Morgunblaðið - 07.03.2009, Side 1

Morgunblaðið - 07.03.2009, Side 1
Á SUÐVESTURHORNINU hefur verið einmuna blíða sl. daga og um leið og sólin lætur sjá sig flykkist landinn í laugarnar. Þessi gestur Árbæj- arlaugar nýtti sér vatnsfoss til að lemja á, kannski aumum, hálsvöðvunum. Vöðvarnir lamdir Morgunblaðið/Heiddi L A U G A R D A G U R 7. M A R S 2 0 0 9 STOFNAÐ 1913 64. tölublað 97. árgangur Landsprent ehf. MBL.IS Morgunblaðið hvar sem er hvenær sem er 95 ára mbl.is «DAGLEGTLÍF MÖMMUR ÞURFA LÍKA AÐ GERA EITTHVAÐ SKAPANDI «HELGI HRAFN Hefur vart fengist við annað en tónlist LESBÓK Kristján B. Jónasson segir skrif Michael Lewis um Ísland í Vanity Fair eina verstu landkynningu sög- unnar. Þjóðin sé höfð að háði og spotti og landinu réttilega lýst sem „uppblásnu montbjánabatteríi“. Tortímingarmáttur íslenskrar dellu „Hversu mörg meistaraverk hafa ekki orðið til fyrir tilstilli kraminna hjartna“? spyr Arnar Eggert Thor- oddsen í Halló Hálönd! þar sem fjallað er um Scott Hutchison og sveit hans Frightened Rabbit. Surgandi melódískt nýbylgjurokk Sumir segja að Bill Holm hafi verið einhver íslenskasti höfundur síð- ustu áratuga. Í grein Einars Fals Ingólfssonar kemur fram að skáld- inu þótti of mikið rafmagn í Banda- ríkjunum en ekki nógu mikil birta. Íslenskt gras – sælasta hvílan Eftir Þorbjörn Þórðarson thorbjorn@mbl.is KAUPÞING lánaði stærstu eig- endum sínum og tengdum aðilum samtals 478 milljarða króna, sam- kvæmt lánabók Kaupþings, en Morgunblaðið hefur hluta hennar undir höndum. Um er að ræða lán til Ágústs og Lýðs Guðmundssona, Ólafs Ólafssonar, Roberts Tchengu- iz og félaga í þeirra eigu. Lánin voru ýmist veitt þeim sjálf- um, íslenskum fyrirtækjum sem þeir áttu eða eignarhaldsfélögum í Hol- landi og á Tortola-eyju. Um er að ræða stöðu útlána 30. júní 2008, þremur mánuðum fyrir hrun bank- ans. Lánin eru gengisbundin og flest veitt í gegnum Lúxemborg og Lond- on. Séu lánin umreiknuð miðað við stöðu krónunnar í dag eru þetta lán- veitingar upp á rúmlega 573 millj- arða króna. Upphæð lánanna fékkst staðfest hjá Kaupþingi í gær. Lánveitingar til Ágústs og Lýðs í gegnum Exista-samstæðuna nema 169,1 milljarði króna. Þar af er 108,4 milljarða lán til Exista hf. og 30,8 milljarða lán til eignarhaldsfélags þeirra bræðra, Bakkabraedur Hold- ing BV. Exista var stærsti hluthafi Kaupþings þegar bankinn féll. Útistandandi lán til Roberts Tchenguiz, sem situr í stjórn Exista, nemur samtals 230,2 milljörðum króna, samkvæmt lánabókinni, en 278 milljörðum króna sé það um- reiknað miðað við gengi. Af lánveit- ingum til þrettán félaga í eigu Tchenguiz eru sjö þeirra skráð á Tortola-eyju. Lánveitingar til Ólafs Ólafssonar og tengdra félaga nema 78,9 milljörðum króna. 500 milljarðar til eigenda  Kaupþing lánaði stærstu eigendum sínum og tengdum aðilum 478 milljarða samkvæmt lánabók  Lánin voru ýmist veitt til íslenskra félaga í þeirra eigu eða félaga í Hollandi og á Tortola-eyju  Skuldir Roberts Tchenguiz námu 230 milljörðum í júní, 278 milljörðum á gengi dagsins í dag Kröfur vegna lánanna eru ýmist hjá skilanefnd Kaupþings eða hjá Nýja Kaupþingi. Algjörlega óvíst er hversu mikið útlánatap verður vegna lánveitinganna. Skilanefnd Kaupþings hefur þegar höfðað mál gegn félagi í eigu Tchenguiz vegna vanskila. Ágúst Guðmundsson Lýður Guðmundsson Ólafur Ólafsson Robert Tchenguiz 230 milljarða króna lán til Roberts Tchenguiz 169 milljarða króna lán til Bakka- bræðra og tengdra félaga 79 milljarða króna lán til Ólafs Ólafssonar og tengdra félaga  Hundraða milljarða lán | 21 Mín Borg ferðablað Icelandair fylgir með Fréttablaðinu í dag. GEYMIÐ BLAÐIÐ HANN fæddist í Karíbahafinu, sonur dansks landstjóra og konu frá Ghana. Var fluttur eins og hver önnur „nýlenduvara“ til Dan- merkur, tólf ára að aldri, síðan hundeltur og lögsóttur af danskri ekkju föður síns, tók þátt í sjóorr- ustu Dana við Englendinga, en hvarf að lokum sjónum manna í Kaupmannahöfn eftir sögufræg réttarhöld um eignarhald á fólki. Réttarhöld þar sem einungis þeir þrælar sem höfðu verið skírð- ir gátu borið vitni, því að öðrum kosti voru þeir ekki taldir persón- ur samkvæmt dönskum lögum. Þannig er í stuttu máli forsaga þess að Hans Jónatan, eins og hann nefndi sig, settist að á Djúpavogi og gerðist versl- unarmaður. Á Austfjörðum hitti hann íslenska stúlku, kvæntist og gerðist bóndi. Gísli Pálsson mannfræðingur rekur sögu Hans Jónatans í Les- bókinni í dag og segir lífshlaup hans enduróma umræður nú- tímans um fjölmenningu, kyn- þáttahyggju, nýlendustefnu og þrælahald. | Lesbók Flúði til Íslands undan þrældómi  Var fluttur eins og „nýlenduvara“  Fjölmenning fyrri tíma fyrir austan

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.