Morgunblaðið - 07.03.2009, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 07.03.2009, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. MARS 2009 útlendingar skildu ekkert í þessum sögum fyrr en maður tengdi þær við landafræði. Þetta eru sögur um fólk sem berst við að skapa sér líf í nýju landi og það hvernig það kom til þessa nýja lands er nauðsynlegur hluti af sögunni. Á 19. öld töluðu menn eins og Collingwood um að fara til Íslands, eyju Íslendingasagnanna og Geysis. En á 20. öld þegar við fórum að markaðssetja landið seldum við ferðamönnum bara Geysi en ekki Íslendingasögurnar því þær voru í okkar huga svo heilög vé að ein- ungis fræðimenn máttu komu ná- lægt þeim. Það sem við Sirrý viljum gera með Landnámssetrinu er að miðla fornsagnaarfinum til þeirra sem hafa ekki kynnst honum. Þú spurðir um hugmyndina. Það er fyrirferðarmikil staða að vera leikstjóri í leikhúsi eins og ég hef verið mestan hluta míns lífs. Mönn- um er ekki endalaust sætt á slíkum stóli. Ég vissi að það kæmi að því að fólk vildi losna við mig og það er miklu betra að fara áður en fólk vill losna við mann. Ég hugsaði með mér: Er ekki einhvers staðar nýtt og spennandi verkefni þar sem ég get notað þekkingu mína og kunn- áttu úr leikhúsinu? Þá fæddist hug- myndin um Landnámssetrið og ég segi stundum að hún hafi orðið til af öfund. Sumarið 2003 skoðuðum við Sirrý Vesturfarasetrið á Hofsósi og Síld- arminjasafnið á Siglufirði. Þá kom til okkar hugsunin um að það væri gaman að vinna að álíka verkefni, eldast með því og verða virðulegur karl og kerling í menningarlegri stofnun sem við hefðum byggt upp í héraði. Staður eins og Vesturfarasetrið stækkar sjálfsímynd héraðsins og Síldarminjasafnið er kannski besta dæmið um þessi áhrif. Fólk skamm- aðist sín fyrir drulluna og draslið frá síldarárunum en allt í einu fór það að líta á einmitt þetta sem hluta af menningararfi og sagði: Höldum utan um þetta, gerum þetta að ein- hverju. Síldarminjasafnið er eina safnið á Íslandi sem hefur fengið Evrópsku safnaverðlaunin. Al- gjörlega stórkostlegur staður. Við hjónin erum að reyna að skapa eitt- hvað í líkingu við þetta með Land- námssetrinu. Svo er líka afskaplega skemmti- legt að vera beðinn um að koma til baka í leikhúsið og leikstýra eins og einni sýningu en vera ekki háður leiklistinni upp á líf og dauða eins og þegar maður er sívinnandi at- vinnumaður. Auðvitað er ég at- vinnumaður en ég er orðinn virðu- legi gamli karlinn sem kemur aftur.“ Óttalegur krati Þú virkar mjög glaðsinna maður, ertu bjartsýnisamaður? „Ég lifi nokkuð góðu lífi. Ég er bjartsýnn fyrir hönd Íslands. Mér finnst Jónas Haraldz hafa lýst bankahruninu best í Silfri Egils þegar hann sagði að á árunum þeg- ar síldin hvarf og efnahagshrun varð hefðu undirstöður hússins gef- ið sig og húsið því hrunið. Í banka- hruninu núna, sagði hann, hefðu einungis allir gluggarnir brotnað og það væri helvíti kalt. En húsið stæði enn á grunninum og nú þyrfti að taka til hendinni og setja í það nýjar rúður. Mér fannst þetta mjög góð líking hjá hinum aldna hagfræð- ingi.“ Ertu pólitískur? „Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á pólitík. Ég er af ’68 kynslóðinni og gekk í Æskulýðsfylkinguna, fór í framboð fyrir Alþýðubandalagið en studdi Davíð Oddsson í borg- arstjórnarkosningum vegna þess að hann var svo einarður bar- áttumaður fyrir byggingu Borg- arleikhússins. Eins og Halldór Lax- ness sagði: Sá sem er ekki róttækur ungur og hallast svo til hægri þegar hann fer að eldast er fífl. Mér finnst að framtak í atvinnu- rekstri sé miklu farsælla í höndum einstaklinga en ríkisins en ég tel líka að samhjálp og samábyrgð sé grundvallaratriði í samfélaginu. Ætli ég sé ekki bara óttalegur krati.“ Hvernig leikstjóri ertu? „Milos Forman var eitt sinn spurður hvað góður leikstjóri þyrfti að hafa til að bera. Hann sagði: „Góður leikstjóri þarf aðallega að hafa kjark til að velja gott fólk með sér og þora að láta það hafa áhrif á vinnuna.“ Góður leikstjóri er með höfund sem er betri textasmiður en hann sjálfur, leikara sem er betri leikari en hann sjálfur, leikmyndateiknara sem er betri útlitshönnuður en hann sjálfur og svo framvegis. Á öllum póstum á maður að reyna að hafa einstakling sem bætir við mann sjálfan. Maður verður að hafa kjark til að hlusta á þetta fólk en hafa um leið heildarsýn og nasasjón af öllum þáttum verkefnisins sem verið er að vinna. Þetta er eins og að vera góð- ur ritstjóri eða góður verkstjóri yf- irleitt. Það þarf kjark til að hafa frekt og fyrirferðarmikið fólk í kringum sig. Ég held að ég hafi fengið með árunum æ meiri kjark til að vinna með frekjunum.“ Væri það skelfileg tilhugsun fyrir þig að fá aldrei aftur að leikstýra? Nei. Ég er kominn á þann aldur að ég er hættur að vænta þess að verða með árunum betri leikstjóri. Gagnrýnendur eru farnir að segja um leiksýningar mínar: „Þetta er kjartönsk sýning.“ Kannski get ég tekið því sem hrósi en á hinn bóginn finnst mér leiðinlegt ef farið er að líta á mig sem gefna stærð. Ég er orðinn mótaður maður en í nýsköpunarvinnunni í menningar- tengdri ferðaþjónustu finnst mér ég vera ungur maður sem er að hefja ferilinn. Draumur minn er að gera Ísland að menningarskemmtigarði, segi ég stundum, og þá á ég við að ég vil eiga þátt í því að ferðamenn hafi gaman af að upplifa landið. Mér finnst afar skemmtilegt að koma að leiklistinni en ég bíð ekki eftirvæntingarfullur eftir því hvað komi næst frá Kjartani Ragn- arssyni. Það eru aðrir og yngri leik- stjórar sem ég býst við að eigi eftir að koma mér meira á óvart en ég sjálfur.“ » Ég er kominn á þann aldur að ég er hætturað vænta þess að verða með árunum betri leikstjóri. Gagnrýnendur eru farnir að segja um leiksýningar mínar: „Þetta er kjartönsk sýning.“ Kannski get ég tekið því sem hrósi en á hinn bóg- inn finnst mér leiðinlegt ef farið er að líta á mig sem gefna stærð. » Það er fyrirferðarmikil staða að vera leik-stjóri í leikhúsi eins og ég hef verið mestan hluta míns lífs. Mönnum er ekki endalaust sætt á slíkum stóli. Ég vissi að það kæmi að því að fólk vildi losna við mig og það er miklu betra að fara áður en fólk vill losna við mann. Ég hugsaði með mér: Er ekki einhvers staðar nýtt og spennandi verkefni þar sem ég get notað þekkingu mína og kunnáttu úr leikhúsinu? Þá fæddist hugmyndin um Landnámssetrið og ég segi stundum að hún hafi orðið til af öfund.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.