Morgunblaðið - 04.03.2009, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 04.03.2009, Qupperneq 19
Daglegt líf 19ÚR BÆJARLÍFINU MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. MARS 2009 Símenntunarmiðstöðin á Vest- urlandi átti 10 ára afmæli í febrúar og hélt upp á það hinn 19. febrúar sl. Um 130 manns mættu til að gleðjast sam- an, en boðið var upp á ókeypis örnám- skeið af ýmsu tagi og glæsilegar veit- ingar frá ýmsum heimshornum. Mexíkóskar pönnukökur, filipp- seyskar núðlur, þjóðarréttur frá Mar- okkó, pierogi og golabki-kálbögglar frá Póllandi; allt rann þetta ljúflega niður ásamt grænmetisrétti sem þeir Beggi og Pacas elduðu í „beinni“. Ekki var afmælistertan frá Geira bakara síðri, og voru allir saddir og sælir með daginn. Símennt- unarmiðstöðin er í miklum blóma, hefur eflst og dafnað á þessum 10 ár- um, og fjölgar viðskiptavinum jafnt og þétt, og eftirspurn eftir alls kyns námi og námskeiðum. Alls staðar er eftirspurn eftir „Stóru námsleið- unum“ en það eru námskeið sem kennd eru skv. námskrá Fræðslu- miðstöðvar atvinnulífsins. Nám- skrárnar eru vottaðar af mennta- málaráðuneytinu og er námið einingabært til framhaldsskóla. Með- al þessara námsleiða má nefna Grunnmenntaskólann, Grunnnám skólaliða, Aftur í nám, Skref til sjálfs- hjálpar og Landnemaskólann.    Landnemaskólinn er nám ætlað inn- flytjendum og eru kennslugreinar sjálfstyrking, færnimappa, tölvur, samfélagsfræði og íslenska. Nám- skeið hófst í síðustu viku hér í Borg- arnesi og eru þátttakendur 14 frá 4 löndum. Nú vilja margir af erlendum uppruna styrkja sig bæði í íslensku sem og aðlögun að íslensku samfélagi. Margir innflytjendur sem hér búa hafa síður en svo hugsað sér að yf- irgefa Ísland, og vilja taka slaginn með okkur, hvort sem er í uppgangi eða niðursveiflu. Í árferði sem þessu er mikilvægt að nýta tímann og styrkja stöðu sína, því komið hefur í ljós að Landnemaskólinn virkar hvetjandi og undantekningarlaust hafa þátttakendur verið mjög ánægð- ir með skólann. Í vor er stefnan tekin á menningarferð til höfuðborg- arinnar, jafnvel alla leið út á Álftanes, en þetta er liður í fræðslu um íslenskt samfélag.    Nú vinna ungir og atorkumiklir menn að því dag sem nótt að koma upp skemmtistað hér í bæ. Um er að ræða „gamla Bónushúsnæðið“ við Borg- arbraut, en þarna hafa áður verið til húsa ýmsar verslanir s.s. Hagkaup, 10-11, og Verslun Jóns og Stefáns. Um hríð hefur húsið staðið autt, með örfáum undantekningum eins og jóla- markaði. Reiknað er með að nýi skemmtistaðurinn verði opnaður upp úr 20. mars og tekur um 200 manns. Það er ekki laust við að spenna sé í loftinu og eflaust einhverjir farnir að hlakka til að geta slett úr klaufunum, tjúttað og tvistað en hingað til hefur gólfrými verið helst til lítið á hverf- isbörunum í Borgarnesi; Dússabar og Vinakaffi sem þó standa vel fyrir sínu.    Verst er samt að Borgarbrautin er sundurgrafin þessa dagana, verið er að skipta um skólprör og umferðinni beint um Kjartansgötuna. Því miður er sú gata ekki beysin, holótt og mö- lótt, en vekur hjá vegfarendum ljúfar minningar um sveitavegina forðum. Allt hlýtur þetta þó að lagast með vori og hækkandi sól, enda Borgarnes bara flottur bær. Landsnámssetrið fékk Eyrarrósina nýlega, spennandi hugmyndir eru um nýtingu Englend- ingavíkurinnar og forseti Íslands hef- ur sést hér ótrúlega oft undanfarið !!! Morgunblaðið/Guðrún Vala Elísdóttir Landnemar í sjálfstyrkingu Landnemaskólinn er nám ætlað innflytjendum. BORGARNES Guðrún Vala Elísdóttir fréttaritari Hjálmari Freysteinssyni varð aðorði þegar Kristinn H. Gunn- arsson sagði skilið við Frjálslynda flokkinn: Ýmislegt þarf upp að stokka öðru breyta má. Núna vantar fleiri flokka fyrir Kristin H. Davíð Hjálmar Haraldsson bætti við: Frjálslyndra er fjöregg brotið; feyru sáu augu glögg og orðið svona innanrotið, ekki þoldi sleggjuhögg. Þá Hreiðar Karlsson: Ótrauður þræðir hann einfarans stig, aðeins til hliðar og nokkuð á ská. Kvíða því flokkarnir hver um sig að Kristinn gangi til liðs við þá. Hjálmar var ekki hættur: Hefur margt til brunns að bera, brögðóttur og fylginn sér og minnisgóður má hann vera að muna í hvaða flokki hann er. Loks orti Davíð Hjálmar: Víxlaður fór hann á valhoppi um geim, til vinstri og hægri þar slóðin öll lá, en Kristinn til Framsóknar kominn er heim. Kálfinum Hreiðar því slátra nú má. VÍSNAHORN pebl@mbl.is Kristinn H. og flokkarnir Atkvæðisrétt eiga allir félagsbundnir sjálfstæðismenn sem náð hafa 16 ára aldri prófkjörsdaginn og búsettir eru í Suðurkjördæmi. Prófkjörið fer fram laugardaginn 14. mars nk. og verður það nánar auglýst síðar. Nánari upplýsingar: www.profkjor.is Kjörnefnd Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi ATKVÆÐASEÐILL í prófkjöri sjálfstæðismanna í Suðurkjördæmi 14. mars 2009 Kjósið 6 frambjóðendur í töluröð Jón Þórðarson, ritstjóri Birgitta Jónsdóttir Klasen, náttúrulæknir Magnús Ingberg Jónsson, sjálfstætt starfandi Árni Johnsen, alþingismaður Árni Árnason, blaðamaður Ingigerður Sæmundsdóttir, verkefnastjóri Guðbjörn Guðbjörnsson, stjórnsýslufræðingur Vilhjálmur Árnason, lögreglumaður Kjartan Ólafsson, alþingismaður Ragnheiður Elín Árnadóttir, alþingismaður Íris Róbertsdóttir, grunnskólakennari Grímur Gíslason, framkvæmdastjóri Sigmar Eðvardsson, bæjarfulltrúi Björk Guðjónsdóttir, alþingismaður Björn Ingi Jónsson, rafiðnaðarfræðingur Unnur Brá Konráðsdóttir, sveitarstjóri Ólafur Hannesson, skrifstofumaður ATHUGIÐ. Kjósa skal 6 frambjóðendur, hvorki fleiri né færri. Kosið skal með því að setja tölustafina 1 til 6 fyrir framan nöfn frambjóðenda. Þannig skal kjósandi setja töluna 1 fyrir framan nafn þess frambjóðanda sem hann óskar að hljóti fyrsta sætið í prófkjörinu, töluna 2 fyrir framan nafn þess sem hann vill að hljóti annað sætið í prófkjörinu, töluna 3 fyrir framan nafn þess sem hann vill að hljóti þriðja sætið í prófkjörinu og þannig koll af kolli þar til kosnir hafa verið 6 frambjóðendur. Kjósið 6 frambjóðendur í töluröð Prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi 14. mars 2009 Utankjörfundaratkvæðagreiðsla fer fram sem hér segir: Austur-Skaftafellssýsla Sjálfstæðishúsinu, Kirkjubraut 3, Höfn í Hornafirði 4.-6. mars og 9.-13. mars kl. 17:00-19:00 Vestur-Skaftafellssýsla BVT ehf., Austurvegi 15, Vík í Mýrdal 5. mars og 11. mars. kl. 15:00-17:00 Árnessýsla og Árborg Sjálfstæðishúsinu, Austurvegi 38, Selfossi 4. mars - 13. mars. kl. 17:00-19:00 Rangárvallasýsla Þrúðvangi 18, Hellu 4.-6. mars og 9.-13. mars kl. 09:00-17:00 Vestmannaeyjar Ásgarði við Heimagötu 4. mars - 13. mars. kl. 17:00-19:00 Reykjanesbær Sjálfstæðishúsinu í Njarðvík 4. mars - 13. mars. kl. 17:00-19:00 Grindavík Björgunarsveitarhúsinu, Seljabót 10 7. mars - 13. mars. kl. 17:00-19:00 Valhöll Háaleitisbraut 1, Reykjavík 4. mars - 13. mars. kl. 09:00-17:00 Eftir Svanhildi Eiríksdóttur Reykjanesbær | „Mig langar til að gera kórinn hæfari í rytma- tónlist. Kórinn er mjög fjöl- breyttur, fleiri og fleiri bætast í hópinn og margir kunna að lesa nótur sem gerir það að verkum að honum er auðveldlega hægt að skipta í hópa. Svo væri gam- an að búa til kirkjuband, sem skipað væri hljóðfæraleikurum úr kórnum. Þeir eru margir og fjölhæfir,“ sagði Arnór Vilbergs- son organisti í Keflavíkurkirkju en hann tók við orgelinu og stjórn Kórs Keflavíkurkirkju síð- astliðið haust. Mjög poppaður segja þeir sem til þekkja og ekki óalgengt að úr pípunum megi greina tóna Deep Purple eða Þursaflokksins. „Yes,“ voru viðbrögð ferming- arbarna þegar Arnór kynnti þeim í haust sálma með blúsuðu yfirbragði. „Auðvitað nota ég líka þá klassísku tóna sem kirkjugestir eiga að venjast.“ Blásið og slegið um leið Þegar blaðamann bar að garði ómuðu tónar úr kvikmyndinni Titanic um ganga safnaðarheim- ilisins. Arnór Vilbergsson org- anisti sat við lítið píanó í vinnu- herbergi sínu með munnhörpu í viðeigandi festingu svo hann gæti slegið hljómana og blásið um leið. „Mig langar að kynna unga fólkinu eitthvað nýtt,“ svaraði hann um uppákomuna. Þrátt fyrir að Arnór byrjaði sinn feril í poppinu með hljómsveit- inni Þusl frá Keflavík æxluðust málin þannig að orgelið og kirkjutónlistin urðu ofan á. „Ætli það hafi ekki verið fullt í píanónáminu þegar ég skráði mig í tónlistarskólann. Ég byrj- aði að læra á orgel hjá Siguróla Geirssyni heitnum, fór svo yfir í píanó hjá Ragnheiði Skúladóttur og tók svo pásu á unglingsárun- um. Eftir að hafa leikið á Ham- mondinn í hljómsveitinni valdi ég aftur orgelið. Steinar Guð- mundsson, sem þá var orðinn kennari minn, kallaði mig inn í Ytri-Njarðvíkurkirkju og ég varð svo heillaður af tónunum og kirkjutónlistinni að það varð ekki aftur snúið. Það er alveg magnað hvað er hægt að gera með þetta hljóðfæri, og að fá að glíma við stykki eftir Bach og þá meistara fannst mér mikil áskor- un. Það er gott að fá að glíma við það sem er aðeins of erfitt, “ sagði Arnór sem kom aftur á bernskuslóðirnar í haust eftir 10 ára veru á Norðurlandi þar sem hann náði sér í góða reynslu í orgelleik, kórstjórn og tónlistar- vinnu í leikhúsi. – Þú hefur ekkert verið litinn hornauga fyrir þennan viðsnún- ing í tónlistinni? „Nei, þvert á móti. Fólk var frá upphafi opið fyrir því sem ég hafði fram að færa og ég fékk mikinn stuðning.“ Arnór sagði jafnframt að það væri ekkert nema gott um það að segja að hafa reynslu í poppinu. „Sá grunnur hefur bara hjálpað mér. Í kirkjulegum athöfnum er mjög oft beðið um popptónlist. Poppið hefur auk þess reynst mér vel í vinnu með framhalds- skólanemum við uppsetningu söngleikja sem og í leikhúsi, en ég hef verið tónlistarstjóri í nokkrum verkum, meðal annars hjá Leikfélagi Akureyrar.“ Poppið hyggst Arnór ekki síð- ur nota til að auka fjölbreytnina í tónlistarvalinu hjá Kór Keflavík- urkirkju, en hann sagði mik- ilvægt að leggja inn eitthvað nýtt reglulega svo ekki komi leiði í fólk. „Mig langar að kórinn geri meira af því að syngja dæg- urtónlist, enda er kórinn góður og getur sungið nánast hvað sem er. Auk þess búum við svo vel að hafa frábæran raddþjálfara, Jó- hann Smára Sævarsson bassa- söngvara og hann kemur mjög sterkur inn á æfingar. Það eru ekki margir kórar sem geta stát- að af raddþjálfara á launum,“ sagði Arnór sem á sér greinilega marga góða drauma um framtíð Kórs Keflavíkur. Æfingarnar í dag snúast hins vegar um upprisuhátína því á páskadagsmorgun verður verkið Inneggiamo úr Cavalleria Rustic- ana eftir Mascagni flutt í kirkj- unni, erfitt verk sem er mikil áskorun fyrir kórinn, að sögn Arnórs. Gott að fá að glíma við eitt- hvað sem er aðeins of erfitt Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir Poppaður organisti Arnór Vilbergsson, organisti í Keflavíkurkirkju, segir poppið góðan grunn í starfið. Viðbrögð kirkjugesta við nýjungum hafa sýnt það.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.