Morgunblaðið - 07.03.2009, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 07.03.2009, Blaðsíða 29
Klárir í sjósundið „Engin óþarfa fagnaðarlæti“ gæti falist í vinki þessa sjósundkappa sem var á leið í Nauthólsvíkina nýlega. Þeim fjölgar óðum sem stunda sjósund við strendur landsins. RAX 29 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. MARS 2009 Í VERKEFNASKRÁ rík- isstjórnarinnar eru gefin fyrirheit um margvísleg framfaraskref í lýðræðismálum. Slíkar umbætur eru afar mikilvægar, ekki síst í ljósi þeirrar kröftugu umræðu um framtíðarskipan samfélagsins sem við höfum orðið vitni að und- anfarnar vikur og mánuði. Þennan kraft verðum við að virkja og skapa farveg fyrir hann í stjórn- kerfi okkar til framtíðar. Víðtækt samráð frá fyrsta degi Strax á fyrstu dögum ríkisstjórnarinnar hófst markviss vinna á vettvangi forsætisráðu- neytisins við að undirbúa boðaðar lýðræð- isumbætur. Ráðgjafarhópur undir forystu Bjargar Thorarensen prófessors, hófst handa við undirbúning stjórnarskrárbreytinga, m.a. um stjórnlagaþing. Annar hópur undir forystu Þorkels Helgasonar stærðfræðings, vann að út- færslu reglna um persónukjör. Á grundvelli samráðs, m.a. við alla stjórnmálaflokka sem fulltrúa eiga á Alþingi, hafa lagafrumvörp byggð á þessari vinnu verið lögð fram á Al- þingi. Bæði frumvörpin eru borin fram af for- ystumönnum allra flokka, nema Sjálfstæð- isflokksins. Samkvæmt verkefnaskrá ríkisstjórnarinnar skyldi stefnt að eftirtöldum breytingum á stjórnarskránni. Í fyrsta lagi skyldi sett í stjórnarskrá ákvæði um auðlindir í þjóðareign, í öðru lagi skyldi leggja fram ákvæði um þjóð- aratkvæðagreiðslur, í þriðja lagi skyldi breytt aðferðinni við að breyta stjórnarskrá og loks í fjórða lagi skyldi hefja undirbúning lagasetn- ingar um stjórnlagaþing. Ráðgjafarhópnum var falið að móta tillögur um þetta og varðandi fyrstu atriðin þrjú skyldi einkum tekið mið af því víðtæka samráði sem fór fram á vettvangi stjórnarskrárnefndar árin 2005-2007. Öll þessi atriði er að finna í stjórnarskrárfrumvarpi því sem lagt hefur verið fram á Alþingi. Aukið lýðræði í stjórnarskrá Í fyrirliggjandi stjórnarskrárfrumvarpi er gert ráð fyrir að sett verði í stjórnarskrá ákvæði um náttúruauðlindir og umhverfismál. Því er slegið föstu að ríkið megi ekki afsala með varanlegum hætti náttúruauðlindum í þjóðareign og fjallað er um auðlindir í víðu samhengi sem þátt í umhverfismálum. Mik- ilvægt er að árétta að stjórnarskrárákvæðið um náttúruauðlindir í þjóðareign mun ekki skerða réttindi þeirra sem hafa veiðiheimildir í kvótakerfinu eða svipta þá kvótanum. Þau rétt- indi munu eftir sem áður njóta verndar sem at- vinnuréttindi þeirra sem stunda útgerð, eða með öðrum orðum sem óbein eignarréttindi. Með hinu nýja stjórnarskrárákvæði verður hins vegar staðfest að útgerðarmenn eða aðrir sem njóta slíkra heimilda munu aldrei öðlast beinan og varanlegan eignarrétt á fiskveiðiauðlindinni, enda girðir ákvæðið fyrir varanlegt afsal þjóðareignar. Rétthafar veiði- heimilda verða að sæta því að al- mennar og hlutlægar takmarkanir á þeim afnotarétti af auðlindinni sem þeir njóta nú verði lögbundn- ar, þó eftir atvikum í þrepum. Stjórnarskrárákvæðið staðfestir að löggjafinn getur, í krafti þess að hann fer með forsjá auðlindanna í nafni þjóðarinnar, breytt skipulagi fiskveiðistjórnunarkerfisins. Reyndar ber löggjafanum skylda til að gera svo, telji hann aðrar leiðir betri til að tryggja þjóðinni og komandi kynslóðum hagsæld til langrar framtíðar. Breytingar á stjórnarskrá auðveldaðar Einnig er gert ráð fyrir nýju ákvæði sem auðveldi breytingar á stjórnarskránni og tryggi áhrif almennings á þær. Kjarni þessa ákvæðis er sá að samþykkja þurfi breytingar á stjórnarskránni sérstaklega í þjóðaratkvæða- greiðslu, í stað þess að þing sé rofið í kjölfar þess að stjórnarskrárbreyting sé samþykkt, al- mennar þingkosningar fari fram og frumvarpið samþykkt að nýju án breytinga. Með þessu gefst þjóðinni kostur á að taka beina afstöðu til stjórnarskrárbreytinga, sem er sjálfsögð og eðlileg skipan í lýðræðisþjóðfélagi. Þá er í frumvarpinu stigið enn eitt merkt spor í lýðræðisátt, en gert er ráð fyrir ákvæði í stjórnarskrá þess efnis að skylt sé að fram fari þjóðaratkvæðagreiðsla um tiltekið málefni ef 15 af hundraði kjósenda á kjörskrá krefjast þess. Heimild til slíks verður þannig bundin í stjórnarskránni í almennu ákvæði en stefnt er að nánari útfærslu í lögum svo sem í hvaða búning eigi að setja slíka kröfu, hvernig standa eigi að því að safna undirskriftum kjósenda, hvernig mál skuli borin upp og um framkvæmd þjóðaratkvæðagreiðslunnar. Stjórnlagaþing verður að veruleika Loks er gert ráð fyrir því að ákvæði um stjórnlagaþing bætist í stjórnarskrána. Slíkt ákvæði verður stjórnskipuleg heimild eða grundvöllur fyrir því að efna til stjórnlaga- þings, en nánari útfærsla á störfum og skipu- lagi þingsins verður sett með almennum lög- um. Samkvæmt fyrirliggjandi drögum að frumvarpi um stjórnlagaþing sem eru fylgi- skjal með stjórnarskrárfrumvarpinu er stefnt að því að kosningar til stjórnlagaþings fari fram í haust, þingfulltrúar verði 41 og kosnir persónukjöri. Þeir mega ekki vera þingmenn eða varaþingmenn og skulu bjóða sig fram í eigin nafni. Hugmyndin um stjórnlagaþing hér á landi er ekki ný af nálinni en árið 1995 lagði ég m.a. fram hliðstætt frumvarp þar sem gert var ráð fyrir 41 þjóðkjörnum fulltrúa og yrði þinginu falið að semja nýja stjórnarskrá. Út- færslan sem nú er lögð fram af fulltrúum fjög- urra flokka er í meginatriðum áþekk þeirri sem fram kom í því frumvarpi og einnig frum- varpi Framsóknarflokksins sem nú liggur fyrir Alþingi. Ég vil leggja áherslu á að gert er ráð fyrir nánu samráði milli stjórnlagaþingsins og Alþingis um gerð frumvarps til nýrrar stjórn- arskrár ekki síst til að tryggja eins og framast er kostur vandaða meðferð málsins. Þegar og ef stjórnlagaþing hefur samþykkt nýja stjórn- arskrá skal hún borin upp í þjóðaratkvæða- greiðslu, þar sem a.m.k. 25% kjósenda á kjör- skrá verða að samþykkja hana svo hún taki gildi. Persónukjör strax í næstu kosningum Í vikunni var einnig mælt fyrir á Alþingi frumvarpi til laga um breytingu á kosn- ingalögum sem ætlað er að innleiða persónu- kjör. Frumvarpið gerir ráð fyrir því að einstök framboð geti valið hvort þau stilli upp röðuðum lista líkt og tíðkast hefur eða bjóði fram ór- aðaðan lista. Velji framboðin óraðaða lista yrði endanleg röð frambjóðenda í höndum kjósenda listanna sem myndu í kjörklefanum raða þeim upp, hver með sínu nefi. Verði frumvarp þetta að lögum verður persónukjör í komandi kosn- ingum. Í ljósi þess að fulltrúar allra þingflokka á Alþingi, nema Sjálfstæðisflokksins, bera mál- ið fram er full ástæða til að vonast til þess að það nái fram að ganga. Hlýtt á raddir fólksins Þau nýmæli sem ég hef hér rakið byggjast á þeirri grundvallarhugsun að allar stofnanir í lýðræðisþjóðfélagi eigi að endurspegla raddir fólksins, raddir almennings. Okkur, sem erum lýðræðislega kjörnir fulltrúar fólksins, ber að hlýða á sjálfsagðar kröfur fólksins í landinu er varða umbætur á kerfi sem á að þjóna sam- félaginu öllu. Það þarf kjark og þor til þess að ráðast í breytingar af þessu tagi en yfir þeim kjarki og því þori býr núverandi ríkisstjórn. Ég treysti svo almenningi fullkomlega til þess að nýta þau tæki sem felast í þjóðaratkvæða- greiðslu og stjórnlagaþingi og ég tel að þau muni styrkja samfélag okkar til frambúðar. Ég er fullviss um að með fyrrnefndum umbótum í lýðræðisátt munum við eignast betra og öfl- ugra samfélag sem byggist á jafnræði í reynd. Eftir Jóhönnu Sigurðardóttur » Það þarf kjark og þor til þess að ráðast í breytingar af þessu tagi en yfir þeim kjarki og því þori býr núverandi ríkisstjórn. Jóhanna Sigurðardóttir Höfundur er forsætisráðherra. Lýðræðisumbætur – vald til fólksins Katrín Snæhólm Baldursdóttir | 6. mars 6 krákur fyrir utan Mela- búðina boða kuldakast! Þær voru 6 saman og kol- svartar, krunkandi í hóp og kjagandi fyrir utan Melabúðina í morgun. Við sem þarna vorum flýttum okkur heim og hækk- uðum á ofnunum og tínd- um til hlýjar flíkur og tékkuðum á kakób- irgðunum. Við vitum hvað þetta þýðir. Meira: katrinsnaeholm.blog.is Inga Jessen | 6. mars 2009 Súper form eftir kreppu Það mættu sumir taka Ísafjarðarbæ til fyr- irmyndar. Þetta er frá- bært framtak því það er mjög mikilvægt að fara á lappir þegar maður er at- vinnulaus og svitna smá – ég tala ekki um að hitta aðra í ræktinni. Ég heyrði einnig í útvarpinu að það er frítt í sund fyrir alla á Akureyri og á Suð- urnesjum. Hvar er Reykjavík? Þegar allt kemur til alls verður Land- inn örugglega í súperformi eftir þessa kreppu – fólk borðar minna og fer oftar í ræktina. Það hlýtur bara að vera. Meira: atvinnulaus.blog.is Friðrik Þór Guðmundsson | 6. mars „Fótalausi Pólverjinn“ kominn með tennur! Það er mér mikil ánægja að geta greint frá því að „fótalausi Pólverjinn“, með nýrnabilunina, heyrnarskerðinguna og félagslegu einangrunina, er nú kominn með tenn- ur upp í sig. Er þá einu vandamálinu færra hjá Irenusz A. Gluchowski, þökk sé góðu fólki. Ég sagði á blogginu mínu frá grimmum örlögum Irenusz, sem leitt höfðu til þess að hann missti báða fætur fyrir neðan hné, nýru hans biluðu og heyrnin hvarf að stórum hluta. Það gerðist vegna veikinda sem hann sýkt- ist af við vinnu hér á landi – en vegna þess að viðkomandi fyrirtæki hafði hvorki séð honum fyrir atvinnuleyfi né tryggingum var hann réttindalaus og upp á náð og miskunn okkar skatt- greiðendanna kominn … Tann- smíðastofa, sem vill ekki eigna sér heiður með nafngreiningu, tók málið til sín og hefur nú smíðað og komið fyrir tanngarði í Irenusz – frítt. Takk frá mér og Irenuszi, sem biður auk þess kær- lega að heilsa öllum – brosandi út að eyrum með nýju tennurnar. Meira: lillo.blog.is BLOG.IS

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.