var hann góður fé- lagi. Hann var tæp 40 ár hjá sömu út- gerðinni á ýmsum bátum en flestir báru nafnið Farsæll SH 30 frá Gunnlaugur Þorláksson ✝ Gunnlaugur Þor-láksson fæddist á Þingeyri 7. desember 1945. Hann lést á líknardeild Landspít- alans í Kópavogi 22. febrúar síðastliðinn. Útför Gunnlaugs fór fram frá Fríkirkj- unni í Reykjavík 2. febrúar sl. Grundarfirði, en þar bjó Gunnlaugur ásamt eiginkonu sinni Þórdísi Jeremí- asdóttur og börnum allt þar til hann hóf hetjulega baráttu við illvígan sjúkdóm, sem nú hefur lagt hann að velli. Okkur varð fljótt vel til vina, enda gát- um við endalaust rætt um útgerð, báta og aflabrögð, þar vor- um við báðir á heima- velli. Gunnlaugur var fram yfir fer- tugt vélstjóri á Farsæl SH, en þá settist hann á skólabekk og aflaði sér skipstjórnarréttinda og var síð- ustu árin stýrimaður á Farsæl og leysti af sem skipstjóri. Gunnlaugur var einkar laginn og gat smíðað nánast allt það sem hann ætlaði sér hvort, sem var úr járni eða tré. Eftir hann eru til margir fallegir munir. Allar véla- viðgerðir lágu vel fyrir honum og húsbíllinn, sem hann innréttaði og endurbyggði var hreint meistara- verk . Hann smíðaði t.a.m. forkunn- arflottan körfuhring með pumpum og gaf syni mínum, þannig að strákanir gátu hangið í körfunni með tilburðum, karfan var notuð í mörg ár, því hún var sérstaklega vönduð. Hann var ekki bara laginn í höndunum, því eftir hann liggja margir fallegir og kröftugir söng- textar, sem unun er að hlusta á, þegar fjölmenni syngur þá. Á ferðalögum með fjölskyldunni naut Gunnlaugur sín vel, enda var hann mjög umhyggjusamur um fjölskylduna og alltaf reiðubúinn að hjálpa. Um tíma áttu þau fallegan sumarbústað í Borgarfirði, sem þau voru öllum stundum. Þar sást handbragð Gunnlaugs, og snyrti- mennskan var í fyrirrúmi. Bústað- inn seldu þau þegar heilsunni hrak- aði. Gunnlaugur hefur farið í sína síð- ustu sjóferð, en hann var í hópi okkar dugmiklu sjómanna, sem fast sóttu sjóinn. Minning um góð- an dreng, félaga vin og mág lifir. Hilmar Viktorsson. Lof sé þér, Guð, þín líkn ei þver, lind allrar gæsku, dýrð sé þér. Lof þér, sem veitir hjálp og hlíf, himneska svölun, eilíft líf. Lofar þig sól, þér lýtur jörð. Lífið þér færir þakkargjörð, blessi þitt nafn um eilíf ár: Einn sannur Guð og faðir hár. (Sigurbjörn Einarsson.) Elsku Þórdís, Agnar Þór, Ásdís Emilía, Steinunn Marta og fjöl- skyldur Guð styrki ykkur á þessum erfiðu tímum. Blessuð sé minning elskulega frænda. Gunnhildur Þorbjörg og fjölskylda Okkar kæri vinur, Gunnlaugur þorláksson, kvaddi þennan heim, eftir áralanga baráttu við meinið sem að lokum vann sigur á þeim óbilandi kjarki og harðfylgi sem ávallt fylgdi honum. Gulli á Farsæl hóf störf hjá Farsæls-útgerðinni í Grundarfirði á vordögum 1964 og vann þar með okkur feðgunum í gleði og sorgum fjölskyldunnar, uppbyggingu bátaflotans og nýj- ungum í tækjakosti og veiðum. Fyrstu árin vann hann sem háseti og annar vélstjóri en árið 1986 tók hann próf til skipstjórnarréttinda og starfaði eftir það sem stýrimað- ur og skipstjóri. Gulli var fengsæll á sjó og farsæld fylgdi hans starfi og fjölskyldulífi, sem hann mat óumræðilega mikils. Æskuspor hans voru á Svalvogum við Dýra- fjörð, þar sem foreldrar hans og systur nutu krafta hans og útsjón- arsemi. Á fyrsta ári dvalarinnar í Grundarfirði kynntist hann Þórdísi Jeremíasdóttur sem síðar varð eig- inkona hans og móðir barna þeirra, Agnars, Ásdísar og Steinunnar. Þau hjónin voru sérstaklega sam- hent, sem kom ekki hvað síst í ljós í sumarbústaðnum sem þau eignuð- ust í Borgarfirði en þar, eins og heima, smíðaði Gulli úr tré og járni, af sérstökum hagleik, eins og segja má um ljóðin hans. Eftir fjörutíu ár er margs að minnast, en fyrst og fremst er það minning um traustan og góðan vin sem mannbætandi var að umgang- ast. Lífs er brostinn þróttur þinn það má nánar skoða. Allir lenda eitthvert sinn á þeim feigðarboða. Ótal ferðir úfinn sjá út var lagt frá sandi. Farsæll varstu, Farsæl á, færðir björg að landi. (Elías Þórarinsson.) Megi algóður guð styrkja ykkur, Dísa mín, börn og fjölskyldur. Sigurjón Halldórsson, Hildur og börn. Í dag þegar ég kveð móðurbróð- ur minn, Gulla frænda, hefði ég helst af öllu viljað geta kvatt hann með frumsömdum texta í bundnu máli líkt og hann samdi fyrir brúð- kaupið mitt og frænkuklúbburinn flutti svo eftirminnilega. Gulla frænda var mjög margt til lista lagt og handlaginn var hann með eindæmum og það sem hann tók sér fyrir hendur gerði hann ein- staklega vel. 5 kertastjakar standa inni í stofu hjá mér því til sönnunar og það má vel vera að þeir séu ekki lengur í tísku en þeir minna mig á frænda minn og eru ekki á leiðinni úr stofunni. Minning um góðan frænda gleymist aldrei. Hildur Ísfold Hilmarsdóttir. Elsku Gulli minn. Þá er stundin runnin upp og þú ert farinn í ferðina löngu. Síðan ég frétti af andláti þínu þá hefur margt runnið í gegn um hug- ann. Vinátta ykkar hjóna við okkur hefur staðið yfir í nærri 40 ár, svo það er margs að minnast. Það var oft gaman þegar þið bjugguð við hliðina á okkur, og oft fórum við saman á skemmtanir og í ferðalög. Þá var nú sungið og haft gaman, og þau ókjör af lögum og vísum sem þú kunnir, að ekki sé minnst á allt það sem þú samdir sjálfur. Það er örugglega leitun að eins góðum og tryggum vinum og ykkur hjónunum og fjölskyldu ykkar og þegar minn maður fór þá stóðuð þið eins og klettur við hliðina á mér og minni fjölskyldu. Það er eins og ég sagði, svo ótal margs að minnast og munum við geyma það í hjörtum okkar og taka það fram og gleðjast þegar það kemur upp í hugann. Elsku Dísa mín, Agnar, Ásdís, Steinunn, makar, börn og fjölskyld- ur, Dolli, börn og fjölskyldur, okkar innilegustu samúðarkveðjur. Guð veri með ykkur öllum. Megi ljós friðar og kærleika lýsa þér á drottinsbraut, kæri vinur, og takk fyrir samverustundirnar. Ég sendi þér kæra kveðju nú komin er lífs þíns nótt, þig umvefji blessun og bænir ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði nú sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því, þú laus ert úr veikinda viðjum þín veröld er björt á ný. (Þórunn Sigurðardóttir.) Hjartans kveðjur til ykkar allra. Jakobína, börn og fjölskyldur. Elsku Gulli minn. Nú hefur þú kvatt okkur eftir sex ára hetjulega baráttu. Það eru svo margar minn- ingar sem koma upp í hug minn þegar ég hugsa til allra góðu stund- anna sem ég naut á heimili ykkar hjóna. Athafnasamari mann hef ég sjaldan eða aldrei hitt. Þegar þú varst ekki á sjónum varst þú niðri í bílskúr að smíða. Það var alltaf jafngaman að sjá afrakstur smíð- anna og þá sérstaklega yfir jólahá- tíðirnar. Gluggarnir á húsinu ykkar á Grundargötu 31 voru ávallt skreyttir fallegum stjörnum sem þú sauðst saman úr stáli af mikilli list og vafðir svo með marglitum ljós- um. Snjókarlinn sem þú bjóst til fyrir ein jólin og hengdir utan á húsið var alltaf í miklu upphaldi hjá mér. Listsköpun þín gerði líka mik- ið fyrir litla bæinn okkar og jólin komu í Grundó þegar Gulli setti upp jólaljósin. Kertastjakarnir sem þú gerðir voru heldur ekki síðri og urðu þeir stórfenglegri og stórfeng- legri eftir því sem þeir urðu fleiri, og margir urðu þeir. Stundum tókstu þér pásu frá smíðunum og komst upp í eldhús og fékkst þér kaffi. Kaffið drakkst þú alltaf svart og úr sama glæra mjólkurglasinu. Dísa hafði þá oftar en ekki nýbakaða kanilsnúða eða jólaköku á borðum sem þú gæddir þér á til þess að hlaða batteríin. Á slíkum stundum nýttum við Stein- unn tækifærið og fengum þig til þess að syngja fyrir okkur. Við ósk- uðum okkur alltaf sama lagsins; kossalagið kölluðum við það. Lagið söngst þú af svo mikilli innlifun og með svo miklum leikrænum tilþrif- um að við Steinunn veltumst um af hlátri. Mitt í smíðunum, söngnum og sjómenskunni fannst þú líka tíma til þess að semja kvæði og ljóð. Ljóðin voru alltaf hnyttin og viðeig- andi hverju tilefni fyrir sig og svo frábærlega sungin af þér sjálfum. Já, þú hafðir sko gaman af því að gleðja. Oft þegar þú komst heim af sjónum sagðir þú við okkur stelp- urnar: „Ég sá að það var eitthvað í skónum ykkar, viljið þið ekki at- huga hvað það er?“ Við fórum að gá og þá hafðir þú komið fyrir ein- hverju góðgæti í skónum okkar. Oftast var það bland í poka, því það þótti okkur best. Alveg fram til þess síðasta gerðir þú allt sem í þínu valdi stóð til þess að gleðja og dekra. Síðast þegar ég sá þig og þú varst orðinn veikburða og tengdur súrefni léstu enn ekki þitt ekki eftir liggja. Færðir mér kaffi og hélst því til haga að það væri lagað á sem bestan máta. Elsku besti Gulli minn. Góð- mennska þín, dugnaður og viska hefur kennt mér svo margt og verið mér dýrmætt veganesti í lífinu og mun verða það ævilangt. Minningin um þig verður mér ávallt ljós í hjarta. Elsku Dísa, Agnar, Ásdís og Steinunn. Guð veri með ykkur á þessum erfiðu tímum og styrki ykk- ur í sorginni. Cecilía K. Kjartansdóttir. Meira: mbl.is/minningar ✝ Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, STEFÁN JÓN STEINÞÓRSSON, andaðist á hjúkrunarheimilinu Seljahlíð, fimmtu- daginn 26. febrúar. Útförin fer fram frá Víðistaðakirkju þriðjudaginn 10. mars kl. 15.00. Steinþór Stefánsson, Hildur Pétursdóttir, Andrea Steinþórsdóttir, Hrannar Jónasson, Friðberg Stefánsson, Áslaug Birna Ólafsdóttir, Þórdís Friðbergsdóttir, Heimir Björnsson, Stefanía Heimisdóttir, Atli Friðbergsson. ✝ Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð, hlýhug og vináttu við andlát og jarðarför ástkærrar eiginkonu minnar, móður okkar, tengda- móður, ömmu, systur og mágkonu, ELFU FANNDAL GÍSLADÓTTUR. Sérstakar þakkir til starfsfólks á Heiðabæ, hjúkrunarheimilinu Skógarbæ fyrir einstaka umönnun og mannkærleika. Njáll Harðarson, Gísli Freyr Njálsson, Linda Ýr Njálsdóttir, Giovanni Sotgia, Thor Falco og Gaia Sol Sotgia, Íris Fanndal Gísladóttir Merwin, Paul Merwin, Kári Fanndal Guðbrandsson, Sigrún Sigurpálsdóttir. Bridsdeild Breiðfirðingafélagsins Sunnudaginn 1/3 var fyrsta kvöld í þriggja kvölda hraðsveitarkeppni. 13 sveitir mættu til leiks. Röð efstu sveita er þessi. Halldór Þorvaldsson – Magnús Sverrisson – Sveinn Ragnarss. – Runólfur Guðmss. 493 Garðar Jónsson – Þorgeir Ingólfsson – Unn- ar Guðmundsson – Björn Árnason 483 Ingibjörg Guðmundsdóttir – Ólöf Ólafsdóttir – Árni Hannesson – Oddur Hannesson 459 Spilað er í Breiðfirðingabúð, Faxafeni 14, á sunnudögum klukkan 19. Páll Þórsson og Sverrir Þór- isson Reykjavíkurmeistarar Þátttakan í Reykjavíkurmótinu í tvímenningi var slök, aðeins 18 pör. Páll Þórsson og Sverrir Þórisson sigruðu með miklum yfirburðum en þetta varð lokastaðan: 62,1% Páll Þórsson – Sverrir Þórisson 57,1% Ásmundur Pálss. – Guðm. P. Arnar- son 55,6% Aðalst. Jörgens. – Sverrir Ármannss. 55,2% Ásgeir Ásbjss. – Hrólfur Hjaltason 55,0%Friðþj. Einarss. – Guðbr. Sigurbergss. Frá eldri borgurum í Hafnarfirði Föstudaginn 27. febrúar var spilað á 17 borðum. Úrslit urðu þessi í N/S Örn Einarsson – Bragi Bjarnason 384 Magnús Oddss. – Oliver Kristóferss. 372 Gísli Hafliðason – Björn Pétursson 355 Sverrir Jónsson – Óli Gíslason 352 A/V Jón Gunnarss. – Ásgrímur Aðalsteins. 368 Ingólfur Þórarinss. – Sigfús Jóhannss. 364 Kristján Þorlákss. – Jón Sævaldsson 351 Oddur Halldórss. – Gísli Friðfinnss. 346 Súgfirðingaskálin Þriðja lota í keppni um Súgfirð- ingaskálina, tvímenningsmóti Súg- firðingafélagsins er nýlokið. Heildarstaðan er svohljóðandi en alls hafa 12 pör spilað í keppninni. Meðalskor 324. Gróa Guðnad. – Guðrún K. Jóhannesd. 383 Jón Óskar Karlss. – Karl Ómar Jónss. 338 Einar Ólafss. – Þorsteinn Þorsteinss. 336 Sigurp. Ingibergss. – Arngr. Þorgrímss. 332 Ólafur Ólafsson – Karl Bjarnas. 331 Feðgarnir Ásgeir Sölvason og Sölvi Ásgeirsson tóku fín skor en úr- slit kvöldsins urðu: Ásgeir Sölvason – Sölvi Ásgeirss. 130 Gróa Guðnad. – Guðrún K. Jóhannesd. 121 Guðbj. Björnss. – Steinþór Benediktss. 113 Fjórða lota verður spiluð mánu- daginn 23. mars í spilasal Bridssam- bands Íslands. Tíu borð í Gullsmára Spilað var á 10 borðum mánudag- inn 2. mars. Úrslit urðu þessi í N/S: Sigtryggur Ellertss. – Þorsteinn Laufdal 215 Jón Jóhannss. – Haukur Guðbjartss. 184 Samúel Guðmss. – Jón Hanness. 176 A/V Elís Kristjánsson – Páll Ólason 205 Örn Einarsson – Bragi Bjarnason 193 Sigurður Björnssn – Ólafur Gunnarss. 176 Jón Guðmar og Hermann Hafnarfjarðarmeistarar Aðaltvímenningi Bridsfélags Hafnarfjarðar lauk sl. mánudag með sigri Jóns Guðmars Jónssonar og Hermanns Friðrikssonar en þeir náðu fljúgandi starti í upphafi og héldu forystunni allt til loka. Helstu úrslit: Hermann Friðrikss. – Jón G. Jónsson 55,4% Sveinn Þorvaldss. – Guðl. Sveinss. 54,5% Sigurjón Harðars. – Haukur Árnas. 53,5% Björn Arnarson – Garðar Jónss. 53,4% Sveinn Stefánss. – Guðm. Skúlason 53,1% Næsta keppni félagsins er þriggja kvölda Hraðsveitakeppni og hefst hún mánudaginn 9. mars kl. 19 stundvíslega. Spilað er í Hraunseli, Flatahrauni 3. Dagskrá félagsins og öll úrslit á Bridge.is>félög BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson| norir@mbl.is Morgunblaðið birtir minning- argreinar alla útgáfudagana. Skil | Greinarnar skal senda í gegn- um vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is – smella á reitinn Senda efni til Morg- unblaðsins – þá birtist valkosturinn Minningargreinar ásamt frekari upplýsingum. Skilafrestur | Ef birta á minning- argrein á útfarardegi verður hún að berast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein ber- ist áður en skilafrestur rennur út. Greinar, sem berast eftir að útför hefur farið fram, eftir tiltekinn skila- frests eða ef útförin hefur verið gerð í kyrrþey, eru birtar á vefnum, www.mbl.is/minningar. Æviágrip með þeim greinum verður birt í blaðinu og vísað í greinar á vefnum. Lengd | Minningargreinar sem birt- ast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Engin lengdarmörk eru á greinum sem birtast á vefnum. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síðuna. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.