Morgunblaðið - 04.03.2009, Síða 29

Morgunblaðið - 04.03.2009, Síða 29
sókn til þín og ömmu. Ég mun aldrei gleyma hve góður þú varst og allar þær góðu minningar sem við eigum um þig munum við alltaf geyma í hjarta okkar. Það var svo sárt þegar mamma sagði okkur að þú værir farinn að tárin láku niður kinnarnar og ætluðu ekki að stoppa, við munum aldrei gleyma þér. Þakka þér fyrir allt, sem þú varst mér. Þakka þér fyrir allt, sem þú gerðir fyrir mig. Þú skilur eftir auðlegð þá sem enginn tekið fær. Ást í hjarta, blik á brá, og brosin silfurtær. Mesta auðinn eignast sá er öllum reynist kær. (G.Ö.) Guð geymi þig, elsku afi. Og takk fyrir allar góðu stundirnar Anna Þóra og Vilmundur Grét- ar. Það er erfitt og líklega bara ómögulegt að kveðja þennan frá- bæra og yndislega mann sem hann Óli afi var. En minningarnar eru margar, góðar og lifa alltaf. Sem börn vorum við mikið í Stífluselinu og reyndum sem oftast að fara og eyða nótt eða helgum þar. Þegar við veiktumst og komumst ekki í skólann kom ekkert annað til greina en að komast í dekrið og væntumþykjuna í Stífluselinu. Sterkustu minningarnar eru þó án efa ættarmótin og óteljandi ferðir undir Eyjafjöll með afa. Við vitum að afi er nú kominn á góðan stað og honum líður vel og viljum að lokum segja: Elsku afi, þú munt alltaf lifa í minningunni og Guð geymi þig. Guðmundur M. Þorsteinsson, Svanur Þ. Þorsteinsson. Nú er afi minn dáinn, mikið á ég eftir að sakna hans. Ég á margar góðar minningar um afa minn. Ég fór á hverju ári með afa mínum og ömmu austur undir Eyjafjöll í sveitina þeirra. Einnig fór afi og amma oft með mér í sumarbústað. Þetta ár á eftir að verða allt öðruvísi en öll önnur ár sem ég hef lifað, því það vantar svo mikið þegar afa vantar. Afi var búinn að vera dálítinn tíma veikur og það var erfitt að horfa upp á það. Nú er ég viss um að afa líður vel hjá guði. Elsku amma, við pössum hvort annað, nú þegar afi er farinn, svo okkur líði vel. Nú legg ég augun aftur, ó, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vörn í nótt. Æ, virst mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (Sveinbjörn Egilsson.) Ég fel í forsjá þína, Guð faðir, sálu mína, því nú er komin nótt. Um ljósið lát mig dreyma og ljúfa engla geyma öll börnin þín, svo blundi rótt. (Matthías Jochumsson.) Guð veri með þér, elsku afi. Kristmundur Sverrir. Elsku afi, Augu mín fyllast tárum og ég fæ kökk í hálsinn þegar ég hugsa um það að afi sé farinn, að ég fái aldrei að sjá hann eða tala við hann aftur. Það er erfitt að ímynda sér Stíflu- selið án afa. Þó að ég hafi nokkurn veginn gert mér grein fyrir því hversu alvarleg veikindi þín voru átti ég alls ekki von á því að mamma myndi vekja mig einn dag- inn með þær fréttir að þú værir farinn. Síðustu mánuðir hafa verið svo erfiðir hjá þér og ég trúi því að þar sem þú ert núna líði þér betur. Ég veit að þú munt fylgjast með okkur hérna og passa upp á okkur, sérstaklega ömmu. Þú og amma voruð alltaf tvö. Maður gat alltaf treyst á það að ef maður sá annað ykkar var hitt ekki langt undan. Það var svo auðvelt þegar ég var lítil að hringja bara í ömmu og afa, fá að koma til ykkar og vera hjá ykkur. Á hverjum morgni vaknaði maður við klukkuhljóðið í stofunni og lykt af ristuðu brauði. Það var alltaf tekið svo vel á móti manni og allt gert fyrir mann. Ef ég vildi ekki það sem var í kvöldmatinn hjá ykkur leið ekki langur tími þangað til þú klæddir þig í skóna og fórst með mig út í búð. Þú varst alltaf svo þolinmóður eins og þegar þú varst að kenna mér að spila ólsen- ólsen og svarta Pétur. Ég átti svo erfitt með að ná leikreglunum en þú gafst ekki upp, eftir smátíma var ég búin að ná þeim og við spil- uðum endalaust. Það fór aldrei á milli mála hversu góður maður þú varst. Ég kveð þig með miklum söknuði og skal lofa því að þú munt alltaf lifa í minningunum mínum. Því svo elskaði Guð heiminn að hann gaf son sinn eingetinn, til þess að hver sem á hann trúir glatist ekki, heldur hafi eilíft líf. (Jóhannes. 3:16) Sigurbjörg Ólína Jónsdóttir. Í dag er ég kveð Ólaf frænda minn og vin með virðingu og þökk langar mig til að minnast Guðlaug- ar systur hans en hún var jarð- sungin 9. febrúar sl. Mér þótti leitt að geta ekki fylgt henni. Margar góðar og skemmtilegar minningar á ég frá æsku minni í Stóru-Mörk þegar systkini mömmu og fjölskyldur komu austur í sveit- ina sína. Alltaf voru rifjaðar upp sögur frá gömlu dögunum, þá kom glettni og smápúkagangur í ljós, en alltaf í góðu. Eftir að ég flutti í bæ- inn og eignaðist mína fjölskyldu og birtist óboðin í heimsókn hjá þeim opnuðust dyrnar upp á gátt, öllum var tekið jafn vel og allir boðnir velkomnir. Svona voru systkini mömmu frá Stóru-Mörk, alltaf hlý og notaleg. Ég bið Guð að styrkja Mundu, dætur þeirra Ólafs og fjölskyldur, einnig Jens, börn Guðlaugar og fjölskyldur. Guð gefi mömmu og Sigurbjörgu góða heilsu og styrk, en þær lifa nú stóran systkinahóp. Meðfylgjandi er vísubrot sem amma Guðbjörg, móðir þeirra, fékk í heillaskeyti á 70 ára afmæli sínu sem fylgir minningu minni um veruna í Stóru-Mörk. Bjart er yfir bæjum undir heiði bjarma og yl af minningunum ber heill þér, Guðbjörg, hamingjan þig leiði hlýjar kveðjur senda viljum þér. (Höf. ókunnur.) Hrafnhildur Eysteinsdóttir. Minningar 29 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. MARS 2009 Stundum fannst okkur í fjölskyld- unni að hann tæki vinnuna með sér hvert sem hann fór. Vinnan var hon- um afar mikilvæg og reyndi hann oft að útskýra fyrir tornæmum tengda- syni hinar ýmsu nýjungar í röntgen- fræðum við misjafnan árangur. Þórður fór oft til útlanda til að mennta sig og sótti ráðstefnur víða og fylgdist vel með öllum nýjungum í röntgenfræðunum og miðlaði þeirri þekkingu meðal starfsfélaga sinna. Hann kenndi einnig nemum í rönt- gentækni um árabil. Helstu áhuga- mál Þórðar voru íþróttir en hann stundaði frjálsar sem ungur maður og þegar hann lagði þá skó á hilluna fór hann að æfa borðtennis og tók þátt í þeirri íþrótt með góðum ár- angri meðan heilsan leyfði. Hann var góður skákmaður og síðustu skákina tefldi hann við Guðmund vin sinn tveimur dögum fyrir andlátið. Þórð- ur hafði gaman af því að spila hvers konar spil og þá sérstaklega brids, mér veittist sá heiður að fá stundum að spila með þeim spilafélögum sem hittust einu sinni í viku til margra áratuga. Þar kynntist ég keppnis- manninum Þórði sem sætti sig sjaldnast við að tapa. En keppnis- maðurinn lýsti sig sigraðan þegar heilsan brast, hann tók örlögum sín- um af einstakri sálarró og aldrei missti hann glaðværð sína. Tengdafaðir minn var góður og vandaður maður sem við fjölskyldan eigum eftir að sakna sárt. Við Guð- rún, Halla Björg og Árni Þórður kveðjum ástkæran föður, tengdaföð- ur og afa og þökkum fyrir allar góðu stundirnar sem við áttum með hon- um. Randver Þorláksson. Nú þegar Þórður, vinur minn, hef- ur kvatt þetta líf koma upp í hugann ótal minningar um góðan dreng. Leiðir okkar lágu fyrst saman á verkstæði fyrirtækisins Bræðurnir Ormsson, en ég var þá að hefja þar nám í rafvélavirkjun. Mér var kunn- ugt um að ég ætti skyldmenni sem starfaði hjá fyrirtækinu sem rafvirki og lék mikil forvitni á að hitta þenn- an frænda minn. Það er skemmst frá því að segja að við náðun strax mjög vel saman og urðum miklir mátar sem síðar þróaðist í farsæla vináttu. Þórður var mjög góður fagmaður, athugull og með afar gott minni, enda fljótt settur í vandasamari verkefni hjá fyrirtækinu. Má þar nefna Bæjarútgerð Reykjavíkur, þar sem hann varð fljótt sérfróður í við- gerðum á rafmagnsspilum togar- anna, Hitaveitu Reykjavíkur, en hann annaðist að stórum hluta upp- setningar og viðhald á stýribúnaði í dælustöðvunum á sínum tíma. En það má segja að framtíð hans hafi ráðist þegar honum var falið að sjá um viðhald á röntgentækjum Ríkis- spítalanna, enda leiddi það til þess að Landspítalinn réð hann í fast starf til þess að sinna þeim málaflokki og varð hann brátt okkar fremsti sér- fræðingur á þessu sviði og sá síðar um að kenna nýliðum fræðin. En það var ekki aðeins að Þórður þekkti þessi fræði til hlítar, heldur kynnti hann sér kosti og galla tækja frá hin- um ýmsu framleiðendum og nýtti þessa þekkingu síðan í útboðum, þar sem hann gat raðað saman tækja- búnaði, sem sameinaði bæði besta verð og mestu gæði eða vinnuþæg- indi. Í mörgum tilfellum sparaði þetta ríkinu, og þá um leið skatt- borgurum, tugi milljóna króna á þá- virði. Þórður var mjög vel liðinn meðal samstafsfólks enda átti hann afar létt með að koma útskýringum og fræðsluefni til skila, þannig að allir skildu. Hann var áhugamaður um íþrótt- ir, jafnt líkamlegar sem andlegar, og með skemmtilegan keppnisanda, enda lengi vel í landsliði okkar í borðtennis. Skákmaður var hann góður og eins vel liðtækur í brids. Þá var hann ótrúlega ratvís á ókunnum slóðum og kom það sér stundum vel. Þórður hafði mjög góða nærveru því það virtist alltaf liggja vel á honum og ef til stóð að gera eitthvað skemmtilegt var hann samstundis reiðubúinn enda mikill gleðimaður að eðlisfari. Hann var prúðmenni í framkomu og bar gjarnan klæði á vopn ef upp komu deilur, hvort held- ur í starfi eða leik. Hann var traustur þeim sem hann valdi að eiga sem vini. Örlátur var hann að eðlisfari og greiðvikinn. Að leiðarlokum kveð ég vin minn með innilegu þakklæti fyrir samfylgdina og trausta vináttu í gegnum árin. Elsku Halla mín, við Kristín send- um þér og fjölskyldu þinni einlægar samúðarkveðjur. Kolbeinn Pétursson.                                       ✝ Faðir minn, tengdafaðir, afi og bróðir, ÞÓRÐUR SIGFÚS VIGFÚSSON, lést miðvikudaginn 18. febrúar. Bálför hefur farið fram. Þökkum auðsýnda samúð. Freyr Þórðarson, Vera Víðisdóttir, Helena og Júlía, Sigríður Vigfúsdóttir, Kristín Hrönn Vigfúsdóttir, Þuríður Vigfúsdóttir. ✝ Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, STURLAUGS JÓHANNESSONAR. Íris Einhildur Sturlaugsdóttir, Magnús Jónasson, Jóhannes Sturlaugsson, Eygerður Guðbrandsdóttir, Jakob Ingi Sturlaugsson, Ólöf Guðlaugsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær systir okkar, mágkona og frænka, JÓHANNA GUÐNÝ SIGURÐARDÓTTIR, Austurbrún 2, Reykjavík, lést á Landspítalanum Fossvogi sunnudaginn 1. mars. Jarðarförin verður auglýst síðar. Aðalsteinn Ó. Aðalsteinsson, Ásdís Elín Júlíusdóttir, Leifur Ársæll Aðalsteinsson, Margrét Valgerðardóttir, Sigurður Hjalti Sigurðarson, Guðrún Jónsdóttir, börn og barnabörn. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, LAUFEY TORFADÓTTIR, til heimilis Hjaltabakka 16, Reykjavík, verður jarðsungin frá Fríkirkjunni í Reykjavík föstudaginn 6. mars kl. 14.00. Guðrún G. Bergmann, Guðni Guðjónsson, Hrafnhildur Steingrímsdóttir, Hermann Guðjónsson, Guðný Ólafsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, KETILL JÓMUNDSSON, Þorgautsstöðum, Hvítársíðu, lést á Sjúkrahúsinu á Akranesi aðfaranótt sunnudagsins 1. mars. Jarðarförin verður auglýst síðar. Saga Helgadóttir, Anna Björg Ketilsdóttir, Ásgeir Ásgeirsson, Þuríður Ketilsdóttir, Árni Brynjar Bragason og barnabörnin. ✝ Okkar ástkæra ANNA KRAGH OLSEN CHRISTENSEN, áður til heimilis Álftamýri 54, er látin. Útförin fer fram frá heimabæ hennar, Hobro föstudaginn 6. mars. Sveinn Christensen, Unnur Birgisdóttir, Björn Christensen, Sigfríður Friðþjófsdóttir og börn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.