Morgunblaðið - 07.03.2009, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 07.03.2009, Blaðsíða 36
✝ Ingibjörg Finn-bogadóttir fædd- ist í Reykjavík 29.8. 1947. Hún lést á Hjúkrunarheimili HSSA á Hornafirði þriðjudaginn 24. febrúar síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Finnbogi Ólafs- son, f. 31.3. 1920, d. 28.11. 1968, og Hulda Bjarnadóttir, f. 5.10. 1918. Systkini Ingi- bjargar eru Valdís, f. 1949, Ólafur, f. 1951, Sigríður Rósa, f. 1954, Stefán Bjarni, f. 1957, og Trausti, f. 1964. Hálfbróðir Ingibjargar, sammæðra, var Friðþjófur Trausti Valdimars- son, f. 1939, d. 1961. Ingibjörg giftist 2.12. 1967 Ing- ólfi Waage, f. 16.7. 1946. Foreldrar hans voru Jóhann Ólafsson Waage, f. 16.7. 1922, og Guðrún Herdís stundaði nám við Kvennaskólann á Blönduósi veturinn 1966-1967. Ingibjörg og Ingólfur hófu búskap sinn í Kópavogi en fluttu til Hornafjarðar árið 1972. Á Höfn starfaði Ingibjörg sem launa- fulltrúi á skrifstofum Hafn- arhrepps og sá um bókhald hjá söltunarstöðinni Stemmu. Árið 1987 fluttu þau hjónin á Hvolsvöll, en þar starfaði Ingibjörg hjá útibúi Landsbanka Íslands allt þar til hún lét af störfum vegna veik- inda sinna. Síðsumars árið 2007 fluttu þau á ný til Hornafjarðar. Á Hornafirði tók Ingibjörg virkan þátt í starfsemi Lionsklúbbsins Kolgrímu og var einn af stofn- endum hans. Hún hafði mikla ánægju af garðrækt svo sem sjá mátti í görðum við hús hennar, bæði á Hornafirði og Hvolsvelli, en árið 1991 hlaut hún umhverf- isverðlaun fyrir fallegasta garðinn á Hvolsvelli. Hún ræktaði m.a. rós- ir í garðhúsi sínu á Hornafirði og var með yfir 30 tegundir rósa þar. Þá hafði Ingibjörg unun af lestri góðra bóka. Útför Ingibjargar fer fram frá Hafnarkirkju í Hornafirði í dag og hefst athöfnin kl. 14. Guðmundsdóttir, f. 10.10. 1917, d. 4.4. 2003. Börn Ingibjarg- ar og Ingólfs eru 1) Herdís Waage, f. 20.6. 1967, maki Jón B. Karlsson, f. 4.11. 1963. Börn: Steinunn Ósk, f. 21.8. 1990, Ingólfur Waage, f. 14.11. 1994, og Ingi- björg María, f. 7.8. 2001. 2) Hulda Waage, f. 21.11. 1969, maki hennar Jón V. Níelsson, f. 12.8. 1968. Börn: Níels Brimar, f. 17.2. 1992, Arnar Ingi, f. 26.4. 2000, og Maríus Máni, f. 6.2. 2006. 3) Hrefna Waage, f. 30.11. 1973, maki hennar Benedikt H. Stefánsson, f. 22.4. 1973. Börn: Jóhannes Óli, f. 13.5. 1998 og Guðrún Inga, f. 11.6. 2007. Ingibjörg lauk gagnfræðaprófi frá Gagnfræðaskóla Kópavogs og Elsku mamma. Það er erfitt að hugsa til þess að eiga aldrei eftir að hitta þig og sjá aftur. Ég vissi að þessi stund kæmi en vonaði alltaf að hún væri ekki svona nærri, því aldrei er maður tilbúinn. Þú varst mikil hetja, mamma mín, og með réttu varstu gangandi krafta- verk, því þér tókst með mikilli gleði, elju og viljastyrk að gera tíma þinn sem lengstan hjá okkur, og þú fórst ekki fyrr en þú varst búin að ganga frá öllu í kringum þig og varst sátt, kærar þakkir fyrir það. En nú ertu farin og þín verður sárt saknað, en ég vona að þú hafir það gott og að þér líði vel þar sem þú ert. Minningarnar um þig og tíma okk- ar saman eru margar, en ég mun ávallt geyma þær í hjarta mínu og munu þær verða dregnar fram við rétt tækifæri. Þú tókst af mér loforð áður en þú fórstog ég mun reyna mitt besta við að hjálpa pabba í gegnum þennan sorgartíma. Elsku mamma, ég kveð þig með söknuði. Far þú í friði, friður guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. (V. Briem.) Þín dóttir, Herdís (Dísa.) Und húmblæju hljóðrar nætur vill hugurinn hvarfla svo víða, um það sem ég áður átti er allt var í lífinu blíða. Þú bernska með blauta sokka og brennheita móðurást, þær stundir koma aldrei aftur um það, er ekkert að fást. Sú minning um móður hönd með mjúka stroku á kinn, er dýrmætust allra ásta, Um eilífð um eilífð, ég finn. (Þóra Björk Benediktsdóttir.) Elsku mamma mín. Ég sakna þín svo mikið. Ég vil þakka þér fyrir allt sem þú gafst mér og kenndir mér. Ég sendi þér kæra kveðju nú komin er lífs þíns nótt, þig umvefji blessun og bænir ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði nú sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því, þú laus ert úr veikinda viðjum þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér, og það er svo margs að minnast svo margt sem um hug minn fer, þó þú sért horfinn úr heimi ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir.) Ég bið góðan Guð að vernda og styðja pabba í okkar miklu sorg. Takk fyrir allt, elsku mamma. Þín dóttir, Hulda. Elsku mamma mín. Það er svo margt sem ég hef um þig að segja, elsku mamma mín, að ég veit hreinlega ekki hvar á að byrja, eða hvað ég á að velja því nóg er af yndislegum minningum sem erfitt er að koma á blað. Mér er minnisstætt þegar við tvær fórum saman í helgarferð til Danmerkur að heimsækja Dísu systur og fjöl- skyldu, það var sko ævintýri út í eitt. Við lentum í óveðri og komumst ekki á leiðarenda fyrr en daginn áður en við áttum flug heim, þannig að stutt var heimsóknin sú. Þú áttir svo stóran part í uppvexti hans Óla míns. Óhætt er að segja að þú hafir eiginlega átt hann. Hann Óli gjörsamlega dýrkaði þig og þú hann. Þú varst meira með honum en ég því þú passaðir hann alltaf þegar ég var að vinna á kvöldin og um helgar. Margt í fari hans er gjörsamlega lítil „copy og paste“ útgáfa af þér og það er bara yndislegt. Þegar þú greind- ist með krabbameinið vildi ég ekki trúa því. Mér fannst eins og það væri verið að kippa fótunum undan mér. Það fyrsta sem mér datt í hug var að fresta brúðkaupinu mínu sem átti að vera mánuði síðar, en þú varst sko ekki á þeim nótunum. Þannig að þegar ég gifti mig varstu nýbúin í aðgerð og þú mættir galvösk í brúð- kaupið. Það sást sko ekki á þér að þú hefðir verið í stóraðgerð 2 vikum áð- ur. Að hafa þig í brúðkaupinu okkar var ein sú stærsta gjöf sem hægt var að gefa okkur. Þú ert einhver sú sterkasta manneskja sem ég veit um. Stuttu eftir að ég átti Guðrúnu Ingu fluttuð þið pabbi heim á Höfn. Ég missti svo mikið þá. Ég missti mömmu mína í burtu, sem og bestu vinkonu mína. Símasamband komst ekkert í hálfkvisti við að hafa ykkur hér. Minnisstæðasta minningin mín er þegar við fjölskyldan komum til ykkar til Spánar í fyrra. Það var yndislegur tími að vera hjá ykkur þarna úti á uppáhaldsstaðnum þín- um. Undir það síðasta fórum við oft- ar og oftar í heimsókn til ykkar á Höfn. Síðasta helgin sem við komum til ykkar var yndisleg. Þú varst svo sæl og glöð og svo gaman að vera hjá þér. Þegar við kvöddum þig á sunnu- deginum sagði ég við þig að við ætl- uðum að koma aftur næstu helgi. Hefði ég vitað það, elsku mamma mín, að þetta væri í síðasta sinn sem við töluðum saman hefði ég stoppað lengur. Ég vildi bara óska að ég hefði verið lengur hjá þér þennan dag. Þetta er nú bara brotabrot af þeim minningum sem ég á. Þið pabbi hafið kennt mér ýmislegt í gegnum árin og ég væri ekki sú persóna sem ég er í dag án ykkar. Fyrir það verð ég æv- inlega þakklát. Allt sem þú hefur gefið mér, alla þá ást, umhyggju og visku geymi ég og gef mínum börn- um. Ég mun aldrei komast með tærnar þar sem þú hafðir hælana en ef ég kemst nálægt því verð ég mjög stolt. Elsku mamma mín. Nú ertu farin og ég sakna þín svo mikið að orð fá því ekki lýst. Ég vil þakka þér fyrir allt sem þú gafst mér og kenndir mér. Ég bið Guð um að vernda og hjálpa pabba í gegnum í sorgina sem við göngum í gegnum. Þín dóttir, Hrefna. Þá ertu farin, Inga mín, örugglega hvíldinni feginn eftir langa og stranga baráttu. Það er sérstakt til þess að hugsa að nú séuð þið Hilmar minn þarna hinum megin og ekki lengur með okkur. En við áttum svo margar frábærar stundir saman, þið Ingó og við Hilmar. Margar frábær- ar skemmtiferðir jafnt innanlands og utan, alltaf svo gaman. Þær minn- ingar munu ylja mér um aldur og ævi. Inga mín, þú varst ekki bara frá- bær stórasystir heldur alltaf alla tíð mín besta og mesta vinkona. Ég gat alltaf til þín leitað og aldrei varstu ráðalaus. Mér þykir svo vænt um dagana sem við áttum saman austur á Höfn síðastliðið haust. Við nutum þess að vera saman og spjalla fram á rauða nótt, við gleymdum þessum erfiðu dögum og horfðum á þá björtu, rifjuðum upp gamla góða tíma og hlógum endalaust. Þessi minning mun vera með mér um ókomna tíð. Ég er svo stolt af því hvernig þú tókst á við veikindi þín, þú varst svo jákvæð og ákveðin i að berjast og gefast ekki upp. En þú áttir við ofur- efli að etja og nú er þessari baráttu lokið og þú kominn á annan og betri stað. Ég á eftir að sakna þín mikið og sá dagur mun ekki líða að ég hugsi ekki til þín. Ég sendi þér kæra kveðju nú komin er lífs þíns nótt, þig umvefji blessun og bænir ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði nú sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því, þú laus ert úr veikinda viðjum þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér, og það er svo margs að minnast svo margt sem um hug minn fer, þó þú sért horfinn úr heimi ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir.) Elsku mamma, Ingó, Herdís, Hulda, Hrefna og fjölskyldur. Megi góður Guð styrkja ykkur í sorg ykk- ar. Hvíl í friði. Þín systir, Valdís. Elsku systir, langri og erfiðri þriggja ára baráttu er nú lokið. Fyrir þrem árum voru þér gefnir u.þ.b. 7-9 mánuðir þar sem þú varst með krabbamein á lokastigi. En af æðruleysi og lífsgleði breyttir þú stöðunni allverulega. Þið Ingó funduð alltaf eitthvað til að hlakka til og þú leist einhvern veginn ekki á þig sem veika. Eitt sinn sagðir þú við mig „ég skil ekkert í þessum hita sem ég er með, það er ekkert að mér“. Þegar ég spurði hvað þú meintir með því að vera ekki veik, svarað- irðu „ég meina, ég er ekki með flensu“. Inga systir var elst af okkur al- systkinunum og fannst mér alltaf gott að leita ráða hjá henni um hvað eina. Frá því ég man eftir mér varst þú ein af þeim sem þótti svo gaman að gefa og hef ég notið góðs af því alla tíð. Börnin mín voru alltaf svo spennt að opna pakkana frá Ingu frænku því voru jafn fallegir að utan sem innan. Í seinustu ferð ykkar til Spánar sl. haust gafstu okkur málverk. Ég spurði þig hvað þetta væri, það væri ekkert afmæli eða annað tilefni og þú sagðir einfaldlega, þetta er bara til að þakka ykkur fyrir að vera til. Mér þótti þá og ekki síður í dag vænt um þessi orð. Þið Ingó áttuð mörg sameiginleg áhugamál. Garðurinn ykkar var al- ger skrúðgarður og sem þið voruð margverðlaunuð fyrir, góð tónlist, þið fóruð saman á síðustu tónleikana ykkar með íslensku dívunum núna um jól og þú varst svo glöð og ham- ingjusöm og síðast en ekki síst ykk- ar fallega heimili. Það hefur svo margt breyst í okk- ar fjölskyldu á síðustu tveim árum. Það verða ekki Vallý og Himmi eða Inga og Ingó sem koma til okkar í sumar eins og verið hefur síðustu átta árin. Elsku systir. Enginn í fjölskyld- unni sýndi mér eins mikinn skilning og þú þegar Finnbogi minn dó fyrir rúmu ári, bæði í orðum og í bréfi. Ég ætla nú að nota þín orð sem þú sendir mér í bréfinu jólin eftir að Finnbogi minn dó. „Sorgin virðist koma í bylgjum. Eitthvað kemur snöggt upp í hug- ann og þá hellist hún yfir mann. Sem betur fer dvínar sorgin smám saman en hún hverfur aldrei alveg.“ Hefur þetta bréf oft hjálpað mér að vita að þú sem varst svo veik, værir svona sterk og full af kær- leika. Hjálpaði það mér til að komast á fætur þegar sorgin var að buga mig, því þá hugsaði ég til þín og reyndi að vera sterk eins og þú. Ég hugsa til Ingu og ætla að geyma minninguna um hversu glæsileg hún var í níræðisafmæli móður okkar í haust. Ég kveiki á kertum á hverjum degi og hugsa til þín, elsku systir. Þú verður ætíð til í huga mér og ég mun ylja mér við minningar um gamla og góða tíma. Ég veit að nú eru erfiðir tíma hjá ykkur, elsku Ingó minn, Dísu, Huldu, Hrefnu, tengdasonunum, afa og ömmubörnunum ykkar, elsku mömmu, systkinum mínum og öðr- um vandamönnum sem eruð að kveðja stóru systir eins og ég. „Sorgin er eins og löng, dimm göng. Hvergi sér handa skil. En framundan er ljósið. Ykkur finnst það kannski ótrúlegt, en það er ljós framundan.“ Með þessum orðum kveð ég þig, elsku besta systir mín. Börnin mín senda ykkur öllum þeirra innilegustu samúðarkveðjur, Sigvaldi Búi, Sylvía, Sigríður Birna og Bjarni Ólafur. Ollý Björk og Birta Huld og Eydís Björk og ný- fædda prinsessan hennar, sem fæddist núna 3ja mars 2009. Sigríður Rósa. Það eru ótal minningar sem hafa skotið upp kollinum þessa síðustu daga sem hafa hjálpað mér að taka tíðindunum um lát Ingu því á langri ævi var jú margt brallað. Við vissum öll hvert stefndi en hversu vel sem við höldum að við séum undirbúin þá kemur þetta sem reiðarslag. Á svona stundum er erfitt að búa langt í burtu. Við Sigga höfum þó hvort annað. Elsku Ingó. Við höfum verið órjúfanlegir vinir síðan ég man eftir mér og eftir að þú kynntist Ingu þinni datt hún ein- faldlega inn í hópinn. Ég tel mig lánsaman mann að hafa átt vini eins og ykkur Ingu alla mína tíð. Elsku dúllurnar mínar, Dísa, Hulda og Hrefna og fjölskyldurnar ykkar. Ég sendi ykkur mínar inni- legustu samúðarkveðjur vegna frá- falls mömmu, tengdamömmu og ömmu. Ég sat með henni vinkonu minni á veröndinni fyrir utan heimili okk- ar Siggu síðastliðið haust og við vor- um að ræða daginn og veginn og svo hvað væri jafnvel framundan. Þá sagði hún við mig þessi orð sem ég mun aldrei gleyma. „Ég lít ekki svo á að ég sé að deyja heldur að ég sé að fara í annan heim sem bíður eftir mér, því ég trúi einfaldlega ekki að við eigum aðeins eitt æviskeið“. Þetta er nákvæmlega það sem ég held og segi því við Ingu mína: „Farðu í friði, kæra vinkona og sjáumst síðar.“ Hún Inga okkar hefur fengið frið- inn. Ég tek utan um þig og sam- hryggist þér af heilum hug, minn besti vinur. Heimili okkar Siggu verður ykk- ur fjölskyldunni alltaf opið. Völundur. Okkur langar að minnast Ingu okkar hér með nokkrum orðum. Við bræðurnir og fjölskyldur okkar er- um þakklát fyrir þær góðu stundir sem við áttum með Ingu og fjöl- skyldu hennar. Það var alltaf svo notalegt að koma í heimsókn til þeirra en Inga var sérlega gestrisin og veitti ávallt hlýjar móttökur. Heimili og garður Ingu og Ing- ólfs endurspegluðu hversu mikill fag- urkeri Inga var og handlagni Ing- ólfs. Saman sköpuðu þau heimili og umhverfi sem bar af bæði hvað varðar útlit en ekki síður innihald. Kærleikurinn og hlýjan hennar Ingu ásamt handfylli af glettni og slatta af þrautseigju er það sem við nærumst enn á. Inga var einstök móðir og amma og ræktaði vel garð- inn sinn í tengslum við fjölskyldu sína. Það var sama hversu langt leið á milli þess sem við sáumst, það var alltaf eins og við hefðum hist í gær þegar samverustundir runnu loks upp. Ingibjörg Finnbogadóttir 36 Minningar MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. MARS 2009 Elsku amma. Ég sakna þín. Það var gaman þegar ég kom til þín, þú gafst mér allt- af smákökur og pepsí max. Guð geymi þig. Vonandi hefur þú það gott hjá Guði. Kveðja. Þinn, Arnar Ingi. Elsku amma mín. Ég sakna þín og ég elska þig. Þú varst alltaf svo góð. Ég vona að þú sért ánægð með englunum. Kveðja. Þinn, Óli. Elsku amma, Ég trúi því ekki að þú sért ekki lengur til staðar. Sökn- uðurinn er mjög mikill og mér finnst svo sárt að fá aldrei meir að faðma þig og ræða við þig um lífið og til- veruna. Mér þykir svo vænt um þig og þú veist að þú átt alltaf stað í hjarta mínu. Þín, Steinunn Ósk. HINSTA KVEÐJA

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.