Morgunblaðið - 07.03.2009, Blaðsíða 2
2 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. MARS 2009
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Egill Ólafsson, egol@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björgvin Guðmundsson, fréttastjóri, bjorgvin@mbl.is
Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþrótt-
ir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is Sunnudagur Ragnhildur Sverrisdóttir, ritstjórnarfulltrúi, rsv@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
SAMKEPPNISEFTIRLITIÐ hef-
ur komist að þeirri niðurstöðu að
Bændasamtök Íslands hafi brotið
gegn samkeppnislögum með aðgerð-
um sem miðuðu að því að hækka
verð á búvörum. Samtökunum er
gert að greiða tíu milljóna króna
stjórnvaldssekt og lagt er til að þau
komi í veg fyrir að samskonar brot
verði endurtekin.
Brotin snúa að búvörum sem ekki
lúta opinberri verðlagningu sam-
kvæmt búvörulögum, þ.e. kjúkling-
um, eggjum, grænmeti og svínakjöti.
Upphaf málsins má rekja til
fréttar Morgunblaðsins 7. mars 2008
undir fyrirsögninni „Sátt um hækk-
anir nauðsyn“. Í fréttinni var fjallað
um Búnaðarþing 2008, en á því kom
fram að verðhækkun hjá búvöru-
framleiðendum væri óumflýjanleg. Í
kjölfarið hóf Samkeppniseftirlitið
rannsókn.
Krafa um samkeppni „fráleit“
Í málinu héldu samtökin því fram
að aðgerðir þeirra falli ekki undir
ákvæði samkeppnislaga og fráleitt
að gera þá kröfu að samkeppni ríki
milli búvöruframleiðenda.
Samkeppniseftirlitið benti á að bú-
vörur séu annars vegar verðlagðar af
opinberri nefnd en hins vegar utan
verðlagningakerfis búvörulaga, og
þá eigi samkeppnislög að öllu leyti
við. „Í þessum tilvikum er sam-
keppni ætlað að vernda hagsmuni
neytenda og stuðla að sanngjörnu
verði. Er gert ráð fyrir þessu bæði í
búvörulögum og samkeppnislögum.“
BÍ gert að greiða sekt
vegna samkeppnisbrota
„Bændasamtökin hafna því að
almennar umræður um stöðu
og framtíðarhorfur íslenskra
bænda geti valdið neytendum
tjóni, eins og fram er haldið í úr-
skurði Samkeppniseftirlitsins,“
segir í yfirlýsingu frá BÍ. Sam-
tökin telja sig því ekki hafa
brotið samkeppnislög.
Þá segir að ákvörðunin sé
byggð á umræðum á og í kjölfar
Búnaðarþingsins en þar bentu
bændur á þær gríðarlegu verð-
hækkanir sem þá voru orðnar á
heimsmarkaði á aðföngum.
Ekki brot á lögum
Spilakvöld Varðar
Nánari upplýsingar eru á www.xd.is
Hið árlega spilakvöld Varðar verður
haldið í Valhöll sunnudaginn 8. mars kl.
20.00. Glæsilegir spilavinningar að
vanda. Gestur kvöldsins Marta
Guðjónsdóttir formaður Varðar –
Fulltrúaráðsins. Aðgangseyrir er 1000 kr.
Allir velkomnir!
Sjálfstæðisflokkurinn
Vörður – Fulltrúaráð sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík
Eftir Andra Karl
andri@mbl.is
TÓLF boðsgestum vélhjólaklúbbsins Fáfnis var
meinuð landganga við komuna til landsins í gær.
Í Leifsstöð beið fimmtán manna móttökunefnd
klúbbsins. Nefndin fylgdi eiginkonu eins norsks
Vítisengils og vinkonum hennar til höfuðborg-
arinnar. Sá kvittur komst á kreik í gær að all-
nokkrir boðsgestir hefðu sloppið í gegnum nál-
arauga landamæravarða. Jón Trausti
Lúthersson, Fáfnismaður, vildi hvorki játa því
né neita í samtali við blaðamann.
Jón Trausti sagðist reyndar glaður vilja ræða
við Morgunblaðið um málið, veisluna og boðs-
gesti. Hendur hans væru hins vegar bundnar
enda fjölmiðlabann á Fáfni. Hann vildi ekki gefa
upp hver gæfi út slíkt fjölmiðlabann.
Veisluhöld Fáfnismanna eiga að fara fram í
dag og ekki er annað vitað en að þau séu á áætl-
un. Víst er að lögregla verður með mikið eftirlit
við nýjar höfuðstöðvar Fáfnis í Hafnarfirði. Jón
Trausti sagðist aðspurður ekki velta sér upp úr
væntanlegu eftirliti, enda væru þeir ekki að gera
neitt ólöglegt.
Í tilkynningu frá Ríkislögreglustjóra kemur
fram að landamæraeftirlitinu verði haldið áfram
á morgun. Ekki náðist í Sigríði Björk Guðjóns-
dóttur, lögreglustjóra á Suðurnesjum, og fulltrúi
Ríkislögreglustjóra vísaði á vefsvæði lögregl-
unnar þegar leitað var eftir upplýsingum.
Velta sér ekki upp úr eftirlitinu
Fjórtán mönnum tengdum vélhjólasamtökunum Vítisenglum hefur verið meinuð landganga
Veisluhöld vélhjólaklúbbsins Fáfnis eru á áætlun og víst er að lögregla mun fylgjast grannt með
Í HNOTSKURN
»Tveimur norrænum Vít-isenglum var vísað frá
landi á miðvikudag. Tólf til
viðbótar var meinuð land-
ganga í gær.
»Sex af tólf höfðu þegaryfirgefið landið snemma
í gærkvöldi.
»VélhjólaklúbburinnFáfnir er svokallaður
stuðningsklúbbur Vítis-
engla.
»Vítisenglar falla undirþá skilgreiningu sem í
gildi er innan Evrópusam-
bandsins um skipulagða
glæpastarfsemi.
Ljósmynd/Víkurfréttir
Móttökunefnd Félagsmenn í Fáfni fylktu liði í Leifsstöð til að taka á móti boðsgestum sínum.
HÚSIÐ að Framnesi við Reyðarfjörð brann í
gær, þegar slökkvilið Fjarðabyggðar æfði reyk-
köfun með níu útskriftarnemum í slökkviliðs-
störfum. Kveikt var í húsinu fimm sinnum og
slökkt aftur, en því svo leyft að brenna til kaldra
kola undir lokin. Sveitarfélagið keypti húsið fyr-
ir nokkru síðan en beðið hefur verið með nið-
urrifið fram að „lokaverkefni“ útskriftarnem-
anna, sem nú ættu að vera færir í flestan reyk.
Morgunblaðið/Helgi Garðarsson
Nemarnir eru nú færir í flestan reyk
UMFERÐ á þjóðvegum landsins var
heldur meiri í janúar og febrúar
2009 en hún var í sömu mánuðum
árið 2008. Mjög dró úr umferð
seinni hluta árs í fyrra.
Á landinu jókst umferðin um
3,5% í febrúar miðað við sama mán-
uð í fyrra. Vegagerðin miðar við 16
talningastaði á hringveginum og
því er ekki um að ræða umferð á
höfuðborgarsvæðinu.
Umferð á Suðurlandi jókst um
9,2%, á Vesturlandi um 2,6% og
1,3% í nágrenni við Reykjavík. 9,1%
samdráttur umferðar var á Austur-
landi og 2% samdráttur á Norður-
landi. sisi@mbl.is
Umferð eykst
á þjóðvegum
STEINGRÍMUR J. Sigfússon fjár-
málaráðherra hefur lækkað dagpen-
inga um 10% og afnumið sérréttindi
ráðherra, alþingismanna og annarra
háttsettra embættismanna hvað
varðar dagpeninga.
Samkvæmt reglugerðinni fá ráð-
herrar einungis þriðjung af dagpen-
ingum og maki fær ekkert þegar um
er að ræða opinberar heimsóknir.
Þá verða settar hömlur á hversu
dýra gistingu menn geta valið sér.
Dagpeningar
lækkaðir