Morgunblaðið - 04.03.2009, Síða 13

Morgunblaðið - 04.03.2009, Síða 13
FRÉTTASKÝRING Eftir Sigtrygg Sigtryggsson sisi@mbl.is BOÐAÐ frumvarp til laga um breyt- ingar á lögum um kosningar til Al- þingis hefur litið dagsins ljós. Í frumvarpinu felst að opnaður verði möguleiki til persónukjörs. Flutn- ingsmenn eru formenn fjögurra þingflokka, Lúðvík Bergvinsson, Samfylkingu, Jón Bjarnason, Vinstri grænum, Siv Friðleifsdóttir, Fram- sóknarflokki, og Grétar Mar Jóns- son, Frjálslyndum. Sjálfstæðisflokk- urinn stendur ekki að frumvarpinu enda hafa talsmenn hans lýst því yfir að svo róttækar breytingar á kosn- ingakerfinu þarfnist miklu betri undirbúnings. Samkvæmt frumvarpinu skal hverjum framboðslista fylgja yf- irlýsing til yfirkjörstjórnar um það hvort listinn skuli raðaður eða ór- aðaður. Ef listinn er óraðaður, skal yfirkjörstjórn varpa hlutkesti um röð frambjóðenda á listanum. Sam- kvæmt þessu munu úrslit prófkjöra sem framundan eru engin áhrif hafa á röð frambjóðenda á listanum, nái frumvarpið fram að ganga, og við- komandi flokkur ákveður að bjóða fram óraðaðan lista. Það er í valdi kjördæmisráða flokkanna hvernig boðið er fram í hverju kjördæmi. Að sögn Þorkels Helgasonar, eins höfunda frum- varpsins, er það skilningur höfund- anna að flokkarnir geti valið mis- munandi form eftir því hvar boðið er fram. Þannig geti Samfylkingin boð- ið fram óraðaðan lista í Reykjavík norður en raðaðan lista í Reykjavík suður, svo dæmi sé tekið. Velji stjórnmálaflokkur að bjóða fram óraðan lista hreppir sjá fram- bjóðandi 1. sætið sem fær flest at- kvæði í það sæti. Sá frambjóðandi sem fær flest atkvæði samanlagt í 1. og 2. sætið hreppir 2. sætið og svo koll af kolli. Sú staða getur auðvitað komið upp að tveir frambjóðendur fái jafn mörg atkvæði. Samkvæmt frumvarpinu á landskjörstjórn að varpa hlutkesti milli þessara tveggja einstaklinga. Það er því ekki óhugs- andi að það ráðist á hlutkesti hvort frambjóðandi verður þingmaður eða ekki. Breytingar þær sem frumvarpið kveður á um snerta einkum ákvæði um óraðaða lista. Reynt er að láta ákvæði um raðaða lista halda sér frá gildandi lögum. Ræður hlutkesti?  Formenn þingflokka flytja frumvarp um kosningalög  Flokkar geta boðið fram bæði raðaða og óraðaða lista Morgunblaðið/Árni Sæberg Kosningar Nái frumvarpið fram að ganga verður talning atkvæða miklu flóknari en verið hefur hingað til. Fréttir 13INNLENT MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. MARS 2009 Samfylking og Vinstri hreyfingin grænt framboð hafa komið sér saman um að Alþingiskosningar fari fram laugardaginn 25. apríl næstkomandi. Morgunblaðið mun daglega birta fréttir sem tengjast framboðum, prófkjörum, kosningafundum o.fl. . Alþingiskosningar 2009 BIRGIR Ármannsson leitar eftir stuðningi reykvískra sjálfstæðismanna í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykja- vík sem fer fram dagana 13. til 14. mars nk. til áframhald- andi setu á Alþingi. Birgir sækist eftir kjöri í 3.-4. sæti í prófkjörinu og samkvæmt því stefnir hann að því að skipa 2. sætið á framboðslista flokksins í öðru hvoru Reykjavík- urkjördæminu í vor. Birgir hefur setið á Alþingi frá því í kosningunum vorið 2003. Hann er lögfræðingur og var aðstoðarfram- kvæmdastjóri Verslunarráðs Íslands áður en hann var kjörinn á þing 2003. Hann er kvæntur Ragnhildi Lövdahl. Birgir sækist eftir 3.-4. sæti Birgir Ármannsson LOGI Már Ein- arsson gefur kost á sér í 1.-3. sæti á lista Samfylking- arinnar í NA- kjördæmi fyrir komandi kosn- ingar. Logi er arkitekt og rekur ásamt öðrum arkitekta- stofuna Kollgátu og hefur auk þess mikla starfsreynslu á sviði mann- virkjagerðar og skipulagsmála. Logi Már sækist eftir 1.-3. sæti Logi Már Einarsson GUÐRÚN Erlings- dóttir gefur kost á sér í 1.-2. sæti í prófkjöri Samfylk- ingarinnar í Suður- kjördæmi. Guðrún starfar sem sérfræðingur í kjaramálum. Hún hefur áratuga reynslu af fé- lagsmálum og hefur í átta ár setið í sveitarstjórn. Guðrún sækist eftir 1.-2. sæti Guðrún Erlingsdóttir HJÖRTUR Guð- bjartsson gefur kost á sér í 5. sæti á lista Samfylking- arinnar í Suður- kjördæmi. Hjörtur er 25 ára gamall. Hann stundar nú nám í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands auk þess að sinna stöðu fram- kvæmdstjóra hjá Lyfta.is í Reykja- nesbæ. Hjörtur Guðbjarts- son vill 5. sæti Hjörtur Guðbjartsson ÖSSUR Skarphéðinsson, iðnaðar- og utanríkisráðherra, býður sig fram í 3. sæti í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík vegna alþingiskosninganna í vor. Hann hefur lýst yfir stuðningi við Jóhönnu Sigurð- ardóttur í 1. sæti og sem forsætisráðherraefni flokksins í kosningunum og Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur í 2. sætið og sem formann Samfylkingarinnar á landsfundi í vor. Helstu baráttumál Össurar á þessu kosningavori er end- urnýjun atvinnulífsins og aðgerðir til þess að sporna gegn atvinnuleysi. Össur sækist eftir 3. sæti Össur Skarphéðinsson MATTHÍAS Sævar Lýðsson, bóndi í Húsavík í Stranda- byggð, gefur kost á sér í 3.-6. sæti á lista Vinstri grænna í NV- kjördæmi. Matthías hefur unnið margt sam- hliða búskap, m.a. sem leiðsögumaður, lögreglumaður og félagsráðgjafi. Matthías Sævar vill í 3.-6. sæti Matthías Sævar Lýðsson Helgi Kr. Sig- mundsson gefur kost á sér í próf- kjöri Sjálfstæðis- flokksins í NV- kjördæmi og býður sig fram í 5. sæti listans. Helgi tók þátt í sveitarstjórn- arkosningum árið 1990 og var á lista Sjálfstæðisflokksins í Mosfellsbæ. Hann er nú búsettur á Ísafirði. Helgi Kristinn býður sig fram í 5. sætið Helgi Kr. Sigmundsson GUÐRÚN Inga Ingólfsdóttir gefur kost á sér í 4. sæti í prófkjöri Sjálfstæð- isflokksins í Reykjavík. Guðrún er með BS-gráðu í hag- fræði frá HÍ og MA- gráðu í alþjóðafjár- málum og hagfræði frá Brandeis-háskóla í Bandaríkj- unum. Hún hefur undanfarin fjögur ár búið í Boston. Guðrún Inga sæk- ist eftir 4. sæti Guðrún Inga Ingólfsdóttir STUTT GYLFI Þór Þór- isson gefur kost á sér í 5.-7. sæti í prófkjöri Sjálfstæð- isflokksins í Reykjavík. Gylfi Þór útskrif- aðist með BA- gráðu í markaðs- fræðum frá Ari- zona State University í Bandaríkjunum árið 1994. Hann hefur m.a. unnið við verslunar- og markaðastörf síðan. Gylfi Þór sækist eftir 5.-7. sæti Gylfi Þór Þórisson SKARPHÉÐINN Skarphéðinsson gefur kost á sér í 3.-6. sæti á lista Samfylkingarinnar í SV-kjördæmi. Skarphéðinn er kennari við Iðn- skólann í Hafn- arfirði. Þar áður rak hann verktaka- fyrirtæki í 23 ár. Hann er formaður félags pípulagningameistara. Skarphéðinn sæk- ist eftir 3.-6. sæti Skarphéðinn Skarphéðinsson Kjósandi greiðir atkvæði á þann hátt að hann markar með ritblýi kross í ferning fyrir framan bókstaf þess lista á kjörseðlinum sem hann vill kjósa. Sé listi óraðaður setur kjósandi tölustafinn 1 í ferninginn fyrir framan það nafn sem hann vill að sé í efsta sæti listans, töluna 2 í ferninginn fyrir fram- an það nafn sem hann vill að sé í næstefsta sæti listans o.s.frv. Kjósandi set- ur tölur við nöfn eins margra af frambjóðendum listans og hann sjálfur vill. Nýti kjósandi ekki að fullu tölustafina 1, 2, 3 o.s.frv. eða sleppi einhverjum þeirra telst hann ekki taka afstöðu til þess hver skipi viðkomandi sæti. Riti kjósandi sama tölustafinn tvívegis eða oftar telst hann ekki heldur taka af- stöðu til sætis með því númeri. Merki kjósandi einungis við listabókstaf en færi engar tölur framan við nöfn frambjóðenda listans telst hann ekki taka afstöðu til þess í hvaða röð þeir skipa sæti listans. Kjósandi getur valið að vild

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.