Morgunblaðið - 07.03.2009, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 07.03.2009, Blaðsíða 8
8 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. MARS 2009 FRÉTTASKÝRING Eftir Magnús Halldórsson magnush@mbl.is RÚMLEGA 40 prósent þeirra sem eru undir þrítugu, og tóku afstöðu í nýjustu skoðanakönnun Capacent, segjast styðja Vinstri græn. Fylgi flokksins í þessum aldurs- hópi hefur sjaldan verið meira og virðist sem bankahrunið í október, og pólitísk umræða í kjölfar þess, hafi gefið Vinstri grænum meira fylgi meðal yngra fólks en öðrum flokkum. Samfylkingin er með um helmingi minna fylgi, rúmlega 20 prósent, í sama aldurshópi en Sjálfstæð- isflokkurinn fær um 25 prósent fylgi. Framsóknarflokkurinn fær hins vegar um 9,2 prósent í sama aldurshópi og Frjálslyndi flokkurinn 0,3 prósent. Íslandshreyfingin er með tíu sinnum meira fylgi en Frjálslyndi flokkurinn eða 3,2 pró- sent. Getum náð betur til ungs fólks Bjarni Benediktsson, sem býður sig fram sem formaður Sjálfstæð- isflokksins á landsfundi flokksins í lok mánaðarins, segir Sjálfstæð- isflokkinn geta náð betur til ungs fólks, og það séu allir Sjálfstæð- ismenn ákveðnir í að gera. „Sjálf- stæðismenn hafa verið að gera upp sín mál opinskátt. Ég held að það sé flokknum hollt og sýni að flokks- menn eru tilbúnir að líta yfir farinn veg og axla ábyrgð. Hins vegar er einnig brýnt að þau gildi sem flokk- urinn hefur alla tíð staðið fyrir verði hafin upp til vegs og virðingar,“ seg- ir Bjarni. Þrír turnar – ekki tveir Svandís Svavarsdóttir, oddviti VG í Reykjavík og frambjóðandi flokks- ins til efsta sætis í Reykjavík, segir kannanir benda til þess að þrír turn- ar séu nú í íslenskum stjórnmálum. Erfitt sé að segja til um hvernig fylgið muni þróast. „Alveg frá því í haust hafa kannanir verið að sýna að Sjálfstæðisflokkurinn, Samfylkingin og VG eru með 25 til 30 prósent fylgi. Hvernig sem prósentutölur eru að sveiflast núna þá finnst mér stóra myndin vera sú að þessir þrír stóru flokkar bera höfuð og herðar yfir aðra. Hvað VG varðar þá er ljóst að ungt fólk, sem augljóslega er að hugsa til framtíðar, er á okkar bandi. Mér finnst þetta sýna að VG hefur endurómað þörfina á breyt- ingum í íslensku samfélagi og ungt fólk virðist sérstaklega finna fyrir þörfinni á því,“ segir Svandís. Dagur B. Eggertsson, oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík og frambjóðandi til varaformannsemb- ættis á landsfundi flokksins í lok mánaðarins, segir tvísýnar kosn- ingar vera framundan. „Það er ljóst að Samfylkingin get- ur betur náð til ungs fólks og ég er viss um að það tekst. Þær ræður miklu að Samfylkingin hefur ekki aðeins gert kröfu um endurnýjun í stjórnmálaáherslum heldur hefur hún fram að færa skýrar lausnir í gjaldeyrismálum. Innganga í Evr- ópasambandið og upptaka evrunnar er sá stöðugleiki sem Ísland þarf á að halda til framtíðar,“ segir Dagur. Hreyfing á fylginu Einar Mar Þórðarson, stjórn- málafræðingur hjá Háskóla Íslands, segir erfitt að „lesa ákveðnar nið- urstöður“ út úr könnunum þessa dagana. Mikil hreyfing sé á fylgi og erfitt að greina mál séu að þróast. „Mér finnst stundum eins og stjórn- málamenn lesi svolítið miklar nið- urstöður út úr könnunum. Í raun er ómögulegt að segja hvernig málin þróast. Varðandi unga kjósendur, og þá sérstaklega nýja kjósendur, þá hafa þeir átt það til að stökkva á einn flokk umfram annan. Það verð- ur spennandi að sjá hvort þannig verður einnig nú, eins og margt bendir til í tilfelli VG.“ Unga fólkið flykkist til VG Morgunblaðið/ÞÖK Árið 2007 Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, hló að einhverju að kvöldi síðasta kjördags og brosir eflaust yfir fylgi flokks síns í dag. VG á upp á pallborðið hjá ungum Íslendingum í dag. Morgunblaðið/Jim Smart Bjarni Ben. Telur Sjálfstæðisflokk- inn þurfa að ná betur til ungs fólks.  Sjálfstæðisflokkurinn er stærsti flokkur landsins samkvæmt nýjustu skoðanakönnu Capacent  Rúmlega 40 prósent kjósenda undir þrítugu segjast ætla að kjósa Vinstri græn í apríl      !" #$%  "  &&' (& ) * !&!' ) &' ) &' ) +  & )     !               !" #   ! $  %  " #   "  " "  "   "  "  " " " " " " "  " " " " "   "  " "  "  "  " " Þá sagði Steinunn Valdís að efla þyrfti eftirlitsstofnanir samkeppnis- og fjármála, efla eftirlitshlutverk Al- þingis, auk þess sem Alþingi þyrfti að slíta sig laust frá framkvæmda- valdinu til þess að verða öflugri og mikilsvirtari vettvangur en það er í dag. Sagt var frá því í Morgunblaðinu í gær að Stefán Ólafsson sagðist á fundinum vilja láta tvöfalda vaxta- bætur og færa styrk vaxtabótakerf- isins í það horf sem var á 10. ára- tugnum. Þetta sagði hann kosta á bilinu fimm til sex milljarða króna árlega og tengdist þetta hugmynd- um Steinunnar að því leyti að hann sagði hægt að fjármagna aðgerðina með upptöku hátekjuskatts. Eftir Önund Pál Ragnarsson onundur@mbl.is SAMFYLKINGIN ætti að beita sér fyrir því að tekið verði upp þrepskipt skattkerfi á Íslandi. Þá skoðun viðr- aði Steinunn Valdís Óskarsdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar sem sækist eftir endurkjöri í kosningun- um í vor, á málfundi á Hótel Borg á fimmtudag. Hún sagði Samfylk- inguna einnig eiga að ganga bundna til kosninga að því leytinu til að mynda eigi félagshyggjustjórn eftir kosningar. „Mín skoðun er sú, og ég tek fram að það er mín persónulega skoðun, að við sem flokkur eigum að skoða af alvöru allar hugmyndir um þrep- skipt skattkerfi. En ekki í formi þess hátekjuskatts sem við þekkjum frá fyrri árum,“ sagði Steinunn Valdís á fundinum, sem hún boðaði sjálf til og fékk Stefán Ólafsson prófessor í fé- lagsfræði og Indriða H. Þorláksson ráðuneytisstjóra til að ávarpa. „Tekjuviðmiðið var svo lágt að það bitnaði mjög á millitekjuhópum sam- félagsins,“ sagði hún og vísaði til fólks sem hefði unnið mikið og haft þokkalegar tekjur á meðan það var að koma sér upp þaki yfir höfuðið. Vill skattkerfið í mörgum þrepum Samfylkingin gangi bundin til kosninga Steinunn Valdís Óskarsdóttir Stefán Ólafsson Hvernig var spurt í könnuninni? Spurt var: „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk eða lista myndir þú kjósa?“ Þeir sem voru óákveðnir voru spurðir: „En hvaða flokkur eða listi yrði líklegast fyrir valinu?“ Þeir sem enn voru óákveðnir voru spurð- ir: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálf- stæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?“ Heildarúrtakið var 1.513 manns 18 ára og eldri. Svarhlutfallið var 60,2 prósent. Hvert reyndist fylgi hvers flokks? Sjálfstæðisflokkurinn mældist með mesta fylgið, eða 29%. Samfylkingin mældist með 27,5%, Vinstri græn með 25,9%, Framsóknarflokkurinn með 12,6%, Frjálslyndi flokkurinn með 2,1 %, Íslandshreyfingin með 2% og aðrir fengu 0,9%. Frá því um áramót hefur fylgi Sam- fylkingarinnar og Sjálfstæðisflokks- ins, sem voru við völd þegar bank- arnir hrundu í október, hækkað nokkuð miðað við mælingar Capa- cent. Fylgi Samfylkingarinnar féll sérstaklega mikið, eða niður í um 20%. Fylgi Sjálfstæðisflokksins var um 25% um áramót en hefur hækk- að um rúmlega fjögur prósentustig frá því í janúar. Lægst mældist fylgið um 20% í nóvember. S&S Álfrún Gunnlaugsdóttir fékk MENNINGARVERÐLAUN DV fyrir skáldsöguna Rán NÝ PRENTUN KOMIN „… margbrotin og fögur skáldsaga um sorg, missi og sannleikann sem sérhver manneskja þarf að horfast í augu við þegar líða fer á ævina. […] Aðalsöguhetjan er mannleg og um margt mótsagna- kennd; djúp og eftirminnileg persóna sem öðlast verðugan sess í hjörtum lesenda.“ DÓMNEFND DV Til hamingju! 2008 Rán var einnig tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna. M E N N I N G A R V E R Ð L A U N 2008

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.