Morgunblaðið - 07.03.2009, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 07.03.2009, Blaðsíða 38
38 Minningar MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. MARS 2009 Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl Dulspeki Tarotnámskeið 3ja kvölda Tarot námskeið verður dagana 23.-25. mars nk. Heilunarskóli Skógarsetursins Skráning og uppl. sími 555 1727 sigrun@skogarsetrid.is www.skogarsetrid.is Spádómar               ! "#$   %&' ()*) +++,-$ ,  Ferðalög S T Y K K I S H Ó L M U R Stresslosandi gæðagisting með heit- um pottum. Helgar- og/eða vikuleiga. orlofsibudir.is gsm: 861 3123. Fossatún Einstakt umhverfi Skemmtileg afþreying, frábærar veitingar og rokkveisla í mars. www.fossatun.is sími 433 5800. Heilsa Meðvirkni er BANVÆNN sjúkdómur! Segirðu JÁ þegar þú vilt segja NEI? Það er til lausn frá MEÐVIRKNI. Fundir m.a. mán. og þri. kl: 21, sun. kl: 13. Borgartúni 6, sjá: CODA.IS Húsnæði óskast Par óskar eftir 2-3 herb. íbúð í Rvk./Kóp. Reyklaust og reglusamt par með góð meðmæli óskar eftir góðri íbúð í langtímaleigu frá 15. maí, ca. 70-100 fm, verðhugmynd 70-80 þús. Helgi s. 868-8428. helgimj04@ru.is Einbýlishús eða raðhús óskast Óska eftir að taka á leigu einbýlis- eða raðhús á höfuðborgarsvæðinu. Helst með 3ja herb. aukaíbúð. Upplýsingar í síma 822 0558. 4+ herbergja íbúð í Hlíðunum Óska eftir 4+ herbergja íbúð til leigu í Hlíðunum með innbúi frá 1. maí - 31. ágúst. arnargeirsson@yahoo.com, sími 588-1115. Tölvur Tölvuviðgerðir / vírushreinsanir Tek að mér allar almennar viðgerðir á PC tölvum, vírushreinsanir og netupp- setningar, vönduð vinna. Pétur, sími 899-8894. Viðurkenndur af Microsoft. Tómstundir Markaðslaugardagur frímerkjasafnara Stór markaður laugardag Síðumúla 17 kl. 13:00- 15:00. Kaffi í boði félagsins. Auk þess verður boðið uppá ókeypis verðmat á frímerkjasöfnum. Allir hjartanlega velkomnir. Bókhald Bókhald, vsk.-skil, skattframtal og kærur fyrir einstaklinga með rekstur og félög. Aðstoðum við kærur, stofnun ehf. og léna og gerð heima- síðna. Áralöng reynsla. Dignus ehf. - dignus.is - s: 699-5023. LINARES-mótið á Spáni hefur fyr- ir löngu öðlast þann sess að vera kallað Wimbledon skákarinnar. Það var haldið í fyrsta skipti snemma á níunda áratugnum en virðing þess náði hæstum hæðum á tíunda ára- tugnum þegar Garrí Kasparov sigr- aði þar hvað eftir annað og ekki laust við að dálítið tómarúm hafi skapast þegar hann í lok mótsins 2005 tilkynnti um að hann væri hættur og ætlaði að snúa sér að taflmennsku á stærra skákborði. Kasparov gat þess í grein, sem hann skrifaði nokkru síðar, að hon- um fundust fyrstu viðbrögð Anand dálítið kaldhömruð sem kvaðst vona að hann gæfi skáklistina ekki upp á bátinn fyrir rússneska byssukúlu. Kasparov varð átta sinnum einn efstur í Linares á árunum 1991- 2005 og tvisvar efstur ásamt öðrum. Hann hafði yfirleitt mikla yfirburði og mestur varð munurinn á honum og næsta manni þrír vinningar árið 2001 en um það leyti vann hann tíu stórmót í röð. Sum Linares-mótanna eru raunar sérstaklega minnisstæð vegna þess að Kasparov vann þau ekki! Vasilí Ivantsjúk varð efstur á Linares- móti um 1991 og var þá umsvifa- laust kallaður krónprins skákarinn- ar. Árið 1994 vann Karpov sinn fræknasta mótasigur er hann hlaut 11 vinninga af 13 og varð langt fyrir ofan Garrí sem hafði allt á hornum sér; Judit Polgar setti dreyrrauða eftir tap fyrir Karpov er Garrí gekk þar hjá og bókstaflega hvæsti á hana: „Hefurðu aldrei heyrt talað um svarta reiti?“ Eitt árið þegar allt um þraut og Garrí sallaði niður alla keppinauta sína skaust Ivantsjúk í hádegisverð á undan meistaranum og settist í „sæti Kasparovs“ í matsalnum á Hótel Annibal. Garrí og Klöru móð- ur hans var ekki skemmt þegar þau komu að borðinu. Þótt umgjörðin á Linares-mótinu í ár hafi sjaldan verið glæsilegri og Anand sé verðugur heimsmeistari og mótið sé að öllu leyti vel skipað þá er vandfyllt það skarð sem Kasp- arov skildi eftir. Mótið í ár er hið fyrsta sem Anand tekur þátt í eftir að hann vann einvígið um heims- meistaratitilinn við Kramnik sl. haust. Hann byrjaði vel en eftir tap með hvítu fyrir Aronjan hefur hann ekki náð sér almennilega á strik. Um tíma virtist sem rússneski stórmeistarinn Alexander Gritsjúk ætlaði að stinga af en í 12. umferð, sem tefld var á fimmtudaginn, tókst Magnúsi Carlsen að leggja Rússann sem hefur naumt forskot fyrir lok- umferðirnar tvær. Staðan: 1. Alexander Gritsjúk (Rúss- landi) 7 v. (af 12) 2.-3. Magnús Carlsson (Noregi) og Vasilí Ivant- sjúk (Úkraínu) 6½ v. 4.-5. Visw- anthan Anand og Levon Aronjan (Armeníu) 6.-7. Teimour Radjabov (Aserbaídsjan) og Wang Ye (Kína) 5½ v. 8. Lenier Dominguez (Kúbu) 5 v. Sigur Norðmannsins í 12. umferð er án efa tilþrifamesta skákin í Lin- ares þetta árið: Linares 2009; 12. umferð: Magnús Carlsen – Alexander Gristjúk Sikileyjarvörn 1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 Rf6 5. Rc3 a6 6. Be2 e6 7. 0-0 Be7 8. a4 Rc6 9. Be3 0-0 10. f4 Dc7 11. Kh1 He8 12. Bf3 Scheveningen-afbrigði Sikileyjar- varnarinnar kom margoft fyrir í skákum Kasparovs sem var vanur að leika hér 12. … Hb8. 12. … Bf8 13. Dd2 Hb8 14. Df2 e5 15. fxe5 dxe5?! Hæpinn leikur, 15. … Rxe5 virð- ist betra en Gritsjúk kann að hafa óttast 16. Bg5 sem má svara með 16. … Rfg4 17. Dg1 Be6 o.s.frv. 16. Rb3 Rb4 17. Ba7 Ha8 18. Bb6 De7 19. Had1 Be6 20. Rd5! Möguleikar hvíts liggja á drottn- ingarvæng. Nú fær hann ógnandi frípeð á d-línunni. 20. … Bxd5 21. exd5 e4 22. d6 De6 23. Rc5 Df5 24. Be2 Dxf2 25. Hxf2 26. a5! Bráðsnjall leikur sem byggir á hugmyndinni 26. … Bxd6 27. Hxf6! og vinnur lið t.d. 27. … Bxc5 28. Hxd5 Bxb6 29. Hxb6. 26. … Rxb6 27. axb6 Hab8? Eftir þennan óvirka leik verður stöðu svarts ekki bjargað. Hann varð að reyna 27. … Hec8! Með hugmyndinni 28. b4 Hc6. 28. Hxf6! gxf6 29. Rd7 Hvítur lætur skiptamun af hendi tímabundið og getur náð honum til baka hvenær sem honum sýnist. Framrás peðanna á drottningar- væng gerir svo út um taflið. 29. … f5 30. c4 a5 31. c5 Bg7 32. Rxb8 Hxb8 33. Ba6! Skemmtilegur leikur sem gerir út um taflið en hvítur varðað taka 36. Hc1 með í reikninginn. 33. … Bf6 34. Bxb7! Hxb7 35. c6 Hxb6 36. Hc1! Bxb2 37. d7 - og svartur gafst upp. Magnús Carlsen eygir sigurvon Sigurvon Magnús Carsen vann efsta mann í Linares. SKÁK Linares, Spáni 18. febrúar-8. mars 2009 Helgi Ólafsson | helol@simnet.is ✝ Hulda RegínaJónsdóttir fæddist í Lambanesi í Fljótum 29. júní 1916. Hún lést á Heilbrigðisstofnun Siglufjarðar 20. febr- úar síðastliðinn. For- eldrar hennar voru hjónin Jón Krist- jánsson frá Lamba- nesi, f. 21.4. 1890, d. 26.6. 1969, og Stef- anía Guðrún Stef- ánsdóttir frá Siglu- nesi, f. 14.7. 1890, d. 1.5. 1936. Hulda var næst elst þrettán systkina. Hin eru: Sæmundur, f. 1915, d. 1999, Bára, f. 1919, d. 1987, Ægir, f. 1921, d. 1993, Gústaf, f. 1923, d. 1974, Laufey Alda, f. 1926, d. 1926, Sigurlaug, f. 1927, Björgvin Dalmann, f. 1929, d. 2003, Kristín Alda, f. 1931, d. 1996, Drengur, f. 1933, d. 1933, Páll, f. 1940, d. 1940, Erling Þór, f. 1945, og Edda Magnea, f. 1949. Hinn 6. nóvember 1937 giftist Hulda Guðbrandi Þórði Sig- urbjörnssyni frá Ökrum í Fljótum, f. 18.2. 1916, d. 9.6. 2001. Foreldrar hans voru hjónin Sigurbjörn Jós- epsson frá Steinavöllum, f. 5.1. 1884, d. 11.5. 1968, og Friðrika Magnea Símonardóttir frá Lang- húsum í Fljótum, f. 8.10. 1877, d. 23.9. 1979. Hulda og Guðbrandur eignuðust fjórar dætur. Þær eru; 1) Laufey Alda, f. 6.5. 1938, d. 12.9. 2005, maki Jón Sigurðsson, Sleitu- stöðum í Skagafirði. Börn þeirra eru; Reynir Þór, f. 8.1. 1960, Iris Hulda, f. 4.2. 1965, Gísli Rúnar, f. 9.8. 1966, og Lilja Magnea, f. 5.2. 1973, barnabörn þeirra eru þrettán. 2) Elva Reg- ína, f. 30.7. 1941, maki Friðleifur Björnsson, búsett í Reykjavík. Synir þeirra eru; Gunnar Þór, f. 10.6. 1962, og Ómar Ingi, f. 19.3. 1970, barnabörn- in eru fjögur. 3) Alma Elísabet, f. 17.3. 1949, maki Páll Hólm Þórð- arson, búsett í Kópa- vogi. Börn þeirra eru; Auðunn Ingvar, f. 13.6. 1967, Hildur Hólmfríður, f. 19.12. 1968, og Selma Halldóra, f. 13.12. 1973, barnabörn þeirra eru sjö. 4) Bryndís Sif, f. 26.6. 1958, maki Þorsteinn Símonarson, búsett í Grindavík. Börn þeirra eru; Rósa Dögg, f. 20.1. 1982, Símon Guðbrandur, f. 22.3. 1985, og Sindri Snær, f. 17.2. 1992. Hulda fluttist 9 ára gömul með foreldrum sínum til Siglufjarðar. Hún hafði yndi af söng og var að- eins 10 ára þegar hún hóf að syngja með kirkjukór Siglufjarðar og söng með kórnum í 40 ár. Á síldarár- unum vann Hulda við söltun en síð- an lá leiðin í Prentsmiðju Siglu- fjarðar þar sem hún starfaði í 15 ár. Hulda og Guðbrandur ráku Alþýðu- húsið á Siglufirði í 12 ár og ásamt föstu starfi stunduðu þau bæði kinda- og hænsnabúskap fram á efri ár. Hulda dvaldi síðustu 13 árin á Heilbrigðisstofnun Siglufjarðar. Útför Huldu fer fram frá Siglu- fjarðarkirkju í dag kl. 14. Elsku besta amma. Nú ert þú farin á betri stað þar sem Brandur afi tekur á móti þér. Stað þar sem augað sjáandi sér og röddin sterk syngur svo vel. Nú sitjið þið saman, spilið og ráðið krossgátur, afi með pípu í munni og þú flautandi á „ensku“ líkt og þú gerðir fyrir okkur í æsku. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér, og það er svo margs að minnast svo margt sem um hug minn fer, þó þú sért horfinn úr heimi ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir.) Hvíldu í friði, elsku amma. Þín barnabörn, Rósa Dögg, Símon Guðbrandur og Sindri Snær Þorsteinsbörn. Drottinn gefur, Drottinn tekur dána aftur upp hann vekur. Guð af sínum gnægtarbrunni gaf þér líf og heitt þér unni. Ásýnd hans á lífsins leið lýsti þér í sorg og neyð. Máttur hans og mikil ást miskunnsemin aldrei brást. Vinur, nú í ljóssins löndum leggur upp að nýjum ströndum, víst þú á hans vegi gengur ver hjá oss í anda lengur. Öll við munum minnast þín mikið, þegar sorgin dvín. Hlátur þinn og brosið bjarta best mun geymt í okkar hjarta. Klökk nú kveðjustundin er kæri, aldrei gleymum þér. Frelsarinn í faðmi sínum fagni liðnum anda þínum. (A.E.G.) Alma Elísabet og fjölskylda. Hulda Regína Jónsdóttir Morgunblaðið birtir minning- argreinar alla útgáfudagana. Skil | Greinarnar skal senda í gegn- um vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is – smella á reitinn Senda efni til Morg- unblaðsins – þá birtist valkosturinn Minningargreinar ásamt frekari upp- lýsingum. Skilafrestur | Ef birta á minning- argrein á útfarardegi verður hún að berast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.