Morgunblaðið - 04.03.2009, Page 40

Morgunblaðið - 04.03.2009, Page 40
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. MARS 2009 ÞAÐ VILL nú vera svo að oft er mesta skemmtunin við að lesa gamlar bækur það hve þær birta úrelta og ömurlega heimsmynd; svo slæma að maður prís- ar sig sælan fyrir að vera ekki uppi á þeim tíma sem viðkomandi bók er skrif- uð. Þannig er því til að mynda farið með þessa barnabók sem er ein sú vinsælasta í breskri bókmenntasögu. Bókin, sem kom út í apríl fyrir rúmum 150 árum, er upp full af fordómum og heimsku, dæmigerð birtingarmynd ensks yfirstétt- arhroka nítjándu aldar. Bókin segir frá ungum pilti, Tom Brown, og uppeldi hans hans í Wessex-skíri. Faðir hans er héraðshöfðingi af efri miðstétt, vel ættaður og stöndugur, og virðulegur eftir því. Það er eftir því tekið í þorpinu að hann lætur sér það vel líka að Tom ungi leiki sér með lágstéttarpiltum, en þegar Tom er send- ur í skólann verða vinir hans eftir, þeirra framtíð verður önnur. Af hverju að lesa slíkar bækur, spyr ef- laust einhver, en því er til að svara að þær leyfa okkur að skyggnast inn í fortíðina, fá nasasjón af veröld sem var. Þannig eru í bók- inni stórmerkilegar lýsingar á daglegu lífi í enskum smábæ á fyrri hluta nítjándu aldar og því fólki sem þá byggði sveitir Englands. Sérstaklega er forvitnileg lýsing á sveita- skemmtun og hún gefur líka greinargóða lýsingu á vistinni í heimavistarskóla, en Hughes er þar að lýsa eigin reynslu því hann gekk í Rugby þaðan sem samnefnd íþrótt er ættuð. Víst er Tom Brown’s Schooldays upp full af predikunum og þvælukenndri kristinni þjóðernisrómantík en hún er líka skemmti- lega skrifuð á köflum og Tom Brown er geð- þekkur hnokki þrátt fyrir allt. Geðugur hnokki Tom Brown’s Schooldays eftir Thomas Hughes. Oxford Classics gefur út. 406 bls. ób. Árni Matthíasson BÆKUR» METSÖLULISTAR» 1. The Associate – John Grisham 2. Run For Your Life – James Pat- terson & Michael Ledwidge 3. Heart and Soul – Maeve Binchy 4. The Host – Stephenie Meyer 5. Fool – Christopher Moore 6. The Guernsey Literary & Po- tato Peel Pie Society – Mary Ann Shaffer & Annie Barrows 7. Dog on It – Spencer Quinn 8. The Story of Edgar Sawtelle – David Wroblewski 9. Among the Mad – Jacqueline Winspear 10. True Colors – Kristin Hannah New York Times 1. The White Tiger – Aravind Adiga 2. The Other Hand – Chris Cleave 3. The Blood Detective (rafbók) – Dan Waddell 4. The Secret Scripture – Sebastian Barry 5. The Reader – Bernhard Schlink 6. The 19th Wife – David Ebershoff 7. When Will There be Good News? – Kate Atkinson 8. The Assassini (rafbók) – Thomas Gifford 9. Cleanskin (rafbók) – Val McDer- mid 10. The First Apostle (rafbók) – James Becker Waterstone’s 1. The Girl Who Played With Fire – Stieg Larsson 2. Eclipse – Stephenie Meyer 3. Breaking Dawn – Stephenie Meyer 4. The Girl With the Dragon Tattoo – Stieg Larsson 5. Confessions of a Shopaholic – Sophie Kinsella 6. New Moon – Stephenie Meyer 7. Dead Man’s Footsteps – Peter James 8. Lady Killer – Lisa Scottoline 9. Careless in Red – Elizabeth George 10. The Broken Window – Jeffery Deaver Eymundsson Eftir Kolbrúnu Bergþórsdóttur kolbrun@mbl.is BRESKI rithöfundurinn Peter Ackroyd sendi nýlega frá sér ævi- sögu bandaríska skáldsins Edgar Allan Poe. Áður hefur Ackroyd sent frá sér stórgóðar ævisögur Ezra Pound, T.S. Eliot, Charles Dickens, Thomas More og Shake- speare og er þá einungis fátt eitt nefnt af bókum Ackroyds. Poe er bæði heillandi og dul- arfullt viðfangsefni. Síðustu dag- arnir í lífi hans hafa verið ráðgáta sem Ackroyd tekst ekki að leysa, enda sumt þar þess eðlis að aldrei verður nákvæmlega komist að því hvað gerðist. Dauðvona konur Bók Peter Ackroyd, Poe – A Life Cut Short, er ekki löng, ein- ungis 170 síður, en góður rithöf- undur getur sagt margt í stuttu máli og það tekst Ackroyd einkar vel. Hann dregur fram afarsterka mynd af Poe, innra óöryggi hans og ótta. Látnar eða dauðvona konur eru fyrirferðarmiklar í skáldskap Poe. Ackroyd segir að það eigi sér skýringar. Þær konur sem Poe unni dóu ungar. Móðir hans lést úr berklum þegar hann var tveggja ára. Stjúpmóðir hans, sem honum þótti innilega vænt um lést ung og eiginkona hans Virginia, sem hann kvæntist þegar hún var þrettán ára, lést tuttugu og fjög- urra ára. Poe komst nálægt því að sturlast við lát hennar. Alla sína ævi, sem varð ekki löng, hafði Poe unun af að ganga um kirkjugarða. Í huga hans voru dauðinn og fegurðin nær órjúf- anlega tengd og Ackroyd segir að það hafi ekki síst stafað af því hversu ungur hann var þegar hann missti móður sína og missir góðrar og fallegrar fósturmóður hafi enn ýtt undir þessar hug- myndir um dauðann og fegurðina. Reiði út í heiminn Áfengi var skelfilegur bölvaldur í lífi Poes. Því hefur verið haldið fram að hann hafi ekki þurft að drekka nema eitt glas til að kom- ast í áfengisvímu. Þessu hafnar Ackroyd en segir að vandi Poes hafi verið sá að þegar hann hóf drykkju gat hann ekki hætt. Af- leiðingarnar voru oft hrikalegar. Ackroyd fer ekki í greiningu á skáldskap Poes heldur einbeitir sér að því að lýsa ævi þessa sér- staka manns og leggur mikið upp úr því að útskýra persónuleika hans og hvað það var sem mótaði hann. Ackroyd segir að líf Poes hafi einkennst af röð mistaka, miklu mótlæti og vonbrigðum. Niðurstaðan er sú að Poe hafi ver- ið versti óvinur sjálfs sín. Hann var fullur af reiði út í heiminn og skrifaði alltaf eins og hjarta hans væri um það bil að bresta. Forvitnilegar bækur: Ný ævisaga Edgar Allan Poe Ógæfa snillingsins Edgar Allan Poe Líf hans einkenndist af mistökum hans sjálfs, miklu mótlæti og vonbrigðum. Hann var versti óvinur sjálfs sín. Sími 462 3500 Þú færð 5 % endurgreitt í Borgarbíó Þú færð 5 % endurgreitt í Háskólabíó ÓDÝRT Í BÍÓ Í REGNBO GANUM Þú færð 5 % e n d u r g r e i t t í Regnboganum Sími 551 9000 Frost/Nixon kl. 5:30 - 10 B.i. 12 ára Hotel for dogs kl. 5:30 LEYFÐ He’s just not that into you kl. 6 - 9 B.i. 12 ára The Pink Panther 2 kl. 6 - 8 LEYFÐ Valkyrie kl. 9 B.i. 12 ára Bride wars kl. 8 - 10 B.i. 12 ára The Wrestler kl. 8 - 10:15 B.i.14 ára Vicky Cristina Barcelona kl. 5:50 LEYFÐ The Reader kl. 8 - 10:20 B.i.14 ára Frá leikstjóra The Hours og Billy Elliott - S.V., MBL The International kl. 8 - 10:15 B.i.16 ára Ævintýri Despereaux kl. 6 LEYFÐ He’s just not that into you kl. 8 B.i.12 ára The Pink Panther 2 kl. 6 LEYFÐ Fanboys kl. 10:15 LEYFÐ - S.V., MBL - E.E., DV5 Bráðfyndin rómantísk gamanmynd sem sviptir hulunni af samskiptum kynjanna 750k r. SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI SÝND Í SMÁRABÍÓI OG BORGARBÍÓI - DÓRI DNA, DV - E.E., DV - S.V. Mbl. - V.J.V. TOPP5.IS 750k r. 750k r. Bráðfyndin rómantísk gamanmynd sem sviptir hulunni af samskiptum kynjanna - D.Ö., KVIKMYNDIR.COM - DÓRI DNA, DV The International kl. 5:30 - 9 B.i.16 ára Ævintýri Dexperaux ísl. tal kl. 6 íslenskt tal LEYFÐ Milk kl. 5:20 - 8 - 10:40 B.i.12 ára 750kr. 750k r. BRÁÐSKEMMTILEG MYND FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA ÞEIR RÁÐA YFIR FJÁRHAGI ÞÍNUM ÞEIR STJÓRNA LÍFI ÞÍNU OG ALLIR BORGA EN HVAÐ EF ÞEIR NOTA PENINGANA ÞÍNA TIL AÐ KAUPA MORÐ? HÁSKÓLABÍÓI OG BORGARBÍÓI - Tommi, kvikmyndir.is - S.V., MBL SÝND MEÐ ÍSLE NSKU TALI SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI SÝND Í SMÁRABÍÓI, HÁSKÓLABÍÓI OG BORGARBÍÓI SÝND Í SMÁRABÍÓI, SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI 750k r. 750 KR. - ALLAR MYNDIR - ALLAR SÝNINGAR - ALLA DAGA MAGNAÐUR SPENNUTRYLLLIR MEÐ CLIVE OWEN OG NAOMI WATTS Í FANTAFORMI! SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI - Ó.H.T.,RÁS 2 - S.S., MBL - Ó.H.T., Rás 2 2 - Tommi, kvikmyndir.is - ÓHT, Rás 2 Þú færð 5% endurgreitt í Borgarbíói, Smárabíói og Regnboganum og Háskólabíói ef þú - S.V., MBL - S.V., MBL750k r.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.